10. ágúst 2026 Hyggjast helminga uppbyggingartíma raforkunets Norska ríkisstjórnin hefur kynnt umfangsmiklar aðgerðir sem eiga að hraða uppbyggingu raforkuframleiðslu og raforkunets. Meðal þeirra eru tveggja ára hámarksafgreiðslutími leyfisumsókna, einfaldari rannsóknar- og matskröfur og aukin forgangsröðun mikilvægustu orku- og netframkvæmda landsins. Markmið ríkisstjórnarinnar er að helminga þann tíma sem fer í undirbúning, leyfisveitingar og uppbyggingu landsflutningskerfis og svæðisneta. Þegar norska raforkunetsnefndin skilaði skýrslu árið 2022 var talið að ferlið gæti tekið allt að 14 ár fyrir stærstu flutningslínurnar. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir eftirspurn eftir raforku og flutningsgetu hafa aukist hratt án þess að uppbyggingin hafi fylgt eftir. Nauðsynlegt sé að einfalda regluverkið og draga úr skrifræði til að tryggja samkeppnishæf raforkuverð, styðja við atvinnu- og iðnaðaruppbyggingu og draga úr losun. Tveggja ára hámarksafgreiðslutími og einfaldari ferlar Meðal fyrirhugaðra aðgerða eru: Einfalda meðferð sveitarfélaga á vindorkumálum á landi, m.a. með því að afnema kröfu um deiliskipulag. Lögfesta rétt sveitarfélaga til að samþykkja eða hafna vindorkuuppbyggingu. Hvetja sveitarfélög til að leggja betur til hliðar svæði fyrir endurnýjanlega orkuframleiðslu, sérstaklega á stórum iðnaðar- og atvinnusvæðum og þar sem gert er ráð fyrir mikilli raforkunotkun. Einfalda rannsóknar- og matskröfur. Ríkið mun aðstoða sveitarfélög og fylki við uppbyggingu nýrrar raforkuframleiðslu og þróun flutnings- og dreifikerfa. Heimila undanþágur frá kröfum um umhverfismat fyrir tiltekin mjög brýn samfélagslega mikilvæg verkefni. Fella niður kröfur um tiltekin rannsóknarefni sem ekki tengjast umhverfisáhrifum. Einfalda mat á orku- og netframkvæmdum. Setja tveggja ára hámarksafgreiðslutíma fyrir leyfisveitingar bæði vegna netframkvæmda og nýrrar raforkuframleiðslu. Krefjast þess að umhverfisyfirvöld forgangsraði orkutengdum málum. Skýrara hlutverk sveitarfélaga í vindorkumálum Katrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur hjá Samorku, segir tillögurnar sýna skýrt hversu brýn þörf sé á hraðari uppbyggingu grænnar orku. „Tillögur norskra stjórnvalda um einföldun og hraðari uppbyggingu grænnar orku endurspegla vel hversu brýn þörfin er. Þetta er raunveruleiki sem við þurfum að horfast í augu við, rétt eins og frændur okkar í Noregi. Þarna birtast skýr áform um tveggja ára hámarksafgreiðslutíma leyfisumsókna, sem Samorka og íslensk orku- og veitufyrirtæki hafa lengi kallað eftir hér á landi.“ Katrín bendir jafnframt á að tillögurnar feli meðal annars í sér einfaldari rannsóknar- og matskröfur, einfaldari skipulagsvinnu og hvata fyrir sveitarfélög til að taka frá svæði fyrir græna orkuframleiðslu í tengslum við iðnaðar- og atvinnusvæði. „Við munum fylgjast vel með framgangi þessara mála í Noregi. Þar verða vafalítið gerðar lagabreytingar sem skynsamlegt verður fyrir okkur að líta til,“ segir Katrín. Ríkisstjórnin hyggst jafnframt einfalda leyfisferli vindorku á landi. Sveitarfélög halda rétti sínum til að samþykkja eða hafna vindorkuverkefnum en eiga að fá tekjur af þeim fyrr en nú. Þau verða jafnframt hvött til að skipuleggja svæði fyrir endurnýjanlega orkuframleiðslu, einkum þar sem gert er ráð fyrir nýrri atvinnustarfsemi eða mikilli raforkunotkun. Græn orka forsenda samkeppnishæfni og orkuskipta Norska ríkisstjórnin leggur áherslu á að nægt framboð endurnýjanlegrar orku og öflugt raforkunet séu forsendur orkuskipta, samkeppnishæfni, atvinnuuppbyggingar og viðnámsþróttar samfélagsins. Aðgerðirnar eiga margt sameiginlegt með þeirri umræðu sem nú fer fram á Íslandi og þeim breytingum sem íslensk stjórnvöld hafa ráðist í eða boðað. Þær undirstrika jafnframt að hraðari uppbygging grænnar orku kallar á skýrari ferla, markvissari forgangsröðun og áframhaldandi umbætur á regluverki. Nánar um málið: https://www.regjeringen.no/no/aktuelt/regjeringen-tar-store-grep-for-raskere-utbygging-av-kraft-og-stromnett/id3169878/