Hitaveita í 100 ár: Útilistaverk vígt í Mosfellsbæ laugardaginn 31. maí

Laugardaginn 31. maí verður vígt nýtt útilistaverk í Mosfellsbæ, sem Samorka reisir í samvinnu við bæinn í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, og 20 ára afmæli Mosfellsbæjar. Jafnframt verður vígt nýtt torg við Þverholt, en verkið er hluti af torginu, ásamt með nýju fræðsluskilti sem OR reisir í samstarfi við Mosfellsbæ í tengslum við varðveislu á gömlum hitaveitustokk við torgið.

Vígsluhátíðin hefst kl. 13.00, á nýja torginu við Þverholt í Mosfellsbæ, og verður dagskráin sem hér segir:

· Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur
· Bæjarstjóri Mosfellsbæjar Haraldur Sverrisson vígir hið nýja torg við Þverholt.
· Karlakórinn Stefnir syngur undir stjórn Gunnars Ben.
· Formaður afmælisnefndar Samorku, Guðmundur Davíðsson, og forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, Karl Tómasson, vígja hið nýja útilistaverk, sem ber heitið „Hundrað þúsund miljón tonn af sjóðheitu vatni“.  Verkið er eftir Kristin Hrafnsson myndlistarmann.
· Kjartan Magnússon, stjórnarformaður OR, flytur ávarp og vígir nýtt fræðsluskilti við hitaveitustokk sem enn stendur við enda torgsins, en gerð skiltisins er samstarfsverkefni OR og Mosfellsbæjar.
· Loks leikur Orkusveitin – kvintett Reynis Sigurðssonar.

Kynnir er Helgi Pétursson.

Að vígslu lokinni verður boðið upp á gönguferð fyrir þá sem það vilja á vegum Sögufélags Kjalarnesþings og Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar (UNM) í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur. Um er að ræða fræðslugöngu með leiðsögn sem ber heitið „Sveitin og heita vatnið“. Gengið verður frá Kjarna, upp með Varmá og að Reykjum og meðal annars áð í Dælustöðinni á Reykjum þar sem boðið verður upp á  hressingu. Gestur Gíslason, jarðfræðingur, mun taka á móti gestum þar.  Bjarki Bjarnason er leiðsögumaður í ferðinni.

Tilefni hátíðarhaldanna er 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi árið 2008, en þar er miðað við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni að standa að gerð útilistaverks í bænum.

Útilistaverkið er hringur, sex metrar að þvermáli. Undir verkinu er rennandi heitt vatn sem myndar gufu upp  úr 22  áletruðum grindum úr sögu hitaveitu og Mosfellsbæjar. Í miðju verksins er ljósastaur sem lýsir upp hringinn, gufuna og gróðurinn í kring. Í ályktun  dómnefndar segir m.a.: „Hugmyndafræðilegur bakgrunnur nær á skemmtilegan hátt að samtvinna  sögu Mosfellsbæjar og sögu hitaveitunnar. Góð tenging er því bæði við söguna, umhverfið og heita vatnið“. Gerð verksins varð samstarfsverkefni Samorku og Mosfellsbæjar.