16. október 2026 Rammaáætlun: Tvær tillögur -tvenns konar vinnubrögð Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur lagt fram tvær tillögur sem nú eru opnar til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda. Önnur varðar átta verndarsvæði og tilheyrandi virkjunarhugmyndir sem lagt er til að fari í verndarflokk. Hin varðar flokkun sjö vindorkuhugmynda. Samorka telur ástæðu til að gera athugasemdir við báðar tillögur, en ekki síður við það ósamræmi sem birtist í vinnubrögðum sömu verkefnisstjórnar. Verndartillagan byggir alfarið á mati frá 2011 Tillagan um verndarflokk er lögð fram í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 36/2023. Svæðin átta eru Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og Hvítá og Tungnaá. Kostirnir voru ekki metnir að nýju. Tillagan byggir á niðurstöðum faghópa og verkefnisstjórnar í 2. áfanga rammaáætlunar, sem lauk árið 2011. Faghópur 1 kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé þörf á að endurtaka fyrra mat. Breytingar á lagaumhverfi teljist ekki forsendubreytingar að mati faghópsins. Faghópur 4 fór yfir niðurstöður 2. áfanga og breytti ekki hagkvæmniflokkun kostanna, án þess að gera grein fyrir nýju mati á orkugetu, kostnaði eða arðsemi. Síðan 2011 hefur lagaumgjörð rammaáætlunar þó breyst verulega. Markmið laga nr. 48/2011 tekur nú til orkuöryggis almennings, orkuskipta og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Taka skal mið af vatnaáætlun, sem var ekki til árið 2011, og með reglugerð nr. 970/2026 liggur fyrir grunnur að mati á óbyggðum víðernum. Ekkert af þessu var lagt til grundvallar eða skoðað. Vindorkukostir endurmetnir út frá nýjum lögum Í tillögunni um sjö vindorkuhugmyndir fer sama verkefnisstjórn allt aðra leið. Faghóparnir endurmeta kostina meðal annars út frá breytingalögum ársins 2026, nýrri 10. gr. a um sérstök sjónarmið við mat vindorkuhugmynda, nýjum gögnum og nýjum sýnileikagreiningum. Verkefnisstjórn rekur sérstaklega að með lagabreytingunum hafi bæst við markmið um orkuöryggi almennings, orkuskipti og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Hér er talin full ástæða til að endurmeta kostina út frá nýjum lögum, þó fyrra mat sé einungis um eins árs gamalt, frá árinu 2025. Vindmillur Vaðölduvers -mynd: Landsvirkjun Niðurstaðan er að Garpsdalur fari í nýtingarflokk, Alviðra og Hnotasteinn í biðflokk, en Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I og II og Sólheimar í verndarflokk. Það er rétt nálgun að meta virkjunarkosti út frá gildandi lögum og nýjustu gögnum. Spurningin er hvers vegna sama nálgun á ekki við um verndartillöguna. Verkefnisstjórn starfar samkvæmt lögum, og lögin gilda jafnt um báðar tillögur. Einnig ástæða til athugasemda við vindorkutillöguna Þótt nálgunin sé réttari er full ástæða til að gera athugasemdir við niðurstöðuna. Orkuöflun fær lítið vægi. Þeir þættir sem horfa til orkuöflunar og bætt var við lögin eru metnir að mjög takmörkuðu leyti. Markmið stjórnvalda um orkuskipti koma hvergi fyrir í mati faghópa né í niðurstöðum verkefnisstjórnar um einstaka kosti. Sumarið 2026 ákvað verkefnisstjórn hins vegar að bæta mati á áhrifum á útsýnisflug flugvéla og þyrlna og svifflug við verksvið faghóps 2. Slíkt mat er ekki lögbundið samkvæmt sérstökum sjónarmiðum 10. gr. a og hefur ekki farið fram áður. Faghópurinn segist sjálfur ekki hafa haft ráðrúm til að byggja það inn í aðferðafræði sína og fjallar aðeins almennt um það. Engu að síður eru „möguleg áhrif á flug“ látin ráða afmörkun verndarsvæðis á Mosfellsheiði. Á sama tíma er hvergi í matinu horft til hagsmuna sem byggja á nýtingu orkunnar. Það á við um atvinnuuppbyggingu í anda atvinnustefnu stjórnvalda, gagnaver, fiskeldi og orkuskipti, en ekkert þessa fær sambærilega skoðun hjá nokkrum faghópi. Verkefnisstjórn hefur þannig valið hvaða hagsmunum er bætt við matið, og valið er aðeins í eina átt. Sjónarmið 10. gr. a eru metin ójafnt. Lítið fer fyrir mati á því hvort virkjunarhugmynd sé á röskuðu svæði, utan miðhálendislínu eða hvaða áhrif hún hefði á atvinnu- og byggðaþróun. Í tillögu verkefnisstjórnar er hvorki vikið að miðhálendislínu né atvinnu- og byggðaþróun. Um Mosfellsheiði segir verkefnisstjórn sjálf að svæðið sé að hluta mótað af virkjanamannvirkjum og að ýmsir kostir fylgi staðsetningunni. Faghópur 1 telur áhrif á náttúru ekki mikil og faghópur 4 telur nálægð við meginflutningskerfið hagstæða. Samt er lagt til að báðir kostirnir fari í verndarflokk. Sýnileiki er margmetinn. Sýnileikaáhrif fá vægi í niðurstöðum þriggja af fjórum faghópum: hjá faghópi 1 vegna landslags og víðerna, hjá faghópi 2 vegna ferðaþjónustu og útivistar og hjá faghópi 3 sem skynrænt áreiti. Þá er sýnileiki sérstaklega nefndur í niðurstöðu verkefnisstjórnar. Lítið samhengi er milli niðurstaðna faghópa og verkefnisstjórnar. Óljóst er hvernig niðurstöður faghópanna fjögurra eru lagðar saman í niðurstöðu verkefnisstjórnar. Hvergi kemur fram hvort einhverjir faghópar eða matsþættir hafi meira vægi en aðrir, né hvaða aðferð er beitt við að komast að flokkun hvers kosts. Erfitt er því að átta sig á hvar og hvernig mat faghópanna ræður niðurstöðunni, ef hún gerir það þá yfir höfuð. Samorka skilar ítarlegum athugasemdum Samorka vinnur nú að rýni tillagnanna ásamt aðildarfyrirtækjum sínum og mun skila ítarlegum athugasemdum við niðurstöður verkefnisstjórnar.
