Ævintýrið um íslensku hitaveituna

Yfir 90% húsa á Íslandi eru hitaveituvædd, þ.e.a.s. hituð upp með jarðhita. Við tökum því sem sjálfsögðum hlut á hverjum einasta degi. En staðreyndin er sú að það er einstakt á heimsvísu að heil þjóð nýti sér þennan orkugjafa til húshitunar og það er í raun ótrúlega stutt síðan hitaveitan kom til sögunnar. Í þessum fyrsta þætti verður sagt frá því hvernig íslenska hitaveitan varð til.
Viðmælandi þáttarins er Stefán Pálsson, sagnfræðingur, sem þekkir sögu hitaveitunnar út og inn.

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Í þættinum verður fjallað um orku- og veitumál frá hinum ýmsu hliðum.