Lífæðar landsins -Orkan í efnahagsljósi

Hvaða áhrif hafa átökin og óvissan í Hormússundi á Ísland? Og hvaða hlutverki gæti vindorka gegnt í framtíð íslensks orkukerfis?

Í nýjasta þætti Lífæða landsins er fjallað um íslensk orkumál í alþjóðlegu og efnahagslegu samhengi. Við nýtum greinar úr nýútgefnu orkublaði Vísbendingar sem útgangspunkt og skoðum meðal annars hvaða áhrif átökin og óvissan í Hormússundi hafa haft á Ísland, innkomu vindorku á íslenskan orkumarkað og margt fleira.

Gestir þáttarins eru Jón Gunnarsson, greinandi hjá Samorku, og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair á Íslandi, sem ræða málin við Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.