16. október 2026 Orku- og veitugeirinn sterkur í jafnréttismálum Fjölmörg aðildarfélög Samorku voru á meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í vikunni fyrir að hafa náð jafnvægi í kynjahlutföllum í efsta lagi stjórnunar. Alls hlutu 26 aðilar innan Samorku viðurkenningu, þar á meðal orku- og veitufyrirtæki, sveitarfélög og fyrirtæki sem tengjast orku- og veitugeiranum. HS Orka, Landsnet, Landsvirkjun, Norðurorka, Orkusalan, Orkuveitan, Rarik og Veitur hlutu öll viðurkenningu auk aukaaðilanna atNorth, COWI, EFLA, ÍSOR, Norðurál, Rafal og Verkís. Þá hlutu sveitarfélögin Fjallabyggðar, Garðabær, Húnabyggð, Húnaþing vestra, Mosfellsbær, Rangárþing eystra, Árborg og Ölfus. Isavia er jafnframt meðal viðurkenningarhafa. Orkugeirinn til fyrirmyndar Í viðtali við Viðskiptablaðið nefnir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarinnar, orkugeirann sérstaklega sem dæmi um atvinnugrein sem hefur náð góðum árangri í jafnréttismálum. Samkvæmt Félagi kvenna í orkumálum náðist kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum níu stærstu bakhjarla félagsins í lok árs 2025. Erla Ósk bendir sérstaklega á Orkuveituna sem dæmi um fyrirtæki sem hafi unnið lengi og markvisst að jafnréttismálum og miðli nú reynslu sinni í samstarfi við Jafnvægisvogina. „Ég vil að við lærum af slíkum fyrirmyndum. Þótt kynjahlutföll starfsfólks séu ólík eftir atvinnugreinum hefur hvert fyrirtæki svigrúm til að leita víðar að hæfileikum og undirbúa fleira fólk fyrir stjórnunarhlutverk,“ segir Erla Ósk í viðtalinu. Samorka óskar öllum viðurkenningarhöfum innilega til hamingju með árangurinn!
6. október 2026 Atvinnuveganefnd heimsækir Samorku: Gott samtal orku- og veituinnviði landsins Fulltrúar atvinnuveganefndar Alþingis heimsóttu Samorku í dag þar sem rætt var um stöðu og framtíð orku- og veituinnviða landsins og þau fjölmörgu verkefni sem fram undan eru. Á fundinum fór Samorka yfir helstu mál sem brenna á aðildarfélögum samtakanna og þær áskoranir og tækifæri sem blasa við í orku- og veitugeiranum. Rætt var meðal annars um uppbyggingu og fjárfestingarþörf í innviðum, stöðuna í raforkumálum, þróun raforkukostnaðar og mikilvægi þess að skapa traustar og fyrirsjáanlegar forsendur fyrir nauðsynlegri uppbyggingu til framtíðar. Gott samtal skapaðist við nefndarmenn um hvernig tryggja megi að orku- og veituinnviðir geti áfram staðið undir þörfum heimila og atvinnulífs og þeirri þróun sem fram undan er. Innviðir sem við reiðum okkur á alla daga Orku- og veituinnviðir eru grunnstoðir íslensks samfélags. Aðgangur að rafmagni, heitu og köldu vatni og örugg fráveita eru þjónusta sem landsmenn reiða sig á alla daga og jafnframt forsenda lífsgæða, atvinnustarfsemi og verðmætasköpunar um allt land. Framundan eru stór verkefni við viðhald, endurnýjun og uppbyggingu þessara innviða. Samorka leggur því áherslu á mikilvægi langtímahugsunar og þess að lagaumhverfi og aðrar forsendur geri orku- og veitufyrirtækjum kleift að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar á réttum tíma. Samorka leggur ríka áherslu á gott og reglulegt samtal við Alþingi og stjórnvöld um þessi mál. Við höfum mikla trú á því að með áframhaldandi samtali og góðri samvinnu megi ná mikilvægum árangri við að tryggja öfluga, hagkvæma og örugga orku- og veituinnviði til framtíðar. Samorka þakkar atvinnuveganefnd kærlega fyrir komuna og gott og gagnlegt samtal.
