19. febrúar 2010 Hörður Arnarson nýr í stjórn Samorku Á aðalfundi Samorku var Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kjörinn nýr inn í stjórn samtakanna. Hörður kemur inn í stjórnina í stað Friðriks Sophussonar, forvera síns hjá Landsvirkjun. Stjórn Samorku verður að öðru leyti óbreytt, en hana skipa því næsta árið: Franz Árnason, Norðurorku, formaður Hjörleifur B. Kvaran, Orkuveitu Reykjavíkur Hörður Arnarson, LandsvirkjunJúlíus Jónsson, Hitaveitu Suðurnesja Páll Pálsson, SkagafjarðarveitumTryggvi Þór Haraldsson, Rarik Þórður Guðmundsson, Landsneti Varamenn:Dagur Jónsson, Vatnsveitu Hafnarfjarðar Guðmundur Davíðsson, Hitaveitu Egilsstaða og FellaKristján Haraldsson, Orkubúi Vestfjarða Franz Árnason var endurkjörinn formaður til tveggja ára á aðalfundi Samorku 20. febrúar 2009. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.
16. febrúar 2010 Aðalfundur Samorku á föstudag, 19. febrúar Aðalfundur Samorku verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 19. febrúar. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 10:30 og fá aðalfundarfulltrúar senda dagskrá og önnur gögn. Opin dagskrá aðalfundarins, Hvammi á Grand Hótel, hefst kl. 13:30: Setning: Franz Árnason, formaður stjórnar Samorku Ávarp: Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherraErindi: Orkunýting og afrakstur auðlindar til almennings Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs 15:00 Kaffiveitingar í fundarlok
15. febrúar 2010 Orkusala til kísilmálm- og sólarkísilverksmiðju Orkuveita Reykjavíkur hefur undirritað samningsramma um orkusölu til kísilmálm- og sólarkísilverksmiðju, sem áformað er að reisa í Ölfusi, rétt vestan Þorlákshafnar. Væntanlegur kaupandi er Thorsil ehf, félag sem kanadíska fyrirtækið Timminco Limited og Strokkur Energy ehf stofnuðu saman um verkefnið. Um er að ræða sölu á 85 megavöttum til 20 ára. Afla á orkunnar frá Hverahlíðarvirkjun og er um að ræða alla framleiðslu virkjunarinnar. Umhverfismati vegna hennar er lokið og fjármögnun hennar var tryggð að hálfu leyti með hagstæðu láni frá Evrópska fjárfestingabankanum. Sjá nánar á vef Orkuveitunnar.
2. febrúar 2010 Ráðherrann vanhæfur? Umhverfisráðherra hefur synjað staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri hluta Þjórsár, að sögn þar sem þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu hafi stangast á við skipulags- og byggingarlög. Annars vegar er um að ræða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem ráðuneytið telur sér ekki heimilt að staðfesta. Hins vegar er um að ræða aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018, sem ráðuneytið samþykkir að öðru leyti en því sem snýr að virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Nú liggur fyrir að sveitarfélögin og framkvæmdaaðilinn gerðu sína samninga í góðri trú. Hugsanlega er þó ástæða til að styrkja lagaheimild fyrir slíkri kostnaðarþátttöku framkvæmdaaðila í skipulagslögum, þar sem ráðherra virðist nú hafa mótað þá stefnu að túlka skort á beinu heimildarákvæði sem ígildi bannákvæðis. Við blasir að ekki verður við það fyrirkomulag unað að fámenn sveitarfélög þurfi sjálf að kosta nauðsynlega skipulagsvinnu vegna framkvæmda sem e.t.v. eru þjóðhagslega mjög hagkvæmar, þótt sjálft sveitarfélagið hafi ekki af þeim miklar beinar tekjur. Það gæti einfaldlega þýtt að ekkert yrði úr neinum slíkum framkvæmdum. En