28. apríl 2017 Skipað í stjórn Landsvirkjunar á aðalfundi Á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var miðvikudaginn 26. apríl 2017, skipaði fjármála- og efnahagsráðherra aðalmenn og varamenn í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið. Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru: • Jónas Þór Guðmundsson • Ragnheiður Elín Árnadóttir • Haraldur Flosi Tryggvason • Álfheiður Ingadóttir • Kristín Vala Ragnarsdóttir Þetta er í fyrsta sinn í sögu Landsvirkjunar sem konur eru í meirihluta stjórnar. Úr stjórn fóru Jón Björn Hákonarson, Helgi Jóhannesson og Þórunn Sveinbjarnardóttir en þau hafa setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2014 og var þeim þakkað fyrir vel unnin störf. Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru: Ásta Björg Pálmadóttir, Páley Borgþórsdóttir, Lárus Elíasson, Ragnar Óskarsson og Albert Svan Sigurðsson. Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár, sem má finna í rafrænni ársskýrslu á landsvirkjun.is. Jafnframt var Deloitte ehf. kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar að fenginni tillögu Ríkisendurskoðunar. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Haraldur Flosi Tryggvason var kjörinn varaformaður. Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2016.