5. október 2026 AtNorth til liðs við Samorku: „Við lítum á varmann sem auðlind“ Gagnaversfyrirtækið atNorth bættist nýlega við í hóp aukaaðila að Samorku. Það er fyrsta gagnaversfyrirtækið innan samtakanna og Samorka býður það hjartanlega velkomið. Rekstur gagnavera tengist orku- og veitumálum á marga vegu. Hann byggir á öruggu aðgengi að endurnýjanlegri orku og getur skilað varma sem nýtist til dæmis við hitun húsa eða í gróðurhúsum. Með aðild atNorth bætast verðmæt ný reynsla og nýtt sjónarhorn í hóp aðildarfélaga Samorku. Við fengum Bylgju Pálsdóttur, samskiptastjóra atNorth, til að segja okkur frá fyrirtækinu, hröðum vexti þess á Norðurlöndum og því hvers vegna atNorth ákvað að ganga til liðs við Samorku. Sjö gagnaver á Norðurlöndum AtNorth hannar, byggir og rekur gagnaver og býður hagkvæmar, skalanlegar og sérsniðnar lausnir fyrir fyrirtæki. Höfuðstöðvarnar eru í Hafnarfirði og hjá félaginu starfa tæplega 400 manns. „Við rekum sjö gagnaver á Norðurlöndum og þrjú þeirra eru á Íslandi: í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri,“ segir Bylgja. „Sjálfbærni er kjarninn í starfsemi okkar. Gagnaverin eru knúin endurnýjanlegri orku og styðja við hringrásarhagkerfið. Við leggjum áherslu á góða hönnun, orkunýtingu og markvissa rekstrarstýringu. Þannig tryggjum við trausta innviði til langs tíma og sveigjanlegar lausnir fyrir viðskiptavini.“ Hraður vöxtur og nýir eigendur Fyrirtækið hefur stækkað hratt á fáum árum. „Árið 2021 rákum við tvö gagnaver á Íslandi. Í dag eru þau sjö á Norðurlöndum og við vinnum að frekari uppbyggingu í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð,“ segir Bylgja. Hún segir þróunina endurspegla ört vaxandi þörf fyrir stafræna innviði. „Skýjaþjónusta, gervigreind og sívaxandi gagnavinnsla kalla á gagnaver sem eru bæði afkastamikil og orkunýtin.“ Í september luku CPP Investments og Equinix kaupum á atNorth. „Nýir eigendur tryggja félaginu langtímafjármögnun og veita okkur aðgang að alþjóðlegri reynslu og tengslaneti sem styður við frekari uppbyggingu,“ segir Bylgja. „Tækifærin felast í því að byggja gagnaver sem vaxa með þörfum viðskiptavina og nýta styrkleika Norðurlandanna: endurnýjanlega orku, svalt loftslag og stöðugt rekstrarumhverfi.“ „Við lítum á varmann sem auðlind“ Orka og orkunýtni eru stór hluti af rekstri gagnavera. Þar segir Bylgja að norrænar aðstæður skipti miklu máli. „Kalt loftslagið kælir gagnaverin á náttúrulegan hátt. Það dregur bæði úr orkunotkun og kostnaði.“ Nær öll orkan sem tölvubúnaðurinn notar verður að lokum að varma. „Víða er þeim varma einfaldlega hleypt út í umhverfið. Við lítum hins vegar á hann sem auðlind sem getur skapað verðmæti í nærsamfélaginu. Hann má til dæmis nýta til að hita íbúðar- og atvinnuhúsnæði, í gróðurhúsum til matvælaframleiðslu og í iðnaði.“ Gagnaver er í gangi allan sólarhringinn, allt árið. Það skilar því jöfnum og stöðugum varma sem hentar vel starfsemi sem þarf hita allan ársins hring. „Gott dæmi er gróðurhús við hlið gagnavers sem fær hita til ræktunar frá gagnaverinu, í stað þess að varminn fari til spillis.“ Varmanýting hugsuð frá upphafi Til að varminn nýtist þarf að gera ráð fyrir því strax við hönnun. „Nýjustu gagnaver atNorth eru því hönnuð með varmanýtingu í huga frá upphafi. Við höfum þegar komið á varmasamstarfi á nokkrum stöðum á Norðurlöndum,“ segir Bylgja. Hún bætir við að á Íslandi verði áfram lögð áhersla á að þróa starfsemina og finna leiðir til að nýta varmann frá gagnaverunum í þágu nærsamfélagsins. Uppbygging á öllum Norðurlöndum Fram undan er áframhaldandi uppbygging til að mæta vaxandi eftirspurn eftir gagnaverum og afkastamikilli tölvuvinnslu. Meðal verkefna í þróun eru stór gagnaverasvæði í Kouvola í Finnlandi, Ølgod í Danmörku, Sollefteå í Svíþjóð og Haugaland í Noregi. „Svæðið í Haugaland verður fyrsta gagnaver atNorth í Noregi. Þar með verðum við með starfsemi eða uppbyggingu á öllum Norðurlöndum,“ segir Bylgja. Nýtt sjónarhorn inn í umræðuna Spurð hvers vegna atNorth sótti um aukaaðild að Samorku segir Bylgja að fyrirtækið vilji taka þátt í faglegu samtali um orku, veitur og innviði á Íslandi. „Rekstur gagnavera byggir á öruggu, hagkvæmu og sjálfbæru orkuumhverfi. Við höfum víðtæka reynslu af nýtingu og uppbyggingu slíkra innviða á Norðurlöndum og viljum miðla henni.“ Hún bendir á að atNorth geti komið með nýtt sjónarhorn inn í umræðu þar sem orkumál, stafræn þjónusta, atvinnuuppbygging og hringrásarlausnir mætast. „Reynsla okkar getur nýst í samtalinu um hvernig íslensk orka og innviðir geta skapað verðmæti til framtíðar. Á sama tíma vonumst við auðvitað til að læra af öðrum aðildarfyrirtækjum, efla samstarf og taka þátt í uppbyggilegu samtali um sameiginleg viðfangsefni,“ segir Bylgja að lokum. Samorka fagnar því að fá atNorth til liðs við samtökin og býður fyrirtækið hjartanlega velkomið í hópinn.
