ESB setur rafvæðingu á oddinn í nýrri aðgerðaáætlun

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur birt „Aðgerðaáætlun um rafvæðingu“ (Electrification Action Plan) þar sem stefnan hefur verið sett á að auka hlut raforku í endanlegri orkunotkun ESB úr um 23% í dag í 46% árið 2040. Hraða þurfi rafvæðingu í orkufrekum geirum samfélagsins, s.s. iðnaði, samgöngum og byggingum. Markmiðið er ekki bindandi en sýnir þó glögglega framtíðarsýn ESB og verður hluti af vinnu við heildar stefnumótun um orkukerfi sambandsins á komandi áratug. (Energy Union Package.)

Aðildarríki ESB hafa mörg hver mjög verið háð innfluttu jarðefnaeldsneyti en náíst 2040 markmiðið um rafvæðingu telur framkvæmdastjórnin að hægt sé að lækka kostnað við þann innflutning um 260 milljarða Evra árlega.  Rafvæðing hafi líka í för með sér verulegan ávinning fyrir efnahagslíf ESB-ríkjanna, bæði fyrirtæki og einstaklinga, með lægra orkuverði, aukinni samkeppnishæfni, meira orkuöryggi og áfallaþoli. Þá sé hægt að minnka kolefnislosun verulega. Lykilatriði sé að gera raforku samkeppnishæfari í verði gagnvart gasi, m.a. með því að lækka skatta og gjöld á raforku, rafbíla og tækni sem notar rafmagn. Raforka eigi ekki að bera hlutfallslega meiri álögur en jarðefnaeldsneyti. Þá hyggst Evrópusambandið einnig smátt og smátt hætta niðurgreiðslum á  jarðefnaeldsneyti, t.d. á gasi, en þær hafa verið umtalsverðar.

„Besta leiðin til að gera Evrópu minna háða jarðefnaeldsneyti er að knýja efnahagslíf okkar áfram með rafmagni úr okkar eigin hreinu orkugjöfum  Við leggjum þessa vegna til að Evrópa verði fyrsta rafmagnsknúna heimsálfan,“ er haft eftir Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í fréttatilkynningu. Meðal þessara orkulinda er jarðhiti og um hann er fjallað í aðgerðaáætluninni Framkvæmdastjórnin skilgreinir jarðhita sem vannýtta auðlind sem gæti, með réttu regluverki, staðið undir að minnsta kosti 10% af raforkuþörf Evrópu og 25% af hita- og kæliþörf. Íslensk orkufyrirtæki eru í fararbroddi í nýtingu jarðhita sem leggur til um 30% af því rafmagni sem framleitt er hér á landi, auk þess að hita upp íslensk heimili og fyrirtæki.  Þessi áhersla gæti því falið í sér sóknarfæri í Evrópu fyrir íslenska orkugeirann og almennt að auka rafvæðingu með endurnýjanlegum orkugjöfum þar sem Íslendingar eru á heimavelli.

Aðgerðaáætlun ESB um rafvæðingu er umfangsmikil og fjallar einnig um nauðsyn þess að auka sveigjanleika og flutningsgetu raforkukerfisins. Þannig þurfi t.d. að stytta bið eftir því að tengjast flutningskerfinu auk þess að ráðast í fleiri úrbætur.

Hlekkur á fréttatilkynningu Framkvæmdastjórnarinnar er hér að neðan þar sem einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar.

Commission boosts Europe’s competitiveness, decarbonisation and independence: ESB setur rafvæðingu á oddinn í nýrri aðgerðaáætlun

Írland tekur við forsæti í Ráðherraráði ESB til áramóta

Írland tekur við forsæti í Ráðherraráði Evrópusambandsins (e. Council of the European Union) í dag 1. júlí og heldur um stjórnartaumana næstu sex mánuði, eða fram að áramótum. Kýpur hefur verið í forsæti fyrri hluta ársins. Ráðherraráðið (Ráðið) er ein af lykilstofnunum Evrópusambandsins. Þar koma saman fagráðherrar aðildarríkjanna í mismunandi málaflokkum til að móta sameiginlega stefnu ESB. Ráðið fer með löggjafarvald sambandsins ásamt Evrópuþinginu.

