Fagmeistari krýndur á Fagkeppni 2026

Mikil stemning myndaðist á Fagþingi Samorku þegar hin árlega fagkeppni fór fram. Þar tókust lið úr geiranum á í skemmtilegum og fjölbreyttum verkefnum. Lið Veitna stóð að lokum uppi sem sigurvegari í ár.

Liðið sýndi frábæra samvinnu, útsjónarsemi og keppnisskap og átti sigurinn svo sannarlega skilið.

Hildur Ingvarsdóttir, skólastjóri Tækniskólans, Víglundur Laxdal Sverrisson, skólastjóri Véltækniskólans og Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara sáu um að dæma keppnina.

Við hjá Samorku óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn og þökkum öllum sem tóku þátt fyrir frábæra stemningu og skemmtilega keppni.