25. september 2026 Elma gengur til liðs við Samorku: „Mikilvægt að vera við borðið“ Elma orkuviðskipti bættist nýverið í hóp aðildarfyrirtækja Samorku og er ánægjuleg viðbót við fjölbreyttan hóp fyrirtækja innan samtakanna. Samorka leggur áherslu á að vera breið og öflug hagsmunasamtök orku- og veitufyrirtækja, þar sem ólík þekking, reynsla og sjónarhorn koma saman. Fjölbreytt aðild styrkir samtökin og skapar enn betri grundvöll fyrir samtal og samstarf um orku- og veituinnviði landsins. En hvað gerir Elma og hvaða hlutverki gegnir fyrirtækið á íslenskum raforkumarkaði? Við fengum Katrínu Olgu Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Elmu orkuviðskipta, til að segja okkur nánar frá starfseminni, tilurð fyrirtækisins og þeirri þróun sem nú á sér stað á íslenskum raforkumarkaði. Mikilvægur innviður í íslenska orkukerfinu „Elma er viðskiptavettvangur með raforku og mikilvægur hlekkur í íslenska orkukerfinu. Við rekum næsta-dags markað og innandagsmarkað í samstarfi við Nord Pool, n auk þess sem við bjóðum upp á vettvang fyrir lengri viðskipti og uppboð,“ Segir Katrín Olga og bætir við að hlutverk Elmu sé í raun tvíþætt. „Annars vegar erum við markaðsvettvangur þar sem kaupendur og seljendur raforku geta átt viðskipti á gagnsæjan og hlutlausan hátt og verð myndast út frá framboði og eftirspurn. Þar geta markaðsaðilar keypt og selt raforku til að mæta þörfum sínum, nýtt tækifæri á markaði og brugðist við breytingum í framboði og eftirspurn. Hins vegar gegnir markaðurinn mikilvægu kerfislegu hlutverki. Skammtímamarkaðir gerir markaðsaðilum kleift að bregðast við breyttum aðstæðum nær afhendingu og dregur úr því að jöfnunarorkumarkaðurinn sé nýttur sem almennur viðskiptamarkaður. Um leið gefur verðmyndunin mikilvægar upplýsingar um stöðu kerfisins hverju sinni – hvort þar sé gnótt eða skortur – og styður þannig við betri nýtingu orkunnar, meiri sveigjanleika og öruggari rekstur raforkukerfisins.“ Elma er því ekki bara vettvangur fyrir viðskipti heldur hluti af þeim innviðum sem stuðla að betri nýtingu orkunnar, auknu orkuöryggi og sterkara raforkukerfi. „Einhvern tímann þarf einfaldlega að stökkva“ Katrín Olga segir að sú hugmynd að koma á fót skipulögðum raforkumarkaði á Íslandi hafði verið til skoðunar frá árinu 2008. Margar skýrslur hafi verið unnar, málið rætt frá ýmsum hliðum og mismunandi útfærslur skoðaðar. „En einhvern tímann þarf einfaldlega að stökkva og taka skrefið. Það er líklega aldrei hægt að finna hinn fullkomna tímapunkt til að hefja nýjan markað. Markaðurinn þarf að fá að þróast, þátttakendur þurfa að læra á hann og traust og seljanleiki byggjast upp með tímanum.“ Hún segir að þörfin hafi verið, að þeirra mati mjög skýr. „Áður en Elma kom til sögunnar var jöfnunarorkumarkaðurinn oft nýttur sem eins konar skammtímamarkaður, en það er ekki hlutverk hans. Jöfnunarorkumarkaðurinn á fyrst og fremst að vera síðasta úrræði kerfisins til að halda jafnvægi milli framleiðslu og notkunar. Með tilkomu Elmu hafi orðið til skipulagður skammtímamarkaður þar sem kaupendur og seljendur geti átt viðskipti með raforku nær afhendingu. „Það skapar bæði markaðslega og kerfislega virkni sem áður vantaði.“ Þá sé málið beintengt orkuöryggi. „Með betri nýtingu þeirrar orku sem þegar er til staðar, meiri sveigjanleika og skýrari verðmerkjum getum við bæði aukið orkuöryggi og styrkt kerfislegt öryggi,“ segir hún. Byggja á norrænni reynslu en íslenskum aðstæðum Strax í upphafi ákvað teymi Elmu að reyna ekki að byggja allt sjálf frá grunni heldur tengjast öflugum erlendum aðila, bæði Strax í upphafi ákvað teymi Elmu að reyna ekki að byggja allt sjálf frá grunni heldur tengjast öflugum erlendum aðila, bæði tæknilega og þekkingarlega. Fyrir valinu varð Nord Pool, sem hefur rekið skipulagða raforkumarkaði á Norðurlöndum og í Evrópu frá árinu 1992. „Með því að velja þekkt og reynt norrænt viðskiptakerfi teljum við okkur geta boðið eins öruggan viðskiptavettvang og völ er á, bæði með tilliti til netöryggis og rekstraröryggis. Jafnframt er vettvangurinn notendavænn fyrir markaðsaðila.