Raforkuverð til stóriðju og til almennings – Morgunverðarfundur Samorku miðvikudaginn 7. október

Í nýrri skýrslu AtvinnuLífsins Skóla er fjallað um raforkuverð á Íslandi 1997 – 2008 og áhrif aukinnar raforkusölu til orkufreks iðnaðar á raforkuverð á almennum markaði. Skýrslan verður kynnt og rædd á morgunverðarfundi Samorku í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 7. október.

Dagskrá

08:00 Morgunverður

08:30 Fundur hefst

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri ALS, kynnir skýrslu

     Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á
          Akureyri, fjallar um málefnið.

     Umræður

09:30 Fundarlok

Fundarstjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, alþingismaður

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku í síma 588 4430 eða með tölvupósti til the@samorka.is.