Írar setja þrjú málefnasvið á oddinn í forsætistíð sinni – samkeppnishæfni, gildi og öryggi. „Þessi þrjú forgangsmál endurspegla okkar metnað fyrir hönd Evrópu – að skapa tækifæri, vernda borgara og að við séum trú okkar grundvallargildum,“ sagði Helen McEntee  utanríkisráðherra Írlands, þegar stjórnvöld í Dublin lögðu línurnar fyrir næstu sex mánuði. Í áherslum um samkeppnihæfni líta Írar m.a. til Draghi skýrslunnar svokölluðu frá 2024 sem fjallar um samkeppnishæfni Evrópu til framtíðar en aðalhöfundur hennar er Mario Draghi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og forseti Seðlabanka Evrópu. Í öryggismálum leggja Írar t.d. áherslu á áframhaldandi stuðning við Úkraínu og þegar kemur að gildum telja írsk stjórnvöld mikilvægt að standa vörð um mannréttindi og alþjóðlega samvinnu. Þau leggja líka áherslu á að fjölga aðildarríkjum ESB sem eru nú 27 talsins. Þá mun fara mikil orka í að stuðla að samkomulagi um langtímafjárlagaramma ESB, frá 2028-2034.  (Multiannual Financial Framework). Aðildarríkin takast þar á um forgangsröðun viðfangsefna, ekki síst framlög til landbúnaðarmála sem eru stór hluti af útgjöldum ESB.

Írland leggur einnig þunga áherslu á uppbyggingu flutnings- og dreifikerfis fyrir orku í álfunni eða „EU Grids Package.“ Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti þann pakka 10. desember  2025, orkumálaráðherrar ESB komu sér saman um afstöðu til hans 26. júní s.l. og Evrópuþingið er með meðferðar þær breytingar sem lagðar eru til í þessari viðamiklu stefnumótun og lagasetningu. Írar vilja að „EU Grids Package“ verði afgreiddur áður þeir hverfa úr forsæti ráðherraráðsins en fyrrnefndar þrjár stofnanir ESB þurfa þá að ná saman um lokaútgáfu „EU Grids Package“ fyrir áramót í þríhliða samningaviðræðum.

Í orkumálum leggja stjórnvöld í Dublin áherslu á samtvinnað og öruggt orkukerfi þar sem í boði sé næg sjálfbær orku á hagstæðu verði. Metnaðarfull stefnumörkun í loftslagsmálum til ársins 2050 er einnig mikilvæg að mati Íra en að sama skapi þurfi að tryggja samkeppnishæfni og efnahagslega seiglu. Evrópa eigi að verða fyrsta „raforkuálfan.“

Sjá nánar um Ráðherraráð Evrópusambandsins, forsæti þess og helstu áherslur Íra:

https://ireland.representation.ec.europa.eu/irelands-presidency-council-european-union_en: Írland tekur við forsæti í Ráðherraráði ESB til áramóta https://www.gov.ie/en/department-of-foreign-affairs/press-releases/minister-mcentee-sets-out-irelands-priorities-for-eu-presidency/: Írland tekur við forsæti í Ráðherraráði ESB til áramóta https://www.ireland.ie/en/eu/eu_presidency/: Írland tekur við forsæti í Ráðherraráði ESB til áramóta https://www.delorscentre.eu/en/about/news/detail/content/eu-energy-policy-under-the-irish-council-presidency: Írland tekur við forsæti í Ráðherraráði ESB til áramóta

Endurnýjun vatnsinnviða í Evrópu brýn og kostnaðarsöm

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu EurEau, samtaka vatnsveitna og fráveitna í 33 Evrópulöndum. Samorka er meðal aðildarfélaga EurEau sem hefur nú sent frá sér „Europe‘s Water in Figures.“ Það er árleg skýrsla með myndrænu talnaefni sem bregður ljósi á þennan mikilvæga geira í álfunni og dregur fram stöðuna í hverju landi í samanburði við önnur.

Um 97% af íbúum Evrópu fá drykkjarvatn sitt frá vatnsveitu og um 90% þeirra njóta ávinnings af starfsemi fráveitna. Heimili í Evrópu eyða þó einungis um 1% af sínum tekjum í útgjöld vegna þessarar þjónustu. Vatnsgeirinn þarf síðan stöðugt að mæta nýjum kröfum, innviðir eru víða að eldast og stjórnendur vatns- og fráveitna hafa líka alltaf metnað til að gera betur. Það er því mikil þörf fyrir fjárfestingar og í raun má ætla að árlega vanti þar upp á um 23 milljarða Evra.

Gnægð af hreinu og góðu vatni er ein helsta auðlind Íslands. Aðildarfyrirtæki Samorku eru stolt af því að veita þessa grunnþjónustu þannig að við fáum alltaf gæða drykkjarvatn úr krananum og atvinnulífið geti treyst á nægt vatn til sinna þarfa. Veitufyrirtæki gera sér lika grein fyrir mikilvægi þess að vernda þessa auðlind og styrkja t.d. áfallaþol. Þá hefur Evrópusambandið hefur sett fram stefnu um viðnámsþrótt í vatnsgeiranum „Water Resilence Strategy.“

Það eru einnig miklar áskoranir og tugmilljarða fjárfestingar framundan í fráveitumálum hér á landi, bæði til að fara að núgildandi reglum og til að mæta kröfum nýrrar fráveitutilskipunar Evrópusambandsins.  Lokamálstofa Samorku á fagþingi samtakanna í maí var t.d. helguð þessu viðfangsefni. Í skýrslu EurEau, „Europe‘s Water in Figures,“ má glögglega sjá að Ísland þarf að gera betur í fráveitumálum þegar staðan hér er borin saman við önnur Evrópulönd og að því er unnið í samráði við stjórnvöld.