“ Katrín Olga segir samstarfið við Nord Pool þó ekki snúast eingöngu um tæknilegan rekstur. „Nord Pool rekur markaðinn fyrir okkur frá Osló, en ekki síður er mikilvæg sú þekking og reynsla sem fylgir samstarfinu. Við fáum aðgang að áratuga reynslu af rekstri raforkumarkaða, markaðshönnun, uppgjöri og þróun markaða. Það hefur skipt okkur miklu máli að íslenski markaðurinn byggi frá fyrsta degi á traustum og reyndum innviðum.“ Hún bendir á að sérstaða Elmu felist líka í því hvernig viðskiptin eru byggð upp. „Elma er miðlægur mótaðili í viðskiptunum, það er kaupandi gagnvart hverjum seljanda og seljandi gagnvart hverjum kaupanda. Með því tökum við mótaðilaáhættuna út úr viðskiptunum. Markaðsaðilar þurfa því ekki að meta lánshæfi eða greiðslugetu hvers annars áður en viðskipti fara fram, heldur treysta á sameiginlega umgjörð, reglur og uppgjör Elmu.“ Jafnframt séu viðskiptin nafnlaus og fari fram eftir sömu reglum fyrir alla. „Enginn markaðsaðili sér hver stendur hinum megin við viðskiptin og það styður bæði jafnræði og samkeppni. Verðmyndunin byggir þannig á framboði og eftirspurn en ekki á því hverjir aðilarnir eru.“ Skammtímamarkaður getur stutt við nýsköpun og orkuskipti Hjá Elmu hefur verið lögð áhersla á að íslenski markaðurinn þurfi að þróast út frá íslenskum aðstæðum. „Þar er staðan að mörgu leyti öfug við það sem við sjáum víða í Evrópu,“ segir Katrín Olga og bendir á að evrópskir raforkumarkaðir séu mjög sterkir á skammtímahliðinni og áhersla hafi verið á að efla langtímasamninga. „Á Íslandi er hins vegar mjög stór hluti raforkunnar þegar seldur með langtímasamningum. Verkefnið hér er því fremur að auka vægi skammtímamarkaða og skapa virkari tengingu milli framboðs, eftirspurnar og raunverulegrar stöðu kerfisins hverju sinni.“ Hún segir það ekki síður skipta máli til framtíðar. „Virkur skammtímamarkaður er að mínu mati forsenda frekari nýsköpunar og þróunar í orkukerfinu og þar með orkuskipta. Ef við ætlum að nýta í meira mæli sveigjanlega orkugjafa eins og vindorku þarf að vera markaður þar sem hægt er að bregðast hratt við breytingum í framleiðslu og eftirspurn.“ Þá eigi það sama við um nýjar lausnir, „-eins og rafhlöðugeymslur, rafeldsneytislausnir, eftirspurnarsvörun og aðra tækni sem getur aukið sveigjanleika og nýtingu kerfisins.“ Slíkar lausnir þurfi bæði verðmerki og markað þar sem þær geta sýnt fram á verðmæti sitt. „Þess vegna lítum við ekki á Elmu eingöngu sem viðskiptavettvang. Elma er hluti af þeim grunninnviðum sem þarf ef íslenska orkukerfið á að halda áfram að þróast, styðja við nýsköpun og mæta orkuskiptum næstu ára.“ Næsta verkefni að auka seljanleika Sé litið til framtíðar segir Katrín Olga stóra verkefnið vera að auka seljanleikann á markaðinum. „Við höfum lagt mikla vinnu í að greina hvað þarf til þess og erum nú að vinna að nokkrum málum sem við teljum geta haft áhrif. Sumt af því er innan okkar eigin áhrifasviðs og þar getum við sjálf tekið frumkvæði.“ Önnur atriði, segir hún, að kalli hins vegar á þátttöku fleiri aðila og í sumum tilvikum stuðnings stjórnvalda. „Ef við ætlum að byggja upp virkan og öflugan skammtímamarkað þarf markaðurinn í heild að sjá verðmætið í því og nægt magn þarf að fara í gegnum hann.“ Þetta sé eðlilegt næsta skref í þróuninni. „Fyrst þurfti að byggja innviðina og koma mörkuðunum af stað. Nú þurfum við að tryggja að markaðurinn verði nægilega virkur til að verða sterkur verðmyndunarvettvangur og raunverulegt verkfæri fyrir markaðsaðila og raforkukerfið. Við teljum það mjög mikilvægt fyrir íslenska raforkukerfið. Virkur markaður segir okkur hvar við stöndum. Hann gefur merki um skort eða gnótt, auðveldar aðlögun að breytingum í framleiðslu og eftirspurn og stuðlar að því að orkan nýtist betur.“ „Það skiptir máli að vera við borðið“ Katrín Olga segir hennar eigin reynslu spila ákveðið hlutverk þegar kom að þeirri ákvörðun Elmu að gerast aðildarfyrirtæki Samorku. „Ég var formaður Viðskiptaráðs Íslands í nokkur ár og þekki því vel þá vinnu sem fer fram innan hagsmunasamtaka. Mín reynsla er sú að það skiptir miklu máli að vera við borðið en ekki standa fyrir utan. Samorka er mikilvægur vettvangur fyrir íslenska orkugeirann og mörg af þeim viðfangsefnum sem þar eru rædd hafa bein áhrif á þróun raforkumarkaðarins. Þar eru framleiðendur, sölufyrirtæki og aðrir lykilaðilar greinarinnar saman komnir og það skiptir okkur máli að taka þátt í því samtali.“ Hún bendir á að Elma orkuviðskipti komi með sitt sjónarhorn, sjónarhorn markaðarins. „En við viljum jafnframt hlusta og læra af öðrum. Ég tel að stór verkefni í orkumálum verði best leyst með samtali og samstarfi ólíkra aðila. Við vonum því að aðildin að Samorku geri okkur kleift að taka virkari þátt í umræðu um framtíð íslenska orkukerfisins, miðla okkar þekkingu og sjónarmiðum og jafnframt byggja upp enn sterkari tengsl við aðra aðila í greininni,“ segir Katrín Olga að lokum. Samorka fagnar því að fá Elmu orkuviðskipti til liðs við samtökin og býður fyrirtækið hjartanlega velkomið í hópinn.
