Orku- og veitugeirinn sterkur í jafnréttismálum

Fjölmörg aðildarfélög Samorku voru á meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í vikunni fyrir að hafa náð jafnvægi í kynjahlutföllum í efsta lagi stjórnunar.

Alls hlutu 26 aðilar innan Samorku viðurkenningu, þar á meðal orku- og veitufyrirtæki, sveitarfélög og fyrirtæki sem tengjast orku- og veitugeiranum.

HS Orka, Landsnet, Landsvirkjun, Norðurorka, Orkusalan, Orkuveitan, RARIK og Veitur hlutu öll viðurkenningu auk aukaaðilanna atNorth, COWI, EFLA, ÍSOR, Norðurál, Rafal og Verkís. Þá hlutu sveitarfélögin Fjallabyggðar, Garðabær, Húnabyggð, Húnaþing vestra, Mosfellsbær, Rangárþing eystra, Árborg og Ölfus. Isavia er jafnframt meðal viðurkenningarhafa.

Orkugeirinn til fyrirmyndar

Í viðtali við Viðskiptablaðið nefnir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarinnar, orkugeirann sérstaklega sem dæmi um atvinnugrein sem hefur náð góðum árangri í jafnréttismálum. Samkvæmt Félagi kvenna í orkumálum náðist kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum níu stærstu bakhjarla félagsins í lok árs 2025.

Erla Ósk bendir sérstaklega á Orkuveituna sem dæmi um fyrirtæki sem hafi unnið lengi og markvisst að jafnréttismálum og miðli nú reynslu sinni í samstarfi við Jafnvægisvogina.

„Ég vil að við lærum af slíkum fyrirmyndum. Þótt kynjahlutföll starfsfólks séu ólík eftir atvinnugreinum hefur hvert fyrirtæki svigrúm til að leita víðar að hæfileikum og undirbúa fleira fólk fyrir stjórnunarhlutverk,“ segir Erla Ósk í viðtalinu.

Samorka óskar öllum viðurkenningarhöfum innilega til hamingju með árangurinn!