er þetta raunveruleg ástæða synjunar ráðherra? Ástæða er til að efast um það, sem og að staldra við ýmis atriði í málflutningi ráðherrans í viðtali við Fréttablaðið. „Borðleggjandi“ en samt fjórtán mánuði á borði ráðuneytisUmhverfisráðherra segir úrskurðinn í raun hafa verið „borðleggjandi“. Engu að síður var málið í fjórtán mánuði á borði ráðuneytisins. Ef úrskurðurinn var borðleggjandi líkt og ráðherrann heldur fram, hefði þá ekki verið nær að fella hann miklu fyrr í stað þess að skilja málið eftir í óvissu allan þennan tíma? Getur þetta talist ásættanleg stjórnsýsla? „Almannahagsmunir“ að skapa óvissu um fjárfestingar?Ráðherrann segir að í þágu „almannahagsmuna“ hafi sér ekki verið stætt á öðru en synjun. Eru það almannahagsmunir að setja jafnvel áætlanir um erlenda fjárfestingu og stórframkvæmdir í íslensku atvinnulífi í uppnám? Eru það almannahagsmunir að senda erlendum fjárfestum enn ein skilaboðin um að búast megi við hverju sem er þegar íslensk stjórnsýsla er annars vegar, þrátt fyrir fögur fyrirheit ríkisstjórnar – í svokölluðum stöðugleikasáttmála – um að greiða götu stórframkvæmda? Skilur ráðherrann ekki eðli endurnýjanlegra orkulinda?Ráðherrann talar um ráðstöfun virkjanakosta „eins og það sé ekki fleiri kynslóða að vænta á Íslandi.“ Þarna talar ráðherrann um nýtingu vatnsafls með rennslisvirkjunum eins og um námagröft sé að ræða. Ráðherrann virðist ekki skilja eðli endurnýjanlegra orkulinda, þrátt fyrir að aukin nýting þeirra sé efst á baugi í umhverfisumræðunni um veröld alla, í stað brennslu jarðefnaeldsneytis. Rætt hefur verið um að nýta orku þessara rennslisvirkjana til nýrrar orkukrefjandi starfsemi á borð við gagnaver. Slíkir aðilar falast gjarnan eftir samningum um raforkukaup til ca. 15 ára. Vatnsaflsvirkjanir eru almennt taldar hafa endingartíma til eitt hundrað ára eða lengur, og í sjálfu sér er ekkert því til fyrirstöðu að mannvirkin verði endurnýjuð til að endast miklum mun lengur en það. Vatnið rennur áfram, komandi kynslóðir munu áfram njóta teknanna af þessari grænu orku. Ráðherrann einfaldlega á móti þessum virkjunum?Loks segir ráðherrann, spurð um afstöðu til virkjana í neðri hluta Þjórsár, að það eigi að fara varlega í nýjar virkjanir, jarðhita og vatnsafls. Er hérna komin raunveruleg ástæða synjunarinnar? Ráðherrann hefur áður tafið þetta ferli með vísan í formsatriði er varðar auglýsingar á breyttu skipulagi. Getur hugsast að ráðherrann sé einfaldlega á móti því að farið verði í þessar framkvæmdir? Er ráðherrann þá e.t.v. vanhæfur þegar kemur að endurteknum úrskurðum um formsatriði í þessu máli?
28. janúar 2010 Hreint vatn og hrein orka: Ísland stendur sig best í umhverfismálum Ísland er í fyrsta sæti 163 ríkja á lista þar sem löndum er raðað eftir frammistöðu í umhverfismálum, en listinn er unninn af sérfræðingum við Columbia- og Yale- háskólana í Bandaríkjunum. Alls er byggt á upplýsingum um 25 viðmið og er Ísland með hæstu mögulegu einkunn í ellefu tilvikum, sem snúa einkum að miklum gæðum og framboði neysluvatns, lítilli losun gróðurhúsalofttegunda, lítilli loftmengun og lítilli (nánast engri) losun kolefnis vegna raforkuframleiðslu. Þá þykja Íslendingar standa sig vel á sviði skógræktar. Með öðrum orðum, þá eru það einkum hreina vatnið og hreina orkan sem eru lykillinn að þessari sterku stöðu Íslands. Skýrsluna má skoða hér á vefsíðu Yale-háskóla.
