Gestur Pétursson ráðinn framkvæmdastjóri Veitna

Gestur Pétursson er nýráðinn framkvæmdastjóri Veitna.

Stjórn Veitna ohf. hefur ráðið Gest Pétursson forstjóra Elkem Ísland sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Það skýrist á næstunni hvenær Gestur hefur störf.

Gestur var framkvæmdastjóri öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismála hjá Elkem Ísland frá því í árslok 2010 og forstjóri fyrirtækisins síðustu liðlega fimm árin. Í störfum sínum fyrir Elkem Ísland hefur hann unnið að innleiðingu og samþættingu nýsköpunar í fyrirtækjamenningu félagsins til að takast á við þau tækifæri sem orkuskiptin í heiminum fela í sér, vöruþróun gagnvart viðskiptavinum og umbótum á kostnaðargrunni verksmiðjunnar á Grundartanga.

Samhliða störfum fyrir Elkem Ísland hefur Gestur setið í stjórnum félaga á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars í stjórn samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir og í stjórn Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð.

Gestur lauk meistaragráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði með áherslu á orkumál og áhættustýringu frá Oklahoma State University í Bandaríkjunum árið 1998.

„Það er mikil tilhlökkun að tilheyra öflugu teymi hjá traustu fyrirtæki með skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn um þá mikilvægu lífsgæðaþjónustu sem fyrirtækið veitir einstaklingum, fjölskyldum, fyrirtækjum og stofnunum. Orkuskiptin framundan, orkusparnaður, orkuframboð hverju sinni, hreinleiki vatnsins, gæði fráveitunnar og alls kyns áskoranir í umhverfismálum eru og verða daglegt viðfangsefni þess öfluga teymis sem starfsfólk Veitna myndar“ segir Gestur Pétursson, nýráðinn framkvæmdastjóri Veitna.