Opnað fyrir umsóknir í The Pitch samkeppnina um nýsköpun í orkuskiptum

Eurelectric og Enlit Europe hafa opnað fyrir umsóknir í „The Pitch,“ árlega keppni í nýsköpun þar sem fyrirtæki geta komið á framfæri nýjum tæknilausnum sem hraða orkuskiptum. Fyrirtæki sem verða fyrir valinu fá tækifæri til að kynna sínar lausnar fyrir dómnefnd sérfræðinga á sérstökum viðburði í Vín í Austurríki þann 11. nóvember n.k. Frestur til að taka þátt í The Pitch er til 11. september n.k.

Hér gefst tækifæri fyrir sprotafyrirtæki til að tengjast inn í orkugeirann og komast t.d. í samband við orkuframleiðendur, fyrirtæki sem reka flutningskerfi raforku, dreifiveitur eða  aðra sérfræðinga í orkuiðnaðinum  eins og segir í fréttatilkynningu. Þann 11. nóvember munu Enlit Europe og Eurelectric enn á ný halda þennan viðburð í Vín sem er hluti af Digitopia Summit. Hann felst í þremur klukkutíma löngum senum. Hver um sig verður með sitt þema til að kynna nýsköpun sem hraðað getur orkuskiptum. Dómnefnd velur síðan sigurvegara í hverjum hluta fyrir sig.

Enlit og Eurelectric segja að nýsköpunin geti verið í margvíslegum geirum sem tengjast orku, s.s. endurnýjanlegir orkugjafar orkugeymsla, orkuskilvirkni, áfallaþol og styrkur flutningskerfa og gervigreind svo fátt eitt sé nefnt.

Mikil nýsköpun á sér stað í orkugeiranum hér á landi og Samorka hefur lagt sig fram um að ýta undir þá þróun, t.d. með Nýsköpunarverðlaunum Samorku sem veitt eru árlega. Þá er Samorka meðlimur í Eurelectric.

Hér að neðan er hlekkur á tilkynningu um The Pitch keppnina og þar er líka hægt að sækja um að vera með.

The Pitch | Enlit World: Opnað fyrir umsóknir í The Pitch samkeppnina um nýsköpun í orkuskiptum