Frumkvöðlaflugeldasýning á Norðurlandi 27. október 2022 Podcast: Play in new window | Download (Duration: 41:39 — 48.4MB)Subscribe: Apple Podcasts | Google Podcasts | Spotify | Android | RSS | More Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavíkur og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Markmið verkefnisins er að bæta nýtingu orkuauðlinda og auka nýsköpun í orkumálum á Norðausturlandi. Í þætti dagsins ætlum við að heyra meira um Eim, hvað þau eru að fást við og ekki síst kynnast framkvæmdastjóranum betur, Sesselju Ingibjörgu Barðdal Reynisdóttur, sem segir að frumkvöðlar séu eins og rakettur, saman geti þeir myndað fallega flugeldasýningu. Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Í þættinum verður fjallað um orku- og veitumál frá hinum ýmsu hliðum.