Vel sóttur fundur um rafbíla

Þéttsetið í Norðurljósasal Hörpu í morgun
Þéttsetið í Norðurljósasal Hörpu í morgun

Um 200 manns sóttu vel heppnaðan fund Samorku, Íslandsbanka og Ergo í Hörpu í morgun undir yfirskriftinni Hvar eru rafbílarnir?.

Fjallað var meðal annars um raforkukerfið og undirbúning fyrir rafbílavæðingu, innviði og rafbílamarkaðinn eins og hann er í dag. Erindi fluttu þau Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, Áslaug Thelma Einarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Orku náttúruinnar og Kári Auðun Þorsteinsson, viðskiptastjóri hjá Ergo. Þá voru fjörugar pallborðsumræður undir stjórn Hjartar Þórs Steinþórssonar forstöðumanns orkumála á fyrirtækjasviði Íslandsbanka, en í pallborði sátu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Björgvin Skúli Sigurðsson, framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs Landsvirkjunar og Ágústa S. Loftsdóttir, verkefnisstjóri hjá Orkustofnun. Fundinum stjórnaði Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

2016-11-10-09-19-56
Pallborðsumræður

Ávinningur rafbílavæðingar er ekki einungis góður fyrir umhverfið, heldur er einnig fjárhagslegur ávinningur, bæði fyrir samfélagið í heild sinni og einstaklinginn sjálfan. Ef 10% bílaflotans rafvæðist, sem er markmið stjórnvalda fyrir árið 2020, skilar það 5 milljarða gjaldeyrissparnaði á hverju ári sem annars færi í olíuinnflutning. Sú upphæð jafngildir rekstri allra leikskóla Reykjavíkurborgar í hálft ár. Með hverju prósenti sem rafbílum fjölgar hækkar þessi tala. Bíleigandinn sparar einnig allt að 200 þús krónur árlega í eldsneytiskaup með því að skipta yfir í rafbíl, sé miðað við meðalakstur.

Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, fjallaði um dreifikerfi raforku með tilliti til rafbíla
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, fjallaði um dreifikerfi raforku með tilliti til rafbíla

Margt þarf hins vegar að koma til. Ívilnanir stjórnvalda skipta miklu máli, sem og þróun verðlags á rafhlöðum og olíu, drægni bílanna og uppbygging innviða eins og hleðslustöðvum við heimili og hringinn í kringum landið og flutningskerfið. Þá er lítil reynsla enn af rafbílum og vegna þess að þeir eru enn um 15-20% dýrari en bensín- og díselbílar tekur nokkur ár fyrir kaupin að borga sig upp, sé miðað við sparnað á eldsneyti eingöngu.

Það var mál manna að fundurinn hafi verið fræðandi og skemmtilegur og vill Samorka þakka öllum þeim sem komu, Íslandsbanka og Ergo fyrir samstarfið og visir.is sem sendu fundinn út beint á vefsíðu sinni.

Upptökur af fundinum má sjá hér fyrir neðan. Því miður var erindi Tryggva Þórs hljóðlaust framanaf og því er upptakan ekki aðgengileg nema að hluta til, frá þeim tímapunkti að hljóðið komst í lag.

Glærur Tryggva Þórs Haraldssonar, forstjóra RARIK

 

 

Hvar eru rafbílarnir- Tryggvi Þór Haraldsson-HD from Samorka on Vimeo.

Hvar eru rafbílarnir? – Áslaug Thelma Einarsdóttir from Íslandsbanki on Vimeo.

Kári Auðun Þorsteinsson from Íslandsbanki on Vimeo.

 

Hvar eru rafbílarnir? – Panell from Íslandsbanki on Vimeo.

Hvar eru rafbílarnir?

hvar_eru_rafbilarnir

 

Íslandsbanki, Ergo og Samorka bjóða á morgunfund um rafbílavæðingu Íslands í Hörpu þann 10. nóvember. Rætt verður um þá innviði sem hér eru til staðar og hversu raunhæfir kostir rafbílar séu í dag og á komandi árum.

Málþing: Örplast í skólpi

Vatns- og fráveitufélag Íslands, VAFRÍ, og Samorka halda opið málþing þann 15. nóvember um örplast í skólpi. Málþingi er haldið í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, og stendur frá 13.30-16.

Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á þá þekkingu sem til er um málefnið hér á landi, um upptök og afdrif örplasts í skólpi og mögulegum hreinsiaðferðum til verndar lífríkis í viðtaka skólps.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má sjá á heimasíðu VAFRÍ.

 

 

Samorka óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra

Samorka óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Leitað er að reyndum leiðtoga sem býr yfir góðri samskiptafærni, frumkvæði og skipulögðum vinnubrögðum. Einstaklingi sem hefur það sem þarf til að starfrækja jákvæðan vettvang um starfsemi orku- og veitufyrirtækja.