Sjá hlekkinn hér að neðan til að fræðast meira um skýrslu EurEau og lesa hana.

https://eureau.org/wp-content/uploads/2026/06/FINAL_Europes-Water-in-Figures-Report-2026.pdf

ESB opnar samráðsgátt um stafræna væðingu vatnsgeirans

Evrópusambandið hefur opnað samráðsgátt til að styðja við þróun aðgerðaáætlunar um stafræna væðingu vatnsgeirans, þ.á.m. að taka almennt upp snjallmæla. Áætlunin er í samræmi við stefnu ESB um viðnámsþrótt vatns og markmið hennar er að nútímavæða vatnsbúskap í gegnum nýsköpun sem byggist á traustri gagnasöfnun.

Aðgerðaáætlunin á að bæta nýtingu vatns, vernda hringrás þess og tryggja að allir hafi aðgang að hreinu vatni á hagstæðu verði, að því er segir í fréttatilkynningu. Styrkja á innviði í þessum geira og áætlunin er liður í að efla samkeppnishæfni ríkja innan Evrópusambandsins.

„Með þessari aðgerðaáætlun um stafræna væðingu vatnsgeirans viljum við leysa úr læðingi þann kraft sem býr í nýrri tækni og stafrænum lausnum. Þær hjálpar okkur að nýta vatnið betur, minnka leka og halda betur utan um innviði á þessu sviði,“ er haft eftir Jessiku Roswall, sem er yfir umhverfismálum og viðnámsþrótti vatns í framkvæmdastjórn ESB. „Ég hlakka til að sjá hugmyndir og framlag sérfræðinga, uppfinningafólks og haghafa til að styrkja þessa stafrænu væðingu,“ segir Roswall.

Með því að opna þessa samráðsgátt er Evrópusambandið t.d. að leita eftir því hvernig ný tækni, s.s. gervigreind getur bætt skilvirkni og áfallaþol innviða. Haghafar eru hvattir til að taka þátt og samráðgáttin er opin til 24. júní n.k. Fyrirtæki innan Samorku í vatnsgeiranum eru hvött til að skoða hvað þau geta lagt af mörkum en Samorka er einnig aðili að EurEau, samtökum vatnsgeirans í Evrópu.

Frekari upplýsingar um þessa aðgerðaáætlun ESB og hlekk á samráðsgáttina (Call for evidence) er að finna í hlekk hér að neðan.

Commission seeks input on digital action plan for water sector – Environment: ESB opnar samráðsgátt um stafræna væðingu vatnsgeirans

ESB leiðtogar leggja áherslu á orkuskipti sem lausn til framtíðar

Leiðtogafundur Evrópusambandsins í Brussel 19.-20. mars lagði áherslu á að orkuskipti væru lykillinn að sjálfræði Evrópu (strategic autonomy), auknu áfallaþoli, lægra orkuverði og meira framboði á hreinni, nægri orku úr heimahögum. Hún sé drifkrafturinn í  að knýja áfram efnahagslíf framtíðarinnar. Leiðtogar aðildarríkja ESB telja mikilvægt að hraða enn frekari nýtingu og útbreiðslu endurnýjanlegra orkugjafa og grípa til fleiri aðgerða til að Evrópa sé síður háð óstöðugum mörkuðum með jarðefnaeldsneyti. Með þessu móti verði orkuframboð líka öruggara.  

Þetta eru góðar fréttir fyrir íslenska orku- og veitugeirann og í samræmi við þau megin skilaboð sem Samorka og aðildarfyrirtækin halda á lofti í Brussel og víðar erlendis. Orkusjálfstæði Íslands stendur styrkari fótum en ella vegna þess að við búum að hreinum og áreiðanlegum orkugjöfum  sem árið 2024 mættu 83.6% af orkuþörf íslensks samfélags samkvæmt tölum Eurostat. Ísland er langefst Evrópulanda í þessu efni. Afgangurinn, eða rúmlega 16% af framboði orku hér á landi, er því innflutt, s.s. olía fyrir samgöngur, skip og flugvélar. Í þeim ólgusjó sem nú geisar í alþjóðamálum, ekki síst á orkumörkuðum heimsins, er þetta þjóðaröryggismál. Hætt er við að öldurnar muni ekki lægja í bráð og það er enn frekari hvatning til að ljúka orkuskiptum og efla samkeppnishæfni Íslands með innlendri grænni orku á hagstæðu verði.

