18. nóvember 2026 Stofnfundur Áfallaráðs Samorku Samorka boðar til stofnfundar Áfallaráðs föstudaginn 27. nóvember n.k. í fundarherberginu Hóli, Húsi atvinnulífsins, frá klukkan 10:00-12.30. Tilgangur ráðsins er að efla samstarf og þekkingu íslenskra orku- og veitufyrirtækja á áfallaþoli og innviðavernd. Það á að vera vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og sameiginlega hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum og fleirum. Ráðinu er einnig ætlað að vakta og hafa áhrif á innlenda löggjöf og reglur á þessu sviði auk þess að fylgjast með þróun á alþjóðavettvangi. Dagskrá fundarins: Samkeppnisréttarárétting Aðdragandi stofnunar Áfallaráðs Erindisbréf og verkefni ráðsins Frumvarp um almannavarnir og um einföldun reglna og flýtingu uppbyggingar – öryggi, upplýsingar og aðgangssvæði hjá raforkufyrirtækjum Alþjóðleg þróun – Norrænt samstarf – stefnumótun ESB – viðmið NATO. Næstu skref – þ.á.m. tillaga um fulltrúa sem sitja í ráðinu – allt að 10 talsins. Fundurinn er fyrst og fremst ætlaður þeim starfsmönnum aðildarfyrirtækja Samorku sem bera ábyrgð á áfallaþoli, innviðavernd og öryggi (security). Þeir sem áhuga hafa á að sitja í ráðinu eru hvattir til að láta vita af því fyrir fundinn með því að senda tölvupóst á eftirfarandi: Sveinn Helgason sveinn@samorka.is, Pétur Krogh Ólafsson, Petur.Krogh.Olafsson@veitur.is og Finnur Beck finnur@samorka.is Nánari upplýsingar um fundinn, skráningu og til að taka þátt á Teams er að finna hér: Stofnfundur Áfallaráðs Samorku: Stofnfundur Áfallaráðs Samorku