16. september 2026 Nýr kafli í íslenskri orkusögu með gangsetningu Vaðölduvers Merkum áfanga í íslenskri orkusögu var náð í gær þegar Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, var formlega gangsett. Fjórar vindmyllur voru ræstar við hátíðlega athöfn á Vaðöldu en alls hafa 14 myllur verið reistar í fyrsta áfanga verkefnisins. Aðrar 14 munu bætast við á næsta ári og er stefnt að því að Vaðölduver verði komið í fullan rekstur fyrir lok árs 2027. Uppsett afl versins verður þá 120 MW. Gangsetning Vaðölduvers markar tímamót í íslenskri orkuöflun. Með henni bætist vindorka við þá endurnýjanlegu orkukosti sem Ísland hefur byggt á um áratugaskeið. Fjölbreyttari orkuöflun styrkir raforkukerfið og eykur möguleika samfélagsins til að mæta vaxandi orkuþörf, styðja við orkuskipti og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar. Mynd: Landsvirkjun Að baki áfanganum liggur umfangsmikil vinna og samstillt átak starfsfólks Landsvirkjunar, verktaka og fjölmargra samstarfsaðila. Verkefnið sýnir með skýrum hætti þann kraft, metnað og tæknilega styrk sem einkennir íslenskan orkugeira. Samorka óskar Landsvirkjun og öllum sem komið hafa að uppbyggingu Vaðölduvers innilega til hamingju með þennan sögulega áfanga.
10. september 2026 Þingmálaskrá kynnt: Orka á þingi í vetur Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 158. Löggjafarþing var birt í gær. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hyggst leggja fram þó nokkur mál sem snerta orku-og veitufyrirtæki með beinum og óbeinum hætti. Skilvirkari leyfisveitingar Samorka fagnar þeim áherslum sem birtast í þingmálaskrá og lúta að einföldun á seinlegum leyfisveitingarferlum. Þessi áhersla birtist víða í þingmálaskránni; í frumvarpi forsætisráðherra um einföldun regluverks, frumvörpum félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á skipulagslögum og lögum um mannvirki og frumvörpum umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða. Leyfisveitingaferli hér á landi standast ekki þau tímamörk sem gilda annars staðar á EES-svæðinu og Samorka telur brýnt að ferlin verði einfölduð og stytt án þess að slakað sé á kröfum um vandaða málsmeðferð. Orkuöflun til næstu 25 ára Fyrsta orkuöflunaráætlun stjórnvalda til næstu 25 ára á að líta dagsins ljós í janúar. Það er von Samorku að þar birtist metnaðarfull áform sem raunverulega leiði til þess að orkuframleiðendur og atvinnuvegir sjái framtíð í því að byggja hér upp raforkuframleiðslu til að mæta orkuskiptunum og framtíðaruppbyggingu atvinnulífs um allt land. Skýr og fyrirsjáanleg stefna er forsenda þess að fjárfestingar í orkuöflun og innviðum haldi í við þarfir samfélagsins. Fasteignaskattur á orkumannvirki Þá er boðað frumvarp um fasteignaskatt á orkumannvirki sem mun hafa bein áhrif á kostnað við orkuöflun. Þó Samorka styðji eindregið sjónarmið um að nærsamfélög njóti góðs af orkuframleiðslu, þá má slíkt ekki verða of dýru verði keypt. Raforkuöryggi heimila og atvinnulífs Von er á frumvarpi um raforkuöryggi til að tryggja að nægt framboð sé til staðar fyrir heimili og atvinnulíf. Samorka hefur lagt áherslu á að við útfærslu slíks kerfis sé jafnræðis gætt og ekki leggist óhóflegar eða of þungar byrðar á orkuframleiðendur. Hér verður að gæta þess að ábyrgð og hlutverk ólíkra aðila séu skýr og vel skilgreind. Áfallaþol og öryggi mikilvægra innviða Orku- og veituinnviðir eru burðarás í öryggi samfélagsins og áfallaþol þeirra og viðnámsþróttur ráða miklu um hvernig landið stendur af sér náttúruvá, netógnir og aðrar truflanir. Á þinginu eru boðuð lög um almannavarnir, ný