Leiðtogar ESB hvöttu einnig framkvæmdastjórn sambandsins til að leggja tafarlaust fram „verkfærakassa“ með markvissum og tímabundnum aðgerðum til að takast á við nýlegar verðhækkanir á innfluttu jarðefnaeldsneyti. Þeir kölluðu líka eftir brýnum, markvissum aðgerðum til að lækka raforkuverð og minnka óhóflegar skammtímasveiflur, m.a. fyrir orkufrekan iðnað og hafa þá í huga ólíkar aðstæður aðildarríkjanna.

Framkvæmdastjórn ESB var einnig hvött til að vinna náið með aðildarríkjum að tímabundnum og markvissum aðgerðum í ríkjunum til að milda áhrif eldsneytis- og annars kostnaðar á raforkuframleiðslu, án þess að grafa undan hvötum til langtímafjárfestinga eða samkeppnisjöfnuði á innri markaði.

Leiðtogarnir boðuðu  endurskoðun viðskiptakerfis ESB  með losunarheimildir (ETS) eigi síðar en í júlí 2026 til að draga úr sveiflum kolefnisverðs og milda áhrif þess á raforkuverð og tengdan aðfangakeðjukostnað. Þeir lögðu hins vegar líka áherslu á að ETS-kerfið verði áfram í lykilhlutverki í orkuskiptum og loftslagsmálum sem hvati til fjárfestinga og nýsköpunar. Nokkur aðildarríki innan ESB, t.d. Ítala, hafa gagnrýnt ETS-kerfið harðlega og stjórnvöld í Róm m.a. lagt fram tillögur um ríkisstyrki til orkuvera sem brenna gasi. Norræn aðildarríki ESB hafa hinsvegar verið í fararbroddi þeirra sem vilja standa vörð um kerfið ásamt fleiri ríkjum, þ.á.m. Spáni og Portúgal. Niðurstaðan var þessi endurskoðun en ljóst er að ETS-málið er ekki útrætt innan ESB.

Leiðtogarnir hvöttu vatt til að hinn metnaðarfulli „EU Grids Package“ um flutnings- og dreifkerfi orku innan ESB, verði samþykktur. Hraða þurfi uppbyggingu raforkuinnviða, verja þá og auka viðnámsþrótt þeirra. Þá þurfi að styrkja samtengingar, m.a. með einföldun og hraðari leyfisveitingum, en einnig með sveigjanlegri nálgun á svokallaðar innlendar flöskuhálstekjur sem taki mið af aðstæðum í einstökum löndum.

Aðildarríki ESB og framkvæmdastjórnin í Brussel  voru sömuleiðis hvött til að flýta innleiðingu markmiða sem sett hafa verið með  Orkusambandi ESB 2030  (Energy Union 2030) svo stuðla megi að aukinni og hagkvæmri rafvæðingu í Evrópu.

Sjá nánar um leiðtogafund ESB 19- 20. mars og helstu niðurstöður hans:

https://www.consilium.europa.eu/en/meetings/european-council/2026/03/19-20/: ESB leiðtogar leggja áherslu á orkuskipti sem lausn til framtíðar

ESB opnar samráðsgátt um ramma fyrir endurnýjanlega orku eftir 2030

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hleypt af stokkunum samráðsferli til að móta lagaramma ESB fyrir endurnýjanlega orku á næsta áratug þessarar aldar.  „Renewable energy framework post-2030.“ Markmiðið er að Evrópa haldi sínu striki í að ná loftslagsmarkmiðum en tryggja einnig samkeppnishæfni álfunnar, orkuöryggi og sjálfbærni.

Stefnan er að sú að þessi löggjafartillaga framkvæmdastjórnarinnar verði afgreidd fyrir árslok. Við gerð tillögunnar vill framkvæmdastjórnin nýta sér það sem haghafar og almenningur leggur af mörkum í samráðinu. ESB segir að tilgangurinn með lagarammanum um endurnýjanlega orku á næsta áratug, eftir 2030, sé að tryggja áreiðanlegt framboð af orku sem framleidd er  í Evrópu á viðráðanlegu verði fyrir almenning og fyrirtæki. Í kynningu á samráðsgáttinni er lögð áhersla á að endurnýjanlegir orkugjafar verði liður í því að ná markmiðum ESB um að árið 2040 verði búið að minnka losun gróðurhúsalofttegunda innan sambandsins um 90% miðað við losun árið 1990. Þetta þurfi að gera með hagkvæmum og sjálfbærum hætti. Þegar litið er á samsetningu orkugjafa innan ESB (energy mix) hefur hlutur endurnýjanlegra orkulinda tvöfaldast á undanförnum 13 árum og var 25,4% árið 2024. Þetta þýðir þó líka að hraða þarf þróuninni í þessum geira og auka t.d. mjög notkun hreinnar orku í flutningum, hitun og kælingu.