10. desember 2009 Samorka mótmælir nýjum orkusköttum Stjórn Samorku mótmælir þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja nýja skatta á raforku og heitt vatn, skatta sem draga munu úr lífsgæðum landsmanna og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, auk þess að draga úr gegnsæi verðlagningar á raforku og heitu vatni. Lágt verð á raforku og á heitu vatni til kyndingar hefur lengi verið einn af helstu kostum búsetu og fyrirtækjareksturs á Íslandi, fyrir nú utan að hér er orkan grænni en víðast hvar ef ekki alls staðar annars staðar. Flest orku- og veitufyrirtæki hafa enda verið rekin með afar lága arðsemi af þeirri grunnþjónustu sem þau sjá landsmönnum fyrir (arðsemin hefur hins vegar almennt verið hærri af raforkusölu til stóriðju). Nú hyggst ríkisstjórnin raska þessari mynd með fyrstu beinu sköttunum hérlendis á raforku og heitt vatn, sem Samorka mótmælir sem fyrr segir. Heiti frumvarpsins vísar til „umhverfis- og auðlindaskatta“, en hér er hvorugt á ferðinni. Þetta er einfaldlega ný skattheimta af orkunotkun landsmanna, til að auka tekjur ríkissjóðs. Ennfremur lýsa samtökin áhyggjum af því að þessir nýju skattar verði enn hækkaðir þegar fram í sækir, stjórnvöld muni freistast til þess þegar einu sinni er búið að koma nýju sköttunum á. Skv 13. gr. frumvarpsins eru þessari nýju skattar á raforku og heitt vatn tímabundin ráðstöfun, sem falla á úr gildi í árslok 2012. Reynslan sýnir að óvarlegt er að treysta slíkum fyrirheitum. Sjá umsögn Samorku um orkuskattafrumvarp.
9. desember 2009 Megum bara nota ál frá Íslandi Íslenska jarðhitafyrirtækið Reykjavik Geothermal vinnur nú að nýtingu jarðhita fyrir borgina Masdar, sem verið er að reisa í olíuríkinu Abu Dhabi. Borgin á að vera kolefnishlutlaus og úrgangslaus, en auk sólarorku hyggjast forsvarsmenn verkefnisins nýta þar jarðhita, einkum til að knýja kælikerfi borgarinnar. Grímur Björnsson, jarðeðlisfræðingur hjá Reykjavik Geothermal, fjallaði um verkefnið á haustþingi Jarðhitafélagsins í gær. Í máli hans kom fram að svo ströngum reglum er fylgt við byggingu borgarinnar, að fyrirtækið má ekki nota þar ál – til dæmis í skiltagerð – nema það sé frá Íslandi. Ál framleitt hér á landi hefur jú þá sérstöðu að það er framleitt með raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum.
21. október 2009 Erindi opins fundar um sjálfbæra nýtingu jarðhitans Sjálfbær nýting jarðhitans var yfirskrift opins fundar á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 21. október. Á þriðja hundrað manns sóttu fundinn en að honum stóðu Samorka, ÍSOR, Orkustofnun, Iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands og GEORG (Geothermal Reserch Group). Erindi fundarins er að finna hér að neðan. Dagskrá (hægt að sækja erindin með því að smella á heiti þeirra): Orkuforði og endurnýjanleiki jarðhitakerfa Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR – Íslenskra orkurannsókna Sjálfbær nýting jarðhitakerfa Guðni Axelsson, deildarstjóri, ÍSOR Sjálfbær nýting á Íslandi: Lághitasvæði Reykjavíkur – Sjálfbær vinnsla í 80 ár Gretar Ívarsson, jarðfræðingur, Orkuveitu Reykjavíkur Svartsengi – Farsæl orkuframleiðsla í 30 ár Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku Krafla – 30 ára barátta við náttúruöflin Bjarni Pálsson, verkefnisstjóri, Landsvirkjun Power Fundarstjóri var Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri.
