Vel sóttur morgunverðarfundur VAFRÍS og Samorku

Morgunverðarfundurinn „Fráveitutilskipun ESB -séð frá Noregi“ var vel sóttur en hann fór fram í Húsi atvinnulífsins 25. ágúst. Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) boðaði til fundarins í samstarfi við Samorku.

Á fundinum fjölluðu Johanne Marie Olaussen, sérfræðingur hjá Sambandi norskra sveitarfélaga (KS), og Elisabeth Lyngstad, sviðsstjóri fráveituhreinsunar hjá Norsk Vann, um fráveitutilskipun Evrópusambandsins frá norsku sjónarhorni. Umfjöllunin tengdist væntanlegri upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn og gaf innsýn í sjónarmið norskra sveitarfélaga og fráveitugeirans.

Efni af fundinum aðgengilegt

Hér að neðan má horfa á upptöku af fundinum í heild sinni og nálgast glærur frummælenda.

Hér má finna glærur úr fyrirlestri Elisabeth Lyngstad, NorskVann.

Samorka þakkar gestum og öðrum áhugasömum fyrir sýndan áhuga, frummælendum fyrir fróðleg erindi og VAFRÍS fyrir ánægjulegt samstarf við undirbúning og framkvæmd fundarins.