Framkvæmdastjórn ESB hvetur haghafa og almenning til að senda innlegg í þessa samráðsgátt. Annars vegar er kallað eftir gögnum og upplýsingum eða „call for evidence“ og er sú gátt opin til 16. apríl n.k. Almenn samráðsgátt eða „Public Consultation“ er opin til 12. júní n.k. Þessi framtíðarstefnumótun ESB um lagaumhverfi, reglur og fleira mun á efa snerta hagsmuni íslenska orku- og geirans með margvíslegum hætti enda eru allar okkar orkulindir endurnýjanlegar. Og frá gildistöku samningsins um Evrópska efnahagssvæðið hafa löggjöf og reglur ESB að verulegu leyti mótað starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækja hér á landi. Það er því þess virði að kynna sér málið nánar, sjá hvað framtíðin kann að bera í skauti sér og leitast við að hafa áhrif á hvernig hún lítur út, með því að koma að sjónarmiðum okkar í þessa samráðsgátt.

Sjá hér hlekk á samráðsgátt framkvæmdastjórnar ESB með margvíslegum fleiri upplýsingum.

https://energy.ec.europa.eu/news/renewable-energy-framework-post-2030-consultations-launched-2026-03-20_en: ESB opnar samráðsgátt um ramma fyrir endurnýjanlega orku eftir 2030

Þýskaland í forystu í nýrri vindorku í Evrópu

Þýskaland bar höfuð og herðar yfir önnur Evrópulönd í fyrra í uppbyggingu vindorku. Þýsk orkufyrirtæki bættu þannig við 5.7 GW af uppsettu vindorkuafli árið 2025. Lang mest af þessari aukningu, eða um 91%, var á landi. Þetta er hátt í þriðjungur af allri nýrri vindorku í álfunni í fyrra sem nam 19.1 GW. Í öðru sæti var Tyrkland þar sem 2.1 GW af uppsettu vindorkuafli bættust við en Svíþjóð var síðan í þriðja sæti með 1.8 GW. Þessi gríðarlega uppbygging í Þýskalandi er sýnileg þegar ferðast er um landið, þar eru raðir af vindmyllum meðfram hraðbrautum og víðar.

Vindorkuver í löndum Evrópusambandsins framleiddu 465 terwattstundir (TWh) af rafmagni í fyrra sem er um 19% af eftirspurninni í ESB, samkvæmt samantekt Wind Europe. Samtals er uppsett afl vindorkuvera í Evrópu nú 304 GW, og þar af eru 265 GW á landi (onshore) en 39 GW á hafi úti (offshore). Þetta er í takti við uppbygginguna í fyrra því langmest af nýju vindorkuafli i álfunni, eða um 90%, er í vindorkuverum á landi, 17,2 GW.

Stjórnvöld í Þýskalandi og í einstökum landshlutum hafa lagt mikla áherslu á að stytta og einfalda ferli leyfisveitinga. Það er ein skýringin á þessari miklu uppbyggingu vindorku í landinu en þetta hefur þó gengið misjafnlega eftir sambandsríkjum. Bygging meira en 2400 vindmylla var samþykkt í Þýskalandi árið 2024 með 14 GW af uppsettu afl yrðu þær allar reistar. Í sumum sambandsríkjum hefur tekið minna en eitt ár að veita leyfi fyrir nýjum vindorkuverkefnum en í öðrum hefur tekið 3-4 ár að ljúka þessu leyfisveitingaferli.

Allt útlit er fyrir áframhaldandi mikla uppbyggingu vindorku í Evrópu. Í fyrra voru þannig teknar lokaákvarðanir um fjárfestingar upp á 45 milljarða evra, til að fjármagna 20.9 GW af nýju vindorkuafli, að því fram kemur í samantekt Wind Europe sem Samorka er aðili að. Hér á landi er Landsvirkjun á fullri ferð að reisa vindorkuver sem kennt er við Vaðöldu. Önnur orkufyrirtæki og aðilar eru síðan með vindorkuverkefni í undirbúningi víða um landið.

Lög um stjórn vatnamála verða endurskrifuð frá grunni segir ráðherra

Umhverfis- orku og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, lagði áherslu að tryggja þyrfti fumlausa og samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, þegar hann ávarpaði ársfund Samorku, 17. mars s.l.

