21. febrúar 2014 Guðrún Erla, Kristján og Þórður endurkjörin í stjórn Samorku Á aðalfundi Samorku voru endurkjörin til setu í stjórn samtakanna þau Guðrún Erla Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur, Kristján Haraldsson orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða og Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets. Þá var Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku endurkjörinn sem varamaður í stjórn. Öll voru þau kjörin til tveggja ára. Áfram sitja jafnframt í stjórn, kjörnir til tveggja ára á aðalfundi 22. febrúar 2013: Aðalmenn: Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, formaður stjórnar Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Júlíus J. Jónsson, forstjóri HS Veitna Varamenn: Dagur Jónsson, vatnsveitustjóri Vatnsveitu Hafnarfjarðar Guðmundur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella