Elma gengur til liðs við Samorku: „Mikilvægt að vera við borðið“

Elma orkuviðskipti bættist nýverið í hóp aðildarfyrirtækja Samorku og er ánægjuleg viðbót við fjölbreyttan hóp fyrirtækja innan samtakanna. Samorka leggur áherslu á að vera breið og öflug hagsmunasamtök orku- og veitufyrirtækja, þar sem ólík þekking, reynsla og sjónarhorn koma saman. Fjölbreytt aðild styrkir samtökin og skapar enn betri grundvöll fyrir samtal og samstarf um orku- og veituinnviði landsins.

En hvað gerir Elma og hvaða hlutverki gegnir fyrirtækið á íslenskum raforkumarkaði? Við fengum Katrínu Olgu Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Elmu orkuviðskipta, til að segja okkur nánar frá starfseminni, tilurð fyrirtækisins og þeirri þróun sem nú á sér stað á íslenskum raforkumarkaði.

Mikilvægur innviður í íslenska orkukerfinu

„Elma er viðskiptavettvangur með raforku og mikilvægur hlekkur í íslenska orkukerfinu. Við rekum næsta-dags markað og innandagsmarkað í samstarfi við Nord Pool, raforkumarkaðinn auk þess sem við bjóðum upp á vettvang fyrir lengri viðskipti og uppboð,“ Segir Katrín Olga og bætir við að hlutverk Elmu sé í raun tvíþætt.

„Annars vegar erum við markaðsvettvangur þar sem kaupendur og seljendur raforku geta átt viðskipti á gagnsæjan og hlutlausan hátt og verð myndast út frá framboði og eftirspurn. Þar geta markaðsaðilar keypt og selt raforku til að mæta þörfum sínum, nýtt tækifæri á markaði og brugðist við breytingum í framboði og eftirspurn.

Hins vegar gegnir markaðurinn mikilvægu kerfislegu hlutverki. Skammtímamarkaður gerir markaðsaðilum kleift að bregðast við breyttum aðstæðum nær afhendingu og dregur úr því að jöfnunarorkumarkaðurinn sé nýttur sem almennur viðskiptamarkaður. Um leið gefur verðmyndunin mikilvægar upplýsingar um stöðu kerfisins hverju sinni – hvort þar sé gnótt eða skortur – og styður þannig við betri nýtingu orkunnar, meiri sveigjanleika og öruggari rekstur raforkukerfisins.“

Elma er því ekki bara vettvangur fyrir viðskipti heldur hluti af þeim innviðum sem stuðla að betri nýtingu orkunnar, auknu orkuöryggi og sterkara raforkukerfi.

„Einhvern tímann þarf einfaldlega að stökkva“

Katrín Olga segir að sú hugmynd að koma á fót skipulögðum raforkumarkaði á Íslandi hafði verið til skoðunar frá árinu 2008. Margar skýrslur hafi verið unnar, málið rætt frá ýmsum hliðum og mismunandi útfærslur skoðaðar.

„En einhvern tímann þarf einfaldlega að stökkva og taka skrefið. Það er líklega aldrei hægt að finna hinn fullkomna tímapunkt til að hefja nýjan markað. Markaðurinn þarf að fá að þróast, þátttakendur þurfa að læra á hann og traust og seljanleiki byggjast upp með tímanum.“

Hún segir að þörfin hafi verið, að þeirra mati mjög skýr. „Áður en Elma kom til sögunnar var jöfnunarorkumarkaðurinn oft nýttur sem eins konar skammtímamarkaður, en það er ekki hlutverk hans. Jöfnunarorkumarkaðurinn á fyrst og fremst að vera síðasta úrræði kerfisins til að halda jafnvægi milli framleiðslu og notkunar.

Með tilkomu Elmu hafi orðið til skipulagður skammtímamarkaður þar sem kaupendur og seljendur geti átt viðskipti með raforku nær afhendingu. „Það skapar bæði markaðslega og kerfislega virkni sem áður vantaði.“

Þá sé málið beintengt orkuöryggi. „Með betri nýtingu þeirrar orku sem þegar er til staðar, meiri sveigjanleika og skýrari verðmerkjum getum við bæði aukið orkuöryggi og styrkt kerfislegt öryggi,“ segir Katrín Olga.

Byggja á norrænni reynslu en íslenskum aðstæðum

Strax í upphafi ákvað teymi Elmu að reyna ekki að byggja allt sjálf frá grunni heldur tengjast öflugum erlendum aðila, bæði tæknilega og þekkingarlega. Fyrir valinu varð Nord Pool, sem hefur rekið skipulagða raforkumarkaði á Norðurlöndum frá árinu 1992.

„Með því að velja þekkt og reynt norrænt viðskiptakerfi teljum við okkur geta boðið eins öruggan viðskiptavettvang og völ er á, bæði með tilliti til netöryggis og rekstraröryggis. Jafnframt er vettvangurinn notendavænn fyrir markaðsaðila.“

Katrín Olga segir samstarfið við Nord Pool þó ekki snúast eingöngu um tæknilegan rekstur. „Nord Pool rekur markaðinn fyrir okkur frá Osló, en ekki síður er mikilvæg sú þekking og reynsla sem fylgir samstarfinu. Við fáum aðgang að áratuga reynslu af rekstri raforkumarkaða, markaðshönnun, uppgjöri og þróun markaða. Það hefur skipt okkur miklu máli að íslenski markaðurinn byggi frá fyrsta degi á traustum og reyndum innviðum.“

Hún bendir á að sérstaða Elmu felist líka í því hvernig viðskiptin eru byggð upp. „Elma er miðlægur mótaðili í viðskiptunum, það er kaupandi gagnvart hverjum seljanda og seljandi gagnvart hverjum kaupanda. Með því tökum við mótaðilaáhættuna út úr viðskiptunum. Markaðsaðilar þurfa því ekki að meta lánshæfi eða greiðslugetu hvers annars áður en viðskipti fara fram, heldur treysta á sameiginlega umgjörð, reglur og uppgjör Elmu.“

Jafnframt séu viðskiptin nafnlaus og fari fram eftir sömu reglum fyrir alla. „Enginn markaðsaðili sér hver stendur hinum megin við viðskiptin og það styður bæði jafnræði og samkeppni. Verðmyndunin byggir þannig á framboði og eftirspurn en ekki á því hverjir aðilarnir eru.“

Skammtímamarkaður getur stutt við nýsköpun og orkuskipti

Hjá Elmu hefur verið lögð áhersla á að íslenski markaðurinn þurfi að þróast út frá íslenskum aðstæðum. „Þar er staðan að mörgu leyti öfug við það sem við sjáum víða í

Evrópu,“ segir Katrín Olga og bendir á að evrópskir raforkumarkaðir séu mjög sterkir á skammtímahliðinni og áhersla hafi verið á að efla langtímasamninga. „Á Íslandi er hins vegar mjög stór hluti raforkunnar þegar seldur með langtímasamningum. Verkefnið hér er því fremur að auka vægi skammtímamarkaða og skapa virkari tengingu milli framboðs, eftirspurnar og raunverulegrar stöðu kerfisins hverju sinni.“

Hún segir það ekki síður skipta máli til framtíðar. „Virkur skammtímamarkaður er að mínu mati forsenda frekari nýsköpunar og þróunar í orkukerfinu og þar með orkuskipta. Ef við ætlum að nýta í meira mæli sveigjanlega orkugjafa eins og vind- og sólarorku þarf að vera markaður þar sem hægt er að bregðast hratt við breytingum í framleiðslu og eftirspurn.“

Þá eigi það sama við um nýjar lausnir, „-eins og rafhlöðugeymslur, nýtingu glatvarma, eftirspurnarsvörun og aðra tækni sem getur aukið sveigjanleika og nýtingu kerfisins.“ Slíkar lausnir þurfi bæði verðmerki og markað þar sem þær geta sýnt fram á verðmæti sitt.

„Þess vegna lítum við ekki á Elmu eingöngu sem viðskiptavettvang. Elma er hluti af þeim grunninnviðum sem þarf ef íslenska orkukerfið á að halda áfram að þróast, styðja við nýsköpun og mæta orkuskiptum næstu ára.“

Næsta verkefni að auka seljanleika

Sé litið til framtíðar segir Katrín Olga stóra verkefnið vera að auka seljanleikann á markaðinum.

„Við höfum lagt mikla vinnu í að greina hvað þarf til þess og erum nú að vinna að nokkrum málum sem við teljum geta haft áhrif. Sumt af því er innan okkar eigin áhrifasviðs og þar getum við sjálf tekið frumkvæði.“

Önnur atriði, segir hún, að kalli hins vegar á þátttöku fleiri aðila og í sumum tilvikum stuðnings stjórnvalda. „Ef við ætlum að byggja upp virkan og öflugan skammtímamarkað þarf markaðurinn í heild að sjá verðmætið í því og nægt magn þarf að fara í gegnum hann.“

Þetta sé eðlilegt næsta skref í þróuninni. „Fyrst þurfti að byggja innviðina og koma mörkuðunum af stað. Nú þurfum við að tryggja að markaðurinn verði nægilega virkur til að verða sterkur verðmyndunarvettvangur og raunverulegt verkfæri fyrir markaðsaðila og raforkukerfið.

Við teljum það mjög mikilvægt fyrir íslenska raforkukerfið. Virkur markaður segir okkur hvar við stöndum. Hann gefur merki um skort eða gnótt, auðveldar aðlögun að breytingum í framleiðslu og eftirspurn og stuðlar að því að orkan nýtist betur.“

„Það skiptir máli að vera við borðið“

Katrín Olga segir hennar eigin reynslu spila ákveðið hlutverk þegar kom að þeirri ákvörðun Elmu að gerast aðildarfyrirtæki Samorku. „Ég var formaður Viðskiptaráðs Íslands í nokkur ár og þekki því vel þá vinnu sem fer fram innan hagsmunasamtaka. Mín reynsla er sú að það skiptir miklu máli að vera við borðið en ekki standa fyrir utan.

Samorka er mikilvægur vettvangur fyrir íslenska orkugeirann og mörg af þeim viðfangsefnum sem þar eru rædd hafa bein áhrif á þróun raforkumarkaðarins. Þar eru framleiðendur, sölufyrirtæki og aðrir lykilaðilar greinarinnar saman komnir og það skiptir okkur máli að taka þátt í því samtali.“

Hún bendir á að Elma orkuviðskipti komi með sitt eigið sjónarhorn, sjónarhorn markaðarins. „En við viljum jafnframt hlusta og læra af öðrum. Ég tel að stór verkefni í orkumálum verði best leyst með samtali og samstarfi ólíkra aðila.

Við vonum því að aðildin að Samorku geri okkur kleift að taka virkari þátt í umræðu um framtíð íslenska orkukerfisins, miðla okkar þekkingu og sjónarmiðum og jafnframt byggja upp enn sterkari tengsl við aðra aðila í greininni,“ segir Katrín Olga að lokum.

Samorka fagnar því að fá Elmu orkuviðskipti til liðs við samtökin og býður fyrirtækið hjartanlega velkomið í hópinn.