öryggislöggjöf, lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og innleiðing á svokallaðri NIS2 tilskipun sem hefur það að markmiði að auka viðnámsþrótt samfélagslega mikilvægrar starfsemi gagnvart netógnum. Samorka leggur áherslu á að staða orku- og veitufyrirtækja í almannavarnakerfinu sé skýr og að náið samstarf verði við stjórnvöld um að skilgreina hvað telst til grunninnviða í þágu almannahagsmuna, hvaða kröfur eru gerðar til þeirra og hvernig nauðsynleg uppbygging þeirra verður fjármögnuð. Mikil fjárfestingarþörf í veituinnviðum Hitaveitur, vatnsveitur og fráveitur eru grunnþjónusta sem samfélagið treystir á daglega og standa frammi fyrir mikilli þörf fyrir fjárfestingar, hvort sem er í nýrri jarðhitaöflun, endurnýjun eldri lagna eða uppbyggingu í ört vaxandi byggðum. Rekstrar- og fjárfestingarumhverfi þessara innviða verður að tryggja að hægt sé að fjármagna og standa að nauðsynlegri uppbyggingu. Samorka kallar eftir því að þingið láti sig þessi mál varða. Samorka fylgist vel með framvindu mála Fjölda mörg önnur mál munu koma til kasta Samorku og aðildarfyrirtækja okkar í vetur sem haft geta víðtæk áhrif bæði á einstök fyrirtæki og samfélagið allt. Má þarf nefna frumvarpi um sjálfstæði Raforkueftirlitsins, breyting á lögum um stjórn vatnamála og frumvarp til laga um orkunýtni. Samorka er reiðubúin til samstarfs við þing og ráðuneyti um öll þessi mál.
9. september 2026 Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026: Óskað eftir tilnefningum Nýsköpun og hugmyndaauðgi hefur alla tíð verið veigamikill hluti af íslenskum orku- og veitugeira. Stórbætt lífsgæði landsmanna á síðustu áratugum má þakka nýrri þekkingu, hugviti og framsýni sem lagði grunn að sjálfbærni og verðmætasköpun í samfélaginu. Samorka óskar nú eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2026. Verðlaunin verða afhent 19. nóvember og verður þetta í sjötta sinn sem þau eru veitt. Leitað er að framúrskarandi nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þróa lausnir eða verkefni á sviði orku- og veitumála. Sérstaklega er horft til verkefna sem falla undir eitt eða fleiri eftirfarandi atriða: Tæknilausnir fyrir orku- og veitugeirann. Nýsköpun sem byggir á nýtingu orku, heits vatns, neysluvatns, fráveitu eða annarra auðlindastrauma. Lausnir sem styðja við orkuskipti. Lausnir sem stuðla að því að loftslagsmarkmið náist. Hugmyndir og viðskiptaáætlanir sem eru hagkvæmar, raunhæfar og líklegar til árangurs. Óháð dómnefnd fagfólks úr orku- og veitugeiranum velur úr þeim tilnefningum sem berast. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Við tilnefningu skal fylla út rafrænt form og gera grein fyrir fyrirtækinu, lausninni sem það hefur þróað, virðissköpun hennar og þeim áhrifum sem hún getur haft. Frestur til að senda inn tilnefningar er til og með 15. október 2026 og farið verður með allar tilnefningar sem trúnaðarmál. Lokað hefur verið fyrir innsendingar tilnefninga. Orku- og veitufyrirtæki landsins standa að Nýsköpunarverðlaununum og koma því ekki til greina sem verðlaunahafar. Handhafi Nýsköpunarverðlauna Samorku 2025 var SnerpaPower. Fyrri verðlaunahafar: 2024: Carbon Recycling International 2023: Atmonia 2022: Alor 2021: Laki Power
27. ágúst 2026 Vel sóttur morgunverðarfundur VAFRÍS og Samorku Morgunverðarfundurinn „Fráveitutilskipun ESB -séð frá Noregi“ var vel sóttur en hann fór fram í Húsi atvinnulífsins 25. ágúst. Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) boðaði til fundarins í samstarfi við Samorku. Á fundinum fjölluðu Johanne Marie Olaussen, sérfræðingur hjá Sambandi norskra sveitarfélaga (KS), og Elisabeth Lyngstad, sviðsstjóri fráveituhreinsunar hjá Norsk Vann, um fráveitutilskipun Evrópusambandsins frá norsku sjónarhorni. Umfjöllunin tengdist væntanlegri upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn og gaf innsýn í sjónarmið norskra sveitarfélaga og fráveitugeirans. Efni af fundinum aðgengilegt Hér að neðan má horfa á upptöku af fundinum í heild sinni og nálgast glærur frummælenda. Hér má finna glærur úr fyrirlestri Elisabeth Lyngstad, NorskVann. Samorka þakkar gestum og öðrum áhugasömum fyrir sýndan áhuga, frummælendum fyrir fróðleg erindi og VAFRÍS fyrir ánægjulegt samstarf við undirbúning og framkvæmd fundarins.