Intellecta hefur umsjón með ráðningunni og má sjá auglýsinguna um starfið á heimasíðu þeirra. Auglýsingin birtist fyrst í Fréttablaðinu laugardaginn 29. október.

Helstu verkefni:
Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
Ábyrgð á starfsemi Samorku gagnvart stjórn
Innleiða og framfylgja stefnu og ákvörðunum stjórnar/aðalfundar
Stuðla að og bera ábyrgð á góðum tengslum við aðildarfyrirtæki og rækta félags- og fræðslustarf
Samskipti og upplýsingar

Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Stjórnunarreynsla
Þekking á starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækja er kostur
Þekking á umhverfismálum og nýtingu náttúruauðlinda er æskileg
Góðir samskiptahæfileikar og færni í að tjá sig í ræðu og riti
Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku, kostur að hafa einnig kunnáttu í Norðurlandamáli

Aðrar upplýsingar:
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) í síma 511 1225.

Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2016. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Gústaf lætur af störfum sem framkvæmdastjóri

Gústaf Adolf Skúlason hefur sagt starfi sínu sem framkvæmdastjóri Samorku lausu. Gústaf hefur gegnt starfinu frá mars 2013 og þar áður starfi aðstoðarframkvæmdastjóra samtakanna frá ársbyrjun 2007. Hann mun gegna starfi framkvæmdastjóra þar til nýr tekur til starfa, og verða samtökunum innan handar fyrst um sinn í kjölfar þess.

Stjórn og starfsfólk Samorku þakka Gústafi fyrir vel unnin störf í þágu íslenskra orku- og veitumála og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Starf framkvæmdastjóra Samorku verður auglýst á laugardag og er ráðningin í höndum Intellecta.

 

Gústaf Adolf Skúlason, fráfarandi framkvæmdastjóri Samorku, á skrifstofu sinni.
Gústaf Adolf Skúlason, fráfarandi framkvæmdastjóri Samorku, á skrifstofu sinni.

Gústaf segir tíma sinn hjá Samorku hafa verið afar ánægjulegan og lærdómsríkan.

„Þessi áratugur í starfi á vettvangi Samorku hefur verið afar ánægjulegur og lærdómsríkur. Ég hef fylgst með og tekið þátt í miklum breytingum á starfsumhverfi og uppbyggingu þessara greina og átt ánægjulegt samstarf við mikinn fjölda af góðu fólki.“

Gústaf segir að orka og veituþjónusta séu forsendur alls atvinnulífs, heimilisreksturs og flestra okkar daglegu athafna í nútíma samfélagi.

Við getum verið þakklát fyrir okkar grænu orkulindir og heilnæma drykkjarvatn, en jafnframt verið stolt af þeim öflugu orku- og veitufyrirtækjum sem sjá um nýtingu þessara ríkulegu auðlinda og dreifingu gæðanna til landsmanna allra“, segir Gústaf.

Helgi Jóhannesson, formaður Samorku, segir hafa verið afar ánægjulegt að vinna með Gústafi á vettvangi Samorku undanfarin ár.

Gústaf hefur staðið sig mjög vel sem framkvæmdastjóri samtakanna og kann stjórn Samorku honum bestu þakkir fyrir óeigingjarnt og farsælt starf liðin ár.“

Orku- og veituþjónusta langódýrust á Íslandi

Íslensk heimili greiða langminnst fyrir orku- og veituþjónustu á Norðurlöndum. Samanlagt greiða Íslendingar rúmum 400 þúsund krónum minna fyrir kalt og heitt vatn, rafmagn og fráveitu á hverju ári en þar sem þjónustan er dýrust.

Sé miðað við heildarreikning fyrir 100 fermetra íbúð og meðalnotkun á ári, greiðir íslenskt heimili aðeins um 247 þúsund krónur fyrir orku- og veituþjónustu. Í Kaupmannahöfn greiða íbúar í sams konar íbúð 655 þúsund krónur, sem er hæsta verðið á Norðurlöndunum og tæpum 34 þúsundum meira á mánuði en á Íslandi. Næstmest borga Finnar, eða um 588 þúsund á ári hverju og Svíar borga 480 þúsund. Orku- og veituþjónusta kostar næstminnst í Noregi, en þar greiðast 431 þúsund krónur árlega, sem er þó tæpum 184 þúsund krónum meira en á Íslandi.

Á heildarreikningi heimilanna munar mestu um verð á heitu vatni – Íslendingar greiða langtum minna fyrir það en aðrir íbúar Norðurlanda.

Forsendur:
Rafmagn: 4.800 kWst ársnotkun.
Heitt vatn: 100m2 íbúð, 495 tonna ársnotkun.
Kalt vatn: 100m2 íbúð, 240 tonna ársnotkun. ATH! Á Íslandi er notkun ekki mæld, heldur miðuð við stærð húsnæðis. Íslendingar nota meira magn af köldu vatni á mann en aðrir íbúar Norðurlanda.
Fráveita: 100m2 íbúð, 240 tonna ársnotkun.

Menntun og mannauður: Starfsþjálfun í fyrirtækjum

Fundaröðin Menntun og mannauður heldur áfram í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 20. október frá kl. 8.30-10.

Að þessu sinni verður kynning á TTRAIN (Tourism training) verkefninu, en það snýst um að mennta einstaklinga innan ferðaþjónustufyrirtækjanna og endurmennta þá sem fyrir eru. Sambærilegt verkefni hefur verið útfært fyrir verslunina á Íslandi þannig að það getur haft breiða skírskotun, þ.e.a.s. hentar ekki endilega einungis aðilum í ferðaþjónustu.

Nánari upplýsingar og dagskrá má sjá á vef Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins, Samorka og Samtök verslunar og þjónustu standa að fundaröðinni Menntun og mannauður sem mun standa til vors 2017.

Landsvirkjun bakhjarl Kvenna í orkumálum

Frá undirritun samningsins: f.v. Helga Barðadóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og stjórnarmaður Kvenna í orkumálum, Harpa Pétursdóttir, lögfræðingur hjá BBA og formaður Kvenna í orkumálum, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.
Frá undirritun samningsins: f.v. Helga Barðadóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og stjórnarmaður Kvenna í orkumálum, Harpa Pétursdóttir, lögfræðingur hjá BBA og formaður Kvenna í orkumálum, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Landsvirkjun verður bakhjarl félagsins Kvenna í orkumálum til tveggja ára. Skrifað var undir styrktarsamning þess efnis í vikunni.

Félagið Konur í orkumálum var stofnað fyrr á árinu og telja félagsmenn nú um 200 talsins. Félagið er opið öllum þeim sem starfa við orkumál eða hafa áhuga á orkumálum á Íslandi. Tilgangur félagsins er að efla þátt kvenna í orkumálum og styrkja tengsl þeirra á milli, svo og að stuðla að menntun og fræðslu kvenna er varðar orkumál.

Harpa Pétursdóttir, lögfræðingur hjá BBA og formaður Kvenna í orkumálum, þakkaði stuðninginn við við undirritun samningsins og sagði það mikið ánægjuefni að stjórnendur orkufyrirtækja á Íslandi sæju að ástæða sé til að auka hlut kvenna í geiranum, sem er einn megintilgangur félagsins.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði við sama tilefni að það væri fyrirtækinu sérstaklega ánægjulegt að styrkja þennan félagsskap, hann hefði alla burði til að hafa jákvæð áhrif innan orkugeirans á komandi misserum og árum.

Fyrir er Landsbankinn einnig bakhjarl Kvenna í orkumálum, en tilkynnt var um þann samning í september.

Orkusalan gefur hleðslustöðvar fyrir rafbíla

orkusalan_litur

Orkusalan, dótturfyrirtæki RARIK, gefur öllum sveitarfélögum landsins hleðslustöð fyrir rafbíla, alls um 80 talsins. Með þessu vill fyrirtækið auðvelda rafbílaeigendum að komast leiðar sinnar hringinn í kringum landið. Fyrsta stöðin verður sett upp í Vestmannaeyjum á næstu vikum.

Ísland er í lykilstöðu til að leiða rafbílavæðingu heimsins og vill Orkusalan leggja sitt af mörkum með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

Hleðslustöðvar Orkusölunnar koma til viðbótar hraðhleðslustöðva Orku náttúrunnar, sem eru alls 13 talsins.

orkusalan_rafbraut

Ánægja með vatnsveituráðstefnu

Norrænu vatnsveituráðstefnunni lauk á dögunum, en hún er haldin annað hvert ár á Norðurlöndunum. Í ár fór ráðstefnan fram á Íslandi og þótti takast með eindæmum vel. Hún var haldin í Hörpu, nánar tiltekið í Silfurbergi og Björtuloftum. Veðrið skartaði sínu fegursta og útsýnið úr Hörpu var frábært, svo það gerði góða ráðstefnu enn ánægjulegri.

Um 300 þátttakendur mættu til leiks og erindin voru alls um 100 talsins og til gamans má geta að meirihluti þeirra sem þau fluttu voru konur. Philip McCleaf frá Uppsala Vatten och Avlopp AB varð hlutskarpastur í kosningu um besta erindið og fékk peningaverðlaun fyrir.

Næst verður ráðstefnan haldin í Noregi árið 2018.

20160928_130559

 

2016-09-29-11-46-41

 

2016-09-29-11-47-03

 

2016-09-29-09-22-58

 

2016-09-30-09-35-18

 

Helgi Jóhannesson, stjórnarformaður Samorku, setur Norrænu vatnsveituráðstefnuna í Hörpu

 

img_0028

 

Ráðstefnugestir voru á öllum aldri
Ráðstefnugestir voru á öllum aldri