17. september 2026 Rafvæðum Evrópu sagði von der Leyen í stefnuræðu „Við þurfum að rafvæða Evrópu,“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í stefnuræðu sinni „State of Union“ í Evrópuþinginu í Strassborg í gær, 16. september. „Við þurfum að styrkja enn frekar upbyggingu á okkar eigin hreinu orkugjöfum, hvort sem þeir eru endurnýjanlegir, kjarnorka eða af öðrum toga. En þeir verða að skila okkur orkusjálfstæði og ná niður orkuverði.“ bætti von der Leyen við. Forseti framkvæmdastjórnarinnar sagði að markmið ESB væri að tvöfalda hlut rafmagns í orkunotkun í aðildarríkjum bandalagsins til ársins 2040. Þannig gætu ESB-ríkin sparað sér árlega um 260 milljarða Evra sem þau greiða núna fyrir innflutt jarðefnaeldsneyti. En rafmagnið þurfi líka að vera til reiðu fyrir notendur. „Í fyrra bættust við meira en 80 GW af endurnýjanlegu uppsettu afli. Sexfalt það afl bíður þess hinsvegar að vera tengt inn á flutningskerfi raforku í álfunni,“ sagði forseti framkvæmdastjórnarinnar og lagði þunga áherslu á að stefnumótun og lagasetning um „EU Grids Package“ fengi framgang sem fyrst. Með þeim pakka á að stórefla flutningskerfi raforku í Evrópu, með hraðari og skilvirkari leyfisveitingum, fjárfestingum og fleiri aðgerðum. „Við þurfum að hraða fjárfestingum og tengingum við flutningskerfið auk þess að þróa lausnir til að geyma orku. Í stuttu máli, tryggjum að framtíð Evrópu verið rafvædd. Það er nauðsynlegt,“ sagði Ursula von der Leyen. Orkumálin voru áberandi í stefnuræðu hennar og tvinnuðust eðlilega inn í umfjöllun um alþjóðamál. Þar var ofarlega á baugi hækkun orkuverðs á heimsvísu vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels við Íran. Forseti framkvæmdastjórnarinnar lagði áherslu á samkeppnishæfni Evrópu þar sem lægra orkuverð skiptir miklu máli. Þá fjallaði hún einnig um gervigreind, áhrif samfélagsmiðla og margt fleira. Síðast en ekki síst lýsti Urusla von der Leyen þeirri skoðun sinni að Kanada ætti að verða fyrsta auka aðildarríki Evrópusambndsins eða „Associate Member.“ Þar beindi hún orðum sínum til Mark Carney, forsætisráðherra Kanada sem var í þingsalnum í Strassborg. „Við deilum sama úthafi, gildum og heimssýn. Og við munum móta okkar sameiginlegu framtíð,“ sagði Ursula von der Leyan við kanadíska forsætisráðherrann. Fréttaskýrendur segja þó að yfirlýsing hennar um hina svokölluðu aukaðild Kanada virðist hafa komið flestum á óvart – hvort sem þeir voru meðal áheyrenda í Strassborg eða í höfuðborgum aðildarríkja ESB. Lesið ræðu Ursulu von der Leyen í heild sinni hér: https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/ov/speech_26_1868: Rafvæðum Evrópu sagði von der Leyen í stefnuræðu