20. ágúst 2026 Innganga í ESB hefði óveruleg áhrif á íslenska orkulöggjöf Innganga Íslands í Evrópusambandið (ESB) myndi hafa óveruleg áhrif á orkulöggjöfina hér á landi þar sem Ísland er nú þegar aðili að henni að verulegu leyti í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Þetta kemur m.a. fram í nýrri álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum og fleira í ljósi reglna Evrópuréttar sem dr. Gunnar Þór Pétursson, dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson og dr. Margrét Einarsdóttir, prófessorar við Lagadeild Háskólans í Reykjavík, tóku saman að beiðni ríkisstjórnarinnar. Í álitsgerðinni er gerð grein fyrir ákvæðum sáttmála Evrópusambandsins um náttúruauðlindir og áhrifum á forræði aðildarríkja á náttúruauðlindum, samkvæmt fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins. Fjallað er um það svigrúm sem er fyrir hendi samkvæmt gildandi ESB-rétti til að taka tillit til mikilvægra þjóðarhagsmuna, sérkenna og sérstöðu aðildarríkja. Þá er fjallað um undanþágur sem aðildarríki hafa samið um, eftir því sem við á. Fjallað er sérstaklega um sjávarútvegsmál og orkumál. Ísland þegar aðili að orkulöggjöf ESB að mestu leyti Höfundar álitsgerðarinnar benda á að orkulöggjöf ESB falli undir gildissvið EES-samningsins að öðru leyti en að því er varðar álagningu orkuskatta. Í þeim málaflokki þurfi þó einróma samþykki fyrir setningu afleiddrar löggjafar. “Innganga Íslands í ESB myndi því hafa óveruleg áhrif á orkulöggjöfina hér á landi þar sem Ísland er nú þegar aðili að henni að öllu verulegu leyti,“ segir í álitsgerðinni. Þar kemur einnig fram að allir fyrri orkupakkar ESB hafi verið teknir upp í EES-samninginn og innleiddir í íslenskan rétt. Hreinorkupakkinn, svonefndur fjórði orkupakki, sé nú í upptökuferli á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar, þótt hluti hans hafi þegar verið tekinn upp í EES-samninginn. Yfirráð yfir orkuauðlindum áfram hjá aðildarríkjunum Í álitsgerðinni segir: „Meginmarkmið orkustefnu ESB er að koma á fót samkeppnishæfum innri markaði með orku, tryggja orkuöryggi og stuðla að sjálfbærni. Yfirráð yfir auðlindinni í hverju aðildarríki fyrir sig og ávinningur af henni er hins vegar í höndum aðildarríkjanna sjálfra. Þá hafa aðildarríkin val um það hvort orkuauðlindir þeirra séu í opinberri eigu eða einkaeigu.“ Aðildarríkjunum beri þó að fylgja reglum innri markaðarins, meðal annars um frjálst flæði vara, fólks, þjónustu og fjármagns, bann við mismunun og samkeppni. „Þetta þýðir t.d. að óheimilt er að mismuna íslenskum ríkisborgara og ríkisborgara frá öðru EES/EFTA-ríki eða ESB-ríki að því er varðar kaup einkaaðila á orkufyrirtækjum eða annars konar nýtingu orkuauðlinda hér á landi,“ segir í álitsgerðinni. ESB gæti ekki knúið Ísland til að leggja sæstreng Höfundarnir komast jafnframt að þeirri niðurstöðu að ESB hafi ekki heimild til að leggja samtengil, til dæmis sæstreng, milli Íslands og annarra aðildarríkja gegn vilja íslenskra stjórnvalda. Sambandið geti heldur ekki fyrirskipað að Ísland leggi slíkan samtengil til að tengjast innri raforkumarkaði þess. Engin afleidd löggjöf hafi enda verið sett sem feli í sér slíka skyldu. Þrátt fyrir takmarkaðar valdheimildir að þessu leyti sé þó ljóst að ESB hafi áhuga á samtengingu orkumarkaða með það að markmiði að tryggja orkuöryggi aðildarríkjanna. „Meginreglan um samstöðu í orkumálum (e. energy solidarity) fékk aukið vægi í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu með tilheyrandi orkukreppu í Evrópu,“ segir í álitsgerðinni. Þar er einnig bent á að Ísland hafi fengið undanþágur frá ákveðnum gerðum eða hluta þeirra á grundvelli EES-samningsins. Undanþágurnar byggist á einstakri stöðu Íslands á sviði orkumála, sem yrði haldið á lofti ef til aðildarviðræðna kæmi, samkvæmt áliti meiri hluta utanríkismálanefndar frá árinu 2026. Hægt er að lesa fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins og álitsgerðina í heild sinni hér: https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=a5cecc29-9bcb-11f1-b8a9-005056bcde1f