Írland tekur við forsæti í Ráði ESB til næstu sex mánaða

Írland tekur við forsæti í Ráði Evrópusambandsins (e. Council of the European Union) í dag 1. júlí og heldur um stjórnartaumana næstu sex mánuði, eða fram að áramótum. Kýpur hefur verið í forsæti fyrri hluta ársins. Ráðið eða ráðherraráðið eins og það var áður kallað er ein af lykilstofnunum Evrópusambandsins. Þar koma saman fagráðherrar aðildarríkjanna í mismunandi málaflokkum til að móta sameiginlega stefnu ESB. Ráðið fer með löggjafarvald sambandsins ásamt Evrópuþinginu.

Írar setja þrjú málefnasvið á oddinn í forsætistíð sinni – samkeppnishæfni, gildi og öryggi. „Þessi þrjú forgangsmál endurspegla okkar metnað fyrir hönd Evrópu – að skapa tækifæri, vernda borgara og að við séum trú okkar grundvallargildum,“ sagði Helen McEntee  utanríkisráðherra Írlands, þegar stjórnvöld í Dublin lögðu línurnar fyrir næstu sex mánuði. Í áherslum um samkeppnihæfni líta Írar m.a. til Draghi skýrslunnar svokölluðu frá 2024 sem fjallar um samkeppnishæfni Evrópu til framtíðar en aðalhöfundur hennar er Mario Draghi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og forseti Seðlabanka Evrópu. Í öryggismálum leggja Írar t.d. áherslu á áframhaldandi stuðning við Úkraínu og þegar kemur að gildum telja írsk stjórnvöld mikilvægt að standa vörð um mannréttindi og alþjóðlega samvinnu. Þau leggja líka áherslu á að fjölga aðildarríkjum ESB sem eru nú 27 talsins. Þá mun fara mikil orka í að stuðla að samkomulagi um langtímafjárlagaramma ESB, frá 2028-2034.  (Multiannual Financial Framework). Aðildarríkin takast þar á um forgangsröðun viðfangsefna, ekki síst framlög til landbúnaðarmála sem eru stór hluti af útgjöldum ESB.

Írland leggur einnig þunga áherslu á uppbyggingu flutnings- og dreifikerfis fyrir orku í álfunni eða „EU Grids Package.“ Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti þann pakka 10. desember  2025, orkumálaráðherrar ESB komu sér saman um afstöðu til hans 26. júní s.l. og Evrópuþingið er með meðferðar þær breytingar sem lagðar eru til í þessari viðamiklu stefnumótun og lagasetningu. Írar vilja að „EU Grids Package“ verði afgreiddur áður þeir hverfa úr forsæti ráðsins en fyrrnefndar þrjár stofnanir ESB þurfa þá að ná saman um lokaútgáfu „EU Grids Package“ fyrir áramót í þríhliða samningaviðræðum.

Í orkumálum leggja stjórnvöld í Dublin áherslu á samtvinnað og öruggt orkukerfi þar sem í boði sé næg sjálfbær orku á hagstæðu verði. Metnaðarfull stefnumörkun í loftslagsmálum til ársins 2050 er einnig mikilvæg að mati Íra en að sama skapi þurfi að tryggja samkeppnishæfni og efnahagslega seiglu. Evrópa eigi að verða fyrsta „raforkuálfan.“

Sjá nánar um Ráð Evrópusambandsins, forsæti þess og helstu áherslur Íra:

https://ireland.representation.ec.europa.eu/irelands-presidency-council-european-union_en: Írland tekur við forsæti í Ráði ESB til næstu sex mánaða https://www.gov.ie/en/department-of-foreign-affairs/press-releases/minister-mcentee-sets-out-irelands-priorities-for-eu-presidency/: Írland tekur við forsæti í Ráði ESB til næstu sex mánaða https://www.ireland.ie/en/eu/eu_presidency/: Írland tekur við forsæti í Ráði ESB til næstu sex mánaða https://www.delorscentre.eu/en/about/news/detail/content/eu-energy-policy-under-the-irish-council-presidency: Írland tekur við forsæti í Ráði ESB til næstu sex mánaða