Power Barometer greining Eurelectric kynnt 30. september í Brussel

Eurelectric, samtök rafiðnaðarins í Evrópu, birta árlega greiningarskýrslu sína Power Barometer þann 30. september n.k. og efna þá til kynningarfundar í Brussel þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður.  Fjöldi framsögumanna og kvenna úr orkugeiranum, frá Evrópusambandinu og víðar taka þátt í fundinum. Samorka er aðili að Eurelectric.

Power Barometer  kortleggur ár hvert eftirspurn eftir rafmagni í Evrópu, sveigjanleika í framboði, verð og nýjustu strauma í fjárfestingum. Skýrslan er lykilgagn fyrir stjórnmálamenn, leiðtoga í atvinnurekstri, sérfræðinga og fleiri því hún dregur upp skýra mynd af orkukerfi álfunnar, hvernig það er að þróast og hvar brýnast er að grípa til aðgerða.

Skýrslan sem birt verður í lok september sýnir að grundvallarbreytingar hafa orðið í orkukerfi Evrópu og það hafi komið enn skýrar í ljós vegna þeirra miklu áhrifa sem átökin í Mið-Austurlöndin og lokun Hormuz-sunds hafa haft á alþjóðlega orkumarkaði.

Eurelectric bendir á að verð á gasi hafi  hækkað um 41% en engu að síður lækkaði orkuverð í heild um níu prósent að meðaltali að því fram kemur í fréttatilkynningu. Rafmagnsorkukerfi sem treysta á hreina og fjölbreytta orkugjafa gátu tekist á við öldurótið í alþjóðamálum en það sama verður ekki sagt um markaði með jarðefnaeldsneyti að mati Eurelectric.

Þess ber líka að geta að Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku skrifaði athyglsverða grein í sumarblað Vísbendingar um áhrif átakanna og orkuöryggi Íslands Hann ræddi einnig það viðfangsefni í hlaðvarpinu Lífæðar landsins í sumar. Hlekkir á greinina og á þáttinn eru neðst í fréttinni.

Þegar mikil uppbygging á sér stað í endurnýjanlegum orkugjöfum þarf hinsvegar að tryggja að svigrúm sé fyrir þann vöxt. Góðu fréttirnar eru að lausnir eru fyrir hendi til að takast á við þær áskoranir og greint verður nánar frá þeim á kynningarfundi Eurelectric um Power Barometer 2026 skýrsluna þann 30. september í höfuðstöðvum samtakanna í Brussel.

Fundurinn er frá kl. 14-17:30 að staðartíma eða kl. 12-15:30 að íslenskum tíma og samhliða honum er einnig haldin móttaka fyrir gesti. Hægt er að skrá sig á fundinn og lesa meira um Power Barometer með því að ýta á hlekkinn hér að neðan. Þátttökugjald er frá 40 til 85 Evrur.

Meira um Power Barometer og skráning á fundinn þann 30.9 í Brussel

https://www.eurelectric.org/events/power-barometer-2026/: Power Barometer greining Eurelectric kynnt 30. september í Brussel

Hvaða áhrif hafa átökin og óvissan í Hormússundi á Ísland? Þáttur í hlaðvarpi Samorku, lífæðar landsins.

https://samorka.is/lifaedar-landsins-orkan-i-efnahagsljosi/: Power Barometer greining Eurelectric kynnt 30. september í Brussel

Greinin eftir Jón Gunnarsson greinanda hjá Samorku sem birtist í Vísbendingu.

https://visbending.is/greinar/islensk-orka-i-althjodlegu-samhengi-avinningur-sem-maelist-i-milljordum/: Power Barometer greining Eurelectric kynnt 30. september í Brussel