„Um leið höfum við ráðist í það verkefni að endurskrifa lög um stjórn vatnamála frá grunni  sem ég geri ráð fyrir að leggja fram sem frumvarp næsta haust,“ sagði Jóhann Páll á ársfundinum. „Þetta er allt saman í góðum farvegi enda er hreina vatnið okkar það sem gerir Ísland að Íslandi. Þetta eru gæði sem við ætlum að verja.“

Samorka, sendi í byrjun febrúar inn í samráðsgátt stjórnvalda umsögn um frumvarp til laga um stjórn vatnamála sem er liður í innleiðingarferli  tilskipunar Evrópusambandsins um stefnu í vatnamálum, nr. 2000/60/EB. Það er einhver umfangsmesta löggjöf og stjórnsýsla sem fram fer á vegum Evrópusambandsins. Með tilskipuninni var innleitt heildsætt stjórnunarkerfi fyrir stjórn vatnamála í Evrópu og sett metnaðarfull tímasett markmið til að tryggja gott ástand vatns. Í apríl 2025 gaf Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) út mat á innleiðingu vatnatilskipunarinnar á Íslandi. Líkt og rakið er í frumvarpinu eru ýmsar athugasemdir gerðar við innleiðinguna á Íslandi og ljóst virðist að lögin um hana frá 2011 hafi í raun aldrei komið að fullu til framkvæmda. Frumvarpinu er að einhverju leyti ætlað að taka á þessu.

Í tilkynningu stjórnvalda segir að frumvarpinu sé ætlað „að endurspegla sem best kjarna vatnatilskipunar og mæla fyrir um skilvirka framkvæmd og samstarf stjórnvalda á sviði vatnamála. Er frumvarpinu ætlað að tryggja lágmarkskröfur vatnatilskipunarinnar og gengur því ekki lengra en þær kröfur mæla fyrir um.“

Samorka taldi í umsögn sinni að frumvarpið fæli í sér mikilvægar breytingar á regluverki vatnamála, en alvarlegir annmarkar væru á því hvað varðar samráð, áhrifamat, samþættingu við evrópska orku- og loftslagslöggjöf, of víðtækt gildissvið laganna og réttaröryggi leyfishafa. „Samorka hvetur eindregið til þess að frumvarpið verði endurskoðað með þessi sjónarmiðum í huga og lýsir sig reiðubúna samstarfs við stjórnvöld um nauðsynlegar aðlaganir og endurbætur á frumvarpinu. Samorka hvetur stjórnvöld til að standa við áform sín um að einfalda umhverfi leyfisveitinga og tryggja uppbyggingu í orku sem grundvöll orkuskipta, atvinnu- og byggðaþróunar, en hætt er við að ýmis ákvæði frumvarpsins vinni beinlínis gegn þeim markmiðum,“ sagði í umsögn Samorku sem hægt er að lesa í heild sinni hér að neðan.

https://samorka.is/wp-content/uploads/2026/02/Samorka_StjornVatnamala_S.254.2025.pdf: Lög um stjórn vatnamála verða endurskrifuð frá grunni segir ráðherra

Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra gerði mikilvægi áfallaþols og varnir gegn fjölþáttaógnum að umtalsefni í fréttaviðtali við RUV í kjölfar þess að hún og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins (ESB), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál í Brussel í gær, 18. mars.

 „Það felst margt í samkomulaginu, m.a. að við Íslendingar erum að tryggja okkur aðgang að verkefnum, gríðarlega mikilvægt, aðgang að sérfræðiþekkingu á þessum tímum og líka ákveðinni greiningargetu. Þetta skiptir okkur máli í okkar vörnum, ekki síst gegn fjölþáttaógnum. Þar er Evrópusambandið algjörlega í leiðtogahlutverki,“ sagði Þorgerður Katrín. Hún var einnig spurð um þá staðreynd að samkvæmt samkomulaginu fær Ísland aðgang að sjóðum og verkefnum sem ganga út á fjárfestingum í varnar- og öryggistengdri starfsemi. Spurningin væri hvort það væri eitthvað sem Ísland ætti heima í? „Já ég myndi segja það,“ sagði utanríkisráðherra og benti á ýmis íslensk fyrirtæki sem hafi náð góðum árangri, t.d. í nýsköpun. „Þau hafa sýnt að þau geta þróað vörur, varning, tæki og tól til að styrkja og auka getu Evrópu til að ýta undir seiglu, varnargetu, þolgæði og áfallaþolið. Allt þetta skiptir máli og það er mikilvægt að tengjast við þetta, m.a. með íslenskan iðnað í huga,“ sagði utanríkisráðherra í kvöldfréttum RUV.

Þorgerður Katrín var einmitt meðal frummælenda á ársfundi Samorku, 17. mars þar sem efling áfallaþols ómissandi innviða var í brennidepli. Utanríkisráðherra sagði á fundinum að öryggisumhverfi Evrópu væri að breytast hratt og við gætum ekki lokað augunum fyrir fjölþáttaógnum sem að okkur steðja. „Ef árás yrði gerð á Ísland yrði hún að mínu mati ekki í formi hefðbundins landhernaðar heldur atlaga að innviðum,“ sagði Þorgerður Katraín en tók líka fram að íslenskt samfélag stæði vel að vígi að mörgu leyti.

