5. apríl 2001 Drög að dagskrá komin fyrir Orkuþing 2001 Drög að dagskrá Orkuþings liggur nú fyrir, með fyrirvara um breytingar. Mikill fjöldi tillagna um erindi barst og verður að hluta til fundað í fjórum og jafnvel fimm sölum á Grand Hótel um ýmsar hliðar orkumála. Flutt verða um 120 erindi þessa þrjá daga. Smelltu á hana Jóku hér til hliðar til að fá nánari upplýsingar. Hún Jóka er tröllkona. Hún tilheyrir Gjótufólkinu sem voru frumbyggjar Íslands. Á myndinni er hún að baða sig í heitri laug. Með henni á myndinni er hverafugl af kyni hrafns. Myndin er máluð af Elínu G. Jóhannsdóttur myndlistarkonu, en hún hefur málað margar myndir af Gjótufólkinu.