Evrópuþingmenn þrýsta á framkvæmdastjórn ESB að efla nýtingu jarðhita

Hópur þingmanna á Evrópuþinginu hefur þrýst á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að leggja fram sérstaka aðgerðaáætlun um nýtingu jarðhita. Forseti Framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen hefur bent á stefnumótun og fyrirhugaðar aðgerðir til að efla jarðhitanýtingu  en hinsvegar bólar enn ekki á sjálfstæðri aðgerðaáætlun.

Þingmennirnir skrifuðu forseta framkvæmdastjórnarinnar Ursulu von der Leyen í vor og rifjuðu upp að á Evrópuþinginu væri mikill pólitískur stuðningur við aukna nýtingu jarðhita. Áskoranir sem ESB stæði frammi fyrir í alþjóðlegu efnahags- og öryggisumhverfi kölluðu líka á skýrar aðgerðir til að jarðhiti yrði lykil orkugjafi og því væri tímabært að framkvæmdastjórnin birti sérstaka aðgerðaáætlun í samræmi við óskir Evrópuþingsins og orkumálaráðherra ESB. Þingmennirnir sögðu að samkvæmt sínum upplýsingum væri þegar búið að skrifa drög að þessari áætlun en með birtingu hennar væru send skýr skilaboð til fjárfesta, fyrirtækja og neytenda.

Ursula von der Leyen svaraði bréfi þingmannanna nú í byrjun október og sagði að stuðningur þingmannanna við aukna nýtingu jarðhita væri í samræmi við markmið framkvæmdastjórnarinnar um orkuöryggi, hagstætt orkuverð og orkuskipti.  Forseti framkvæmdastjórnarinnar minnti á AccelerateEU yfirlýsingu ESB sem birt var fyrr á árinu en þar er að finna áherslur til að hraða nýtingu jarðhita og ryðja úr vegi hindrunum á því sviði. Þá gat von der Leyen um rafvæðingaráætlun ESB, (Electrification  Action Plan) sem birt var í sumar og dregur fram sóknarfæri í nýtingu jarðhita til orkuöflunar. Hún benti á að í rafvæðingaráætluninni væri einnig greint frá því fyrirhuguðum samráðsvettvangi „European Geothermal Stakeholder Partnership“ (GSP) sem framkvæmdastjórnin hyggst koma á fót ekki síðar en á fyrsta ársfjórðungi 2027. GSP  á að vera vettvangur til að safna saman sérfræðingum á þessu svið. Viðfangefni þeirra verði m.a. hvernig best sé að  halda utan um rannsóknargögn, móta stefnu í einstökum ríkjum um nýtingu jarðhita, koma á  árangursríkum vinnubrögðum í leyfisveitingum og fjármögnun, efla sérfræðikunnáttu og ná víðtækri samfélagslegri sátt um nýtingu jarðhita.

Samorka fylgist grannt með þessari þróun og hefur upplýst lykil aðildarfyrirtæki um það sem efst er á baugi hverju sinni.  Ísland er í fremstu röð í nýtingu jarðhita og fyrirtæki innan vébanda Samorku hafa komið á framfæri sjónarmiðum sínum, bæði við EGEC, evrópsku jarðhitasamtökin og einnig við framkvæmdastjórn ESB með milligöngu Evrópuskrifstofu Samorku í Brussel.  Vonir eru bundnar við „Geothermal Stakeholder Partnership“ en eftir stendur að framkvæmdastjórnin þarf að birta sem fyrst sérstaka aðgerðaáætlun um nýtingu jarðhita sem tekur m.a. mið af þekkingu og reynslu við nýtingu jarðhita hér á landi. Embættismenn hjá framkvæmdastjórninni hafa staðfest við fulltrúa EGEC að áætlunin væri enn á stefnuskránni en betur má ef duga skal.