Í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins kemu fram að með samstarfsyfirlýsingunni við ESB sé áréttaður pólitískur vilji Íslands og Evrópusambandsins um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Yfirlýsingin sé ekki skuldbindandi og feli ekki í sér kvaðir um framlög eða þátttöku Íslands í verkefnum ESB. Samorka skilaði nýlega inn í samráðsgátt umsögn um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB fyrir 2028-2034. Stærsta breytingin frá núverandi fyrirkomulagi felst í stofnun nýs Samkeppnishæfnissjóðs (e. European Competitiveness Fund, ECF) upp á 234,3 milljarða evra Í honum verða sameinaðar 14 núgildandi áætlanir og þar af eru sjö sem Ísland á nú þegar aðild að. Sjóðnum er skipt í fjóra stefnuglugga en sá langstærsti, snýst um viðnámsþol, öryggi, varnariðnað og geiminn (space). Samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnar ESB fær hann 125,2 milljarða evra í framlög. Undir þennan glugga fellur borgaralegt öryggi, t.d. lykilinnviðir og einnig tækni með tvíþætt notagildi (dual use), fyrir borgaraleg og hernaðarleg not.

Almannavarnaáætlun ESB (Union Civil Protection Mechanism – UCPM) er önnur samstarfsáætlun ESB sem hefur þann tvíþætta tilgang að samhæfa viðbrögð við neyðarástandi í Evrópu og sömuleiðis að efla áfallaþol og fyrirbyggjandi aðgerðir aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórn ESB leggur til að styrkja þessa áætlun verulega til að auka m.a. samvinnu um forvarnir og efla undirbúning og viðbrögð við náttúru- og heilsuvá, sem og ógnum af manna völdum. Samorka benti í umsögn sinni á að sterkir orku- og veituinnviðir væru hluti af öflugum almannavörnum og viðnámsþrótti og því sé mikilvægt að íslensk stjórnvöld skoði vel og kynni fyrir haghöfum hvaða möguleikar væru á styrkjum eða samstarfi sem tengist almannavarnaáætlun ESB.

Hér er hægt að lesa umsögn Samorku um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034

7238541f-211e-f111-9bd6-005056bcce7e: Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra

Hér er hlekkur á frétt RUV með viðtalinu við utanríkisráðherra.

Fréttir – Spilari RÚV: Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra

Og upptaka af ársfundi Samorku þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræddi líka um almannavarnir og öryggi, ásamt fleiri gestum.

Beint streymi frá ársfundi Samorku – Samorka: Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra

Ársfundur Samorku um samkeppnishæfni, uppbyggingu og öflugt áfallaþol á óvissutímum

Samkeppnishæfni Íslands og samstarf atvinnulífs og stjórnvalda til að efla öryggi var rauði þráðurinn á ársfundi Samorku í gær 17. mars undir yfirskriftinni „Uppbygging á óvissutímum. Eflum áfallaþol ómissandi innviða.“ 

Ómissandi innviðir líklegt skotmörk

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði á fundinum að öryggisumhverfi Evrópu væri að breytast hratt og við gætum ekki lokað augunum fyrir fjölþáttaógnum sem að okkur steðja. „Ef árás yrði gerð á Ísland yrði hún að mínu mati ekki í formi hefðbundins landhernaðar heldur atlaga að innviðum,“ sagði utanríkisráðherra en tók líka fram að íslenskt samfélag stæði vel að vígi að mörgu leyti. 

Hins vegar gætum við ekki leyft okkur að vera kærulaus og því skipti meira máli en nokkru sinni að byggja upp áfallaþol ómissandi innviða. Það væri t.d. ein megin áherslan i nýrri stefnu um öryggis- og varnarmál. Þorgerður Katrín sagði að þessi uppbygging væri sameiginlegt verkefni stjórnvalda og atvinnulífsins og hjá fyrirtækjunum væri að finna mikla þekkingu og reynslu. 

Við stöndum á sterkum grunni

„Við erum ekki hér til að hræða heldur til að vakna því orku- og veitukerfin eru fyrsta varnarlínan ef eitthvað kemur upp á,“ sagði Sólrún Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Samorku, í upphafi ársfundarins. Hún benti á að orku- og veitufyrirtæki hér á landi standi frammi fyrir mikilli uppbyggingu á næstu árum, fjárfestingum sem nemi hundruðum milljarða króna. Til að ráðast í þær þurfi hugrekki og réttu umgjörðina svo styrkja megi  innviðina á þeim hraða sem alþjóðlega umhverfið krefst.

 „Það er áskorun að takast á við þetta verkefni og mikilvægt að viðhalda líka samkeppnishæfni Íslands,“ sagði Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku. „Við stöndum á sterkum grunni, við leysum þessar áskoranir og það er mikill metnaður innan geirans enda tækifærin fyrir Ísland ærin,“ sagði Finnur. 

