Rafvæðing vörn atvinnulífsins gegn ytri áföllum

„Höldum okkar striki í að renna traustum orkustoðum undir efnahagslífið.“ Þetta er lykilboðskapurinn í árlegri greiningarskýrslu  Eurelectric sem kynnt var á Power Barometer ráðstefnunni í Brussel 30. september.

The Power Proof var heiti skýrslunnar þetta árið en í henni er farið yfir helstu breytingar í evrópska raforkugeiranum og samspil þeirra við þróun orku- og loftslagsmála á heimsvísu.

Rafvæðing lykill að árangri

Kristian Ruby, framkvæmdastjóri Eurelectric, færði sannfærandi rök fyrir því á fundinum að áframhaldandi rafvæðing væri besta leiðin til að verja hagkerfið gegn utanaðkomandi áföllum.

Í formála skýrslunnar sagði Ruby að á þessu ári hefðu íbúar Evrópu enn og aftur verið minntir á að orkuöryggi og samkeppnishæfni væri ekki hægt að skilja í sundur. Verð á olíu og gasi hefði rokið upp úr öllu valdi vegna átakanna í Mið-Austurlöndum en verðlag á raforku í Evrópu hefði verið mun stöðugra og hækkanir miklu minni.

Uppbygging endurnýjanlegra orkugjafa og aukinn sveigjanleiki raforkukerfisins gerði orkugeirann í álfunni þannig minna háðan innflutningi jarðefnaeldsneytis. Áskorunin snúist þó ekki einungis um að framleiða meira af hreinu rafmagni heldur að tryggja að það væri til reiðu þegar notendur vildi stinga í samband. Til þess þyrfti t.d. að hraða fjárfestingum í flutnings- og dreifikerfinu.

Biðraðir eftir því að tengjast flutnings- og dreifikerfinu hafa verið að lengjast samkvæmt skýrslunni og úrbætur á þessu sviði eru því mjög brýnar.

„Við þurfum að fara frá því að leigja orkuna okkar yfir í að eiga hana,“ sagði einn þátttakenda í líflegum pallborðsumræðum á kynningarfundinum um skýrsluna og evrópska orkugeirann almennt.

Í pallborðinu voru fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Evrópuþingsins og atvinnulífsins, bæði orkukaupenda og seljenda. Þeirra á meðal voru stórir alþjóðlegri orkuframleiðendur, til að mynda franski orkurisinn EDF og Iberdrola sem er með höfuðstöðvar á Spáni.

Sókn vind- og sólarorku

Rúmlega 30% af raforkuframleiðslu í Evrópu er knúin áfram af sólar- og vindorku. Þessir tveir orkugjafar hafa tvöfaldað hlut sinn á undanförnum sex árum og eru komnir fram úr jarðefnaorkugjöfum. Hlutur þeirra heldur áfram að minnka og er nú um 27%. Því fylgir að losun gróðurhúsalofttegunda frá orkugeiranum í Evrópu hefur minnkað gríðarlega.

The Power Proof skýrsla Eurelectric fjallar einnig um vöxt og fjölgun gagnavera sem stóreykur eftirspurn eftir raforku og hvernig bregðast þurfi við þeirri þróun, m.a. í uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa og með sveigjanleika í eftirspurn. Skýrsluhöfundar benda einnig á að sala á rafbílum í Evrópu hafi komist aftur á góðan skrið í fyrra þegar um 3 milljónir nýrra rafbíla voru skráðir. Það er tæplega þriðjungs aukning frá 2024.

Ísland með eigin orkugjafa

Þróunin er því í rétta átt en orkukerfið í Evrópu er þó enn útsett fyrir sveiflum á heimsmarkaðsverði á gasi og olíu líkt og dæmin sanna.

Umfjöllunin um orkuöryggi í skýrslu Eurelectric er einnig athyglisverð fyrir þær sakir að Ísland er mun síður háð erlendum orkugjöfum en fjöldi annarra þjóða. Innflutningur nemur þannig einungis um 17% af þeirri orku við notum. Þá er öll rafmagnsframleiðsla hér á landi knúin áfram af endurnýjanlegum orkugjöfum auk þess sem við búum að jarðhitanum til húshitunar og margvíslegra nota í atvinnulífinu. Það þýðir að íslenskt efnahagslíf er betur varið gegn sveiflum í orkuverði á heimsvísu þó þær hafi vissulega áhrif hér á landi.

Hægt er að lesa skýrslu Eurelectric í heild sinni og um Power Barometer með því að að fara inn á þessa vefslóð:

https://www.eurelectric.org/events/power-barometer-2026