Leiðtogar ESB lögðu áherslu á orkuskiptin á Brusselfundi

Leiðtogar Evrópusambandsins lögðu á það áherslu á fundi sinum í Brussel þann 15.-16. október s.l. að orkuskipti séu lykillinn að því að tryggja pólitískt og efnahagslegt sjálfræði Evrópu (strategic autonomy), aukið áfallaþol og markvissa lækkun orkuverðs. Endurnýjanlegir og hreinir orkugjafar, framleiddir á heimavelli, efli orkusjálfstæði enda verði Evrópubúar þá betur í stakk búnir að bregðast við sveiflum á heimsmarkaðsverði á jarðefnaeldsneyti.

Til að knýja áfram hagkerfi framtíðarinnar töldu leiðtogarnir mikilvægt að hraða rafvæðingu, byggja upp flutningskerfi, geymslurými fyrir orku og auka orkunýtni.  Lækkun orkuverðs er eitt af forgangsmálum Evrópusambandsins til að styrkja samkeppnihæfni atvinnulífs í Evrópu. Það endurspeglaðist í umræðum leiðtoganna sem undirstrikuðu nauðsyn þess að ljuka við umfangsmikla lagasetningu og stefnumótun á borð við Iðnaðarhraðallinn (Industrial Accelerator Act) og European Grids Package sem snýst um stórfellda uppbyggingu flutningskerfis raforku, m.a. með því að einfalda og hraða leyfisveitingum.

Leiðtogarnir eyddu einnig töluverðum tíma í umræður um ETS-kerfið svokallaða – viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir sem Ísland fellur einnig undir. Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu um endurskoðun ETS en innan aðildarríkja ESB hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um kerfið. Samorka er meðal fjölda Evrópu- og landssambanda í græna orkugeiranum sem skrifuðu undir bréf til Antonio Costa, forseta leiðtogaráðs ESB um að standa vörð um kjarna ETS-kerfisins, m.a. í ljósi þess að frá 2005 hafi losun í geirum sem falla undir ETS minnkað um 50%. Í bréfinu var lögð rík áhersla á að tekjum af sölu losunarheimilda verði varið í verkefni sem snúast um orkuskipti og þar með aukna notkun endurnýjanlegra orku í atvinnulífinu.

Hér er hægt að lesa yfirlýsingu leiðtogafundar ESB

https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2026/10/16/european-council-conclusions-on-competitiveness-the-next-multiannual-financial-framework-and-enlargement-and-reforms

Sjá hér að neðan bréf til forystu ESB um ETS kerfið frá fjölda sambanda í græna orkugeiranum í Evrópu. Samorka var meðal þeirra sem skrifuðu undir bréfið.

https://www.eurelectric.org/wp-content/uploads/2026/10/20261014-Joint-letter-on-the-EU-ETS.pdf?mc_cid=2c93c5c9e4&mc_eid=d7cc4cc1b9: Leiðtogar ESB lögðu áherslu á orkuskiptin á Brusselfundi