Forysta Nordenergi ræddi tækifæri í hreinni orku við orkumálaráðherra Finnlands

Kröftug rafvæðing á öllum sviðum samfélagsins með hreinum orkugjöfum var í brennidepli á ársfundi Nordenergi, sem fór fram í Helsinki í Finnlandi dagana 15.-16. september. Nordenergi er samstarfsvettvangur norrænna landssambanda í græna orkugeiranum. Finnur Beck framkvæmdastjóri og Sveinn Helgason, verkefnisstjóri erlends samstarfs sóttu ársfundinn fyrir hönd Samorku. 

Forystusveit Nordenergi fundaði með Sari Multala, loftslags- og orkumálaráðherra Finnlands. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi norrænnar samvinnu í orkumálum og hvernig aðgengi að hreinni orku getur laðað að fjárfestingar og stutt við atvinnuuppbyggingu. Einnig bar á góma tækifæri tengd uppbyggingu gagnavera, skilvirkni raforkumarkaða, áfallaþol innviða og nauðsyn þess að flutningskerfi raforku standi undir aukinni rafvæðingu og eftirspurn.

Green Power Denmark fer nú með formennsku í Nordenergi og leggur áherslu á áframhaldandi rafvæðingu til að efla samkeppnishæfni Evrópu og ná loftslagsmarkmiðum. Til þess þurfi frekari fjárfestingar í hreinum orkugjöfum og öflugum innviðum, auk þess sem norræn samvinna gegni lykilhlutverki í að tryggja hagstætt orkuverð og orkuöryggi.

Norðurlöndin eru í fremstu röð í þróun og nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa en glíma jafnframt við sameiginlegar áskoranir, meðal annars við uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa raforku. Norrænu orkusamtökin leggja því ríka áherslu á að efla áfallaþol og orkuöryggi og hafa aukið samstarf sitt á því sviði í ljósi nýrra ógna og hraðra breytinga í alþjóða- og öryggismálum. Sú gerir orkusjálfstæði enn brýnna en ella.