21. október 2009 3000 MW úr 0,2% varmaforðans á 3 km dýpi Jarðhitinn getur leikið mikilvægt hlutverk í sjálfbærri þróun, á Íslandi og á heimsvísu. Þetta kom fram í erindi Guðna Axelssonar, deildarstjóra hjá ÍSOR, á opnum fundi um sjálfbæra nýtingu jarðhitans á Hilton Nordica. Guðni sagði áratuga reynslu og rannsóknir hafa sýnt að hægt væri að nýta jarðhitakerfi á sjálfbæran hátt, því nýtt „jafnvægisástand“ kæmist oft á eftir að nýting hæfist. Vinnslan gæti þó vissulega verið ágeng og þá ekki hægt að viðhalda henni, öðru vísi en að hafa að öðrum svæðum að hverfa á meðan hin væru hvíld. 3000 MW úr 0,2% varmaforðans á 3 km dýpi Guðni sagði sjálfbæra vinnslugetu háða vinnsluaðferð (niðurdæling yki t.d. vinnslugetu) og tækniframförum. Fræðilega séð mætti vinna 3000 MW af raforku úr 0,2% þess varmaforða sem er að finna á 3 km dýpi. Að fundinum stóðu Samorka, ÍSOR, Orkustofnun, Iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands og GEORG (Geothermal Research Group). Á þriðja hundrað manns sóttu fundinn. Sjá erindi Guðna Axelssonar.
21. október 2009 Gríðarmikil jarðhitaorka – nýtingartæknin í þróun Endurnýjanleiki er eðli orkulindar, sjálfbærni vísar til orkuvinnslu. Á þetta lagði Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR, áherslu í erindi á opnum fundi um sjálfbæra nýtingu jarðhitans á Hilton Nordica. Ólafur varaði við hugtakaruglingi og nefndi ýmis dæmi úr opinberri umræðu þar sem endurnýjanleika og sjálfbærni væri ruglað saman. Hann sagði jarðhita mun nær því að vera endurnýjanlega orkulind en óendurnýjanlega, þótt vissulega væri hægt að umgangast jarðhitann á ósjálfbæran hátt. Jarðhitinn væri enda skilgreindur sem endurnýjanleg orkulind á alþjóðavísu. Pólitískt þjónaði það hins vegar mest hagsmunum jarðefna- og kjarnorkuiðnaðar að draga þessa flokkun í efa og sagði Ólafur það andstætt náttúruverndarsjónarmiðum. Röng fullyrðing Sigmundar Einarssonar Ólafur sagði það ranga fullyrðingu í umtalaðri grein Sigmundar Einarssonar jarðfræðings, að „stóri sannleikurinn um hinar miklu orkulindir Íslands“ væri tómt plat. Hann sagði orkuna hér vera gríðarmikla en við byggjum hins vegar enn aðeins yfir tækni til að nýta hluta hennar á hagkvæman hátt. Næg orka til álvera á Bakka og í Helguvík væri vissulega til staðar, en ekki væri búið að ná henni og ekki víst að það tækist með hefðbundnum og fremur ódýrum aðferðum að vinna alla þessa orku á sjálfbæran hátt úr jarðhita. Þetta væri sú óvissa sem alltaf fylgdi jarðhitavinnslu og oft skorti skilning á. Ólafur sagði því mikilvægt að byggja jarðhitavirkjanir upp í áföngum og vinna markvisst að rannsóknum og þróun á tækninýjungum. Að fundinum stóðu Samorka, ÍSOR, Orkustofnun, Iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands og GEORG (Geothermal Research Group). Á þriðja hundrað manns sóttu fundinn. Sjá erindi Ólafs G. Flóvenz.