10. nóvember 2026 Orku- og veitustarfsemi í lykil hlutverki samkvæmt nýrri skýrslu um innviði á Reykjanesskaga Framleiðsla, flutningur og dreifing á orku, neysluvatn, vatnsöflun og fráveita eru allt mjög mikilvægir innviðir á Reykjanesskaga, samkvæmt nýrri áfangaskýrslu starfshóps innviðaráðherra. Hópnum er ætlað að greina, meta og flokka mikilvæga innviði í þessum landshluta og leggja til hvernig forgangsraða eigi mótvægisaðgerðum vegna ógna af völdum náttúruvár. Eldgosahrinan við Sundhnúkagíga, austan við Svartsengi og norðan við Grindavík, sem hófst í desember 2023 hefur valdið tjóni á lykil innviðum og kallað á umfangsmiklar aðgerðir til að verja mannvirki og aðra innviði gegn náttúruhamförum. Svartsengisvirkjun og framleiðsla á heitu vatni eru dæmi um mjög mikilvæga innviði á Reykjanesskaga og sama gildir um lykiltengivirki og meginflutningsleiðir raforku til og frá Suðurnesjum, m.a. tengivirki á Fitjum og í Hamranesi ásamt Suðurnesjalínu 1 og 2. Megininnviðir hitaveitu frá Svartsengi, þ.m.t. stofnkerfi, Njarðvíkuræð og lykilmiðlun falla líka undir skilgreiningu á mjög mikilvægum innviðum. Veruleg röskun á rekstri þeirra getur haft mjög alvarleg áhrif á skömmum tíma og takmarkaðir möguleikar eru á viðhalda sambærilegri þjónustu eftir öðrum leiðum. Skýrsluhöfundar benda á að mögulegir veikleikar innviðakerfisisins felist ekki eingöngu í ákveðnum mannvirkjum. Þeir geti líka verið til staðar í þjónustu- eða aðfangakeðjum, takmörkuðum varalausnum og því hvernig mismunandi kerfi eru háð hvort öðru. Fjarskiptakerfi þurfa t.d. raforku til að virka en raforkukerfi nýta líka fjarskipti til stjórnunar og vöktunar. Þetta skiptir máli við að meta kerfislægt áfallaþol. Í skýrslunni er bent á að náttúruvá geti haft keðjuverkandi áhrif á innviði og þau magnast eftir því sem þjónusta liggur lengur niðri. Raforka, fjarskipti og samgöngur gegna þar sérstöku hlutverki þar sem röskun þeirra getur bæði haft bein áhrif og torveldað rekstur, viðbrögð og endurheimt annarra kerfa. Næsta skref í þessu verkefni er að skilgreina og meta mótvægisaðgerðir, með hliðsjón af kostnaði, ávinningi, hvernig hægt sé að hrinda þeim í framkvæmd og líkur á að þær dragi úr áhættu fyrir samfélagið. Á þessum grunni verði hægt að forgangsraða aðgerðum eða tvinna þær saman til að styrkja áfallaþol samfélaganna á Reykjanesskaga til lengri tíma. Starfshópurinn hefur þegar átt samráð við sveitarfélög, opinberar stofnanir og rekstraraðila mikilvægra innviða á svæðinu og fyrir höndum er frekara samráð. Í hópnum áttu sæti fulltrúar innviðaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Hér er hægt að lesa skýrsluna í heild sinni: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-09-starfshopur-um-mikilvaega-innvidi-a-reykjanesskaga-skilar-afangaskyrslu