Skemmdarverk hafa margfaldast

„Áfallaþol þarf að vera hluti af þjóðaröryggi og fælingarmætti gagnvart ógnum. Til að ná því takmarki þarf sameiginlega nálgun stjórnvalda og samfélagsins alls,“ sagði Charlie Edwards, sérfræðingur í stefnumótun og þjóðaröryggi hjá International Institute for Strategic Studies hugveitunni, í erindi sínu. 

Hann benti á hvernig skemmdarverk á innviðum í Evrópu sem rekja má til rússneskra stjórnvalda hafi margfaldast frá allsherjar innrás Rússlands í Úkraínu fyrir fjórum árum. 

Edwards sagði mikilvægt fyrir íslenska orku- og veitugeirann að kortleggja mögulega veikleika, efla stöðuga vöktun, auka skilvirka deilingu upplýsinga og stjórnvöld eigi að setja í forgang nokkur lykil verkefni sem verði þá hrint í framkvæmd. 

Mikill meirihluti telur breytingar á regluverki nauðsynlegar

Lagaumgjörð orku- og veitugeirans var einnig í brennidepli á fundinum. Þannig töldu 90% svarenda í spurningakönnun meðal aðildarfélaga Samorku að breytingar á regluverki væru nauðsynlegar til að þau gætu sinnt sínu hlutverki. „Einföldum leyfisveitingaferla er aðildarfélögum þar efst í huga,“ sagði Jón Gunnarsson, verkefnisstjóri greiningar hjá Samorku þegar hann kynnti niðurstöðurnar. 

Katrín Helga Hallgrímsdóttir lögfræðingur Samorku benti á að orku- og veitugeirinn þyrfti að standa jafnfætis fjarskiptum og vegakerfi þegar kæmi að heimildum til að vernda innviði og byggja þá upp.

Ljóst er að orku- og veitufyrirtæki hér á landi hafa ekki setið auðum höndum í að styrkja áfallaþol. „Dreifiveitur og flutningsfyrirtæki hafa eflt mjög varnir sínar á undanförnum árum og við megum vera stolt af þeirri uppbyggingu,“ sagði Hanna Björg Konráðsdóttir, skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins en sagði það líka mjög mikilvægt að koma á samstarfshópi orku- og veitugeirans og stjórnvalda til að kortleggja stöðuna og setja fram heildstæða áætlun um frekari uppbyggingu. 

Öryggislöggjöf í vinnslu

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gerði endurskoðun laga um almannavarnir að umtalsefni og sagði mikilvægt að skerpa á því að ógnir og áföll gætu líka verið af manna völdum.

 „Það þarf líka að setja öryggislöggjöf, til að ramma inn samfélagslega hagsmuni og vinna við að smíða hana er hafin í dómsmálaráðuneytinu,“ sagði ráðherra, aðspurð um skýrslu stjórnvalda um áfallaþol á grunni sjö viðmiða Atlantshafsbandalagsins en þar er m.a. er fjallað um lagaumhverfi á þessu sviði. 

Sterk í baráttunni fyrir loftslagið

„Við viljum nýta tækifærin til frekari lífskjarasóknar,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í spjalli við Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.

„Við eigum að fullnýta þá orku sem við höfum þegar sótt, styrkja flutningskerfið og halda áfram að afla nýrrar orku auk þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda,“ sagði Bjarni. Loftslagsbreytingar voru einmitt ofarlega á baugi í erindi Hildigunnar Thorsteinsson forstjóra Veðurstofu Íslands, sem benti m.a. á áhrif hlýinda og þurrka á orkuforða jökla og vatnsbúskap. 

„Við erum búin að skipuleggja samfélag okkar fyrir loftslagið sem var, nú verðum að skipuleggja okkur fyrir loftslag framtíðarinnar,“ sagði Hildigunnur. 

Þurfum að tryggja orkusjálfstæði

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, rakti í ræðu sinni margvíslega stefnumótun og aðgerðir stjórnvalda til að einfalda og bæta lagaumhverfi orku- og veitugeirans, vernda vatnsgæði og efla enn frekar nýtingu jarðhita auk þess að auka framboð á raforku. 

Hann sagði líka að hægt væri að draga lærdóm af áhrifum stríðsins sem nú geisar í Mið-Austurlöndum á orkumarkaði heimsins. „Við þurfum að halda áfram orkuskiptunum af fullum þunga, þannig tryggum við orkusjálfstæði, orkufullveldi og áfallaþol íslands á óvissutímum,“ sagði umhverfis- orku og loftslagsráðherra á ársfundi Samorku 2026. 

Hér að neðan má sjá svipmyndir af fundinum: