Langþráða hitaveitan á Akureyri


Hitaveituvæðing Akureyrarbæjar gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Leit að heitu vatni stóð yfir í áratugi og þegar það loksins fannst var hitaveitan lögð í bæinn á ótrúlega skömmum tíma með tilheyrandi raski. Enn þann dag í dag er það stór áskorun að sjá íbúum fyrir heitu vatni til framtíðar.
Í þessum hlaðvarpsþætti rifjum við upp þá daga þegar hitaveita kom loksins til sögunnar á Akureyri og veltum fyrir okkur stöðu hennar og framtíð með Franz Árnasyni og Helga Jóhannessyni, fyrrum forstjórum Norðurorku.

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Í þættinum verður fjallað um orku- og veitumál frá hinum ýmsu hliðum.