28. september 2005 Skoðunarkönnun meðal rafvirkja Könnun á umfangi slysa og óhappa af völdum rafmagns hjá fagmönnum á rafmagnssviði. Neytendastofa (áður Löggildingarstofa) hefur í samráði við Samorku, SART og Rafiðnaðarsamband Íslands ákveðið að láta rannsóknarfyrirtækið IMG Gallup kanna tíðni rafmagnsslysa og óhappa hjá fagmönnum á rafmagnssviði. Sambærileg könnun er gerð reglulega meðal fagmanna á Norðurlöndunum. Markmiðið er fyrst og fremst að Neytendastofa hafi betri yfirsýn yfir slys eða óhöpp af völdum rafmagns hér á landi enda berast stofnuninni einungis upplýsingar um alvarlegustu rafmagnsslysin. Fullum trúnaði er heitið enda munu upplýsingar ekki á nokkurn hátt verða tengdar einstökum svarendum. Neytendastofa mun svo birta niðurstöður könnunarinnar og stuðla þannig að betri fræðslu um eðli og umfang rafmagnsslysa og hvernig megi koma í veg fyrir þau. Stofnunin vonast til að þeir fagmenn á rafmagnssviði sem lenda í úrtaki Gallups verði jákvæðir gagnvart fyrrgreindri könnun sem er liður í að tryggja enn betur öryggi þeirra sjálfra. Neytendastofa rafmagnsöryggissvið Heimasíða Neytendastofu
22. ágúst 2005 Námstefna um viðskipti með græna orku Námstefna um viðskipti með græna orku. 16. september n.k. á Grand Hótel Reykjavík Við viljum benda á að hér er einstakt tækifæri á ferðinni til að kynnast og læra um ný sjónarmið og möguleika íslenskra orkufyrirtækja til að meta verðmæti á orkuframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum. Vinsamlegast látið vita um þátttöku til Samorku sími 588 4430 eða með tölvubréfi: odda@samorka.is Dagskrá námsstefnunnar: Smellið hér Upplýsingar um fyrirlesara: Smellið hér Erindi Mörthu Eiríksdóttur; Erindi Stefan Zisler; Erindi Lauritzen
3. júní 2005 Veggspjald – RÉTT VIÐBRÖGÐ BJARGA MANNSLÍFUM Með því að smella hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af fyrstuhjálparveggspjaldi vegna viðbragða við rafmagnsslysum. Spjaldið verður til afhendingar á næstu dögum í stærðinni A-2, plasthúðað: Smellið hér Ef óskir berast um aðrar stærðir á spjaldinu, þá er hægt að verða við þeim óskum. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Samorku.
30. maí 2005 Vorfundur Samorku 2005 á Akureyri Vorfundur Samorku 2005 í Íþróttahöllinni á Akureyri Dagskrá fundarins, með hlekkjum á erindi: Smellið hér Þátttakendur í vöru-og þjónustusýningu: Smellið hér Setningarræða Friðriks Sophussonar formanns stjórnar Samorku: Smellið hér Ávarp iðnaðarráðherra: Smellið hér
10. maí 2005 Um rafsegulsvið Landlæknisembættið hefur góðfúslega heimilað Samorku aðgang að greininni og má lesa hana með því að smella hér: Grein Sigurðar Guðmundssonar landlæknis um rafsegulsvið
9. febrúar 2005 Aðalfundur Samorku 2005 Samorka var stofnuð á Hótel Selfossi 25. apríl 1995. 10. aðalfundur Samorku fór fram á Hótel Selfossi 11. mars 2005 Dagskrá aðalfundar: Smellið hér Nokkrar myndir frá fundinum Ársskýrsla 2004
1. febrúar 2005 Orkuþing skóla Orkuþing skóla stendur dagana 25.- og 26. febrúar í Perlunni. Það eru samtökin NORDLAB, ásamt Samorku og nokkrum orkufyrirtækjum, sem standa að verkefninu, sem er að frumkvæð Norrænu ráðherranefndarinnar. Opnaður hefur verið fróðlegur og skemmtilegur Orkuvefur af því tilefni, sjá nánar Orkuvef skóla.
14. desember 2004 Veitustjórafundur Samorku Efni frá fundinum: Dagskrá fundarins Skipulag veitumála á Íslandi: Eiríkur Bogason Lög og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga: Guðjón Bragason, félagsmálaráðuneyti Jarðlagnatækninámið, kynning: Ingibjörg Stefánsdóttir, Mímir-Símenntun. Verkefni framundan hjá fagráðum: Sigurður Ágústsson og María J. Gunnarsdóttir Starfsemi IGA: Valgarður Stefánsson
13. desember 2004 Rafmagn á Íslandi í 100 ár Rafveitur landsins hafa minnst þessara tímamóta á fjölbreyttan hátt, hver á sínu veitusvæði. 24. janúar kom út fylgiblað með Morgunblaðinu, með sögulegum fróðleik og fleiri upplýsingum. Sama dag var opnuð sérstök heimasíða (www.rafmagn100.is) helguð afmælisárinu og síðan rak hver atburðurinn annan og lauk afmælisárinu með hátíð í Hafnarfirði 12. desember. Þar var afhjúpaður minnisvarði um Jóhannes Reykdal smið og frumkvöðul. Minnisvarðinn stendur við lækinn, á mótum Lækjargötu og Austurgötu. Í Hafnarborg var hátíðarsamkoma þar sem forseti Íslands og iðnaðarráðherra fluttu ávörp. Samorka færði Hafnfirðingum að gjöf, 9 kW. rafstöð sem komið verður fyrir bak við glervegg í undirgöngum undir Lækjargötunni. Að lokinni hátíðardagskrá var kveikt á risaperu við Hafnarborg og lauk síðan afmælisdagskrá með flugeldasýningu. Nokkrar myndir frá hátíðinni 12. des.2004 Ræða Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra á hátíðinni. Fara á afmælisvef Grein Jóhanns Más Maríussonar í Morgunblaðinu