Loftslagskvótar myndu auka verðmæti orkulinda okkar Orkumál á krossgötum – Hvert stefnir? Hvað viljum við? Þessi var titill erindis sem Þorkell Helgason orkumálastjóri flutti á hádegisverðarfundi Samorku um orku- og loftslagsmál, sem haldinn var í kjölfar aðalfundar samtakanna. Þorkell fjallaði um loftslagsmálin og um stöðu mála í orkubúskap veraldar, og um stöðu Íslands í þessu samhengi. Þorkell dró mál sitt þannig saman í lokin og „kastaði fram nokkrum spurningum, jafnvel fullyrðingum:“ Mannkynið stendur ótvírætt á krossgötum í orkumálum. Tímiódýrs jarðefnaeldsneytis er liðinn og loftslagið þolir ekki meiriútblástur. Vonandi næst samstaða þjóða á meðal um kröftuga stjórn áloftslagsmálum. Æskilegast er að það væri með almennumframseljanlegum losunarkvótum. Markaðsöflin munu þá sjá tilþess að lausnir finnist. Við Íslendingar erum í grundvallaratriðum vel settir í þessusamhengi. Við þurfum ekki að óttast loftslagskvóta; þvert ámóti auka þeir verðmæti orkulinda okkar. Við ættum því aðfagna slíku fyrirkomulagi. Þá eigum við að hasla okkur völl í alþjóðasamfélaginu á sviðivistvænnar orku. Beinast liggur þá við að hefja stórútrás í jarðhitamálum;ekki aðeins á þekkingu og vísindum á sviði hansheldur einnig á rekstrarþættinum. Einnig getum við orðiðbrautryðjendur á sviði vistvæns eldneytis. Okkur skortir heildstæða orkustefnu um það hvað við viljumnýta og í hvaða áföngum. Um það hvernig við viljum deila útorkugæðunum og hvað eigi að verða um vaxandi arð af þeirrinýtingu. Sama á við um losunarkvóta. Við þurfum strax að mótaheildarstefnu um útdeilingu þeirra. Sjá erindi Þorkels á vef Orkustofnunar.