23. janúar 2015 Að gefnum tilefnum: Röðun í nýtingarflokk þýðir ekki að virkjun rísi Samorka vill að gefnum tilefnum minna á að ákvörðun um að raða orkukosti í nýtingarflokk rammaáætlunar þarf alls ekki að þýða að umrædd virkjun eigi eftir að rísa. Að lokinni röðun í nýtingarflokk tekur við vandað, faglegt og lýðræðislegt stjórnsýsluferli mats á umhverfisáhrifum framkvæmda, auk skipulagsferla og ferla leyfisveitinga. Út úr þeim ferlum getur hæglega komið sú niðurstaða að ekkert verði af umræddum framkvæmdum, eða að á upphaflegum hugmyndum verði gerðar verulegar breytingar og kveðið á um að grípa þurfi til ýmiss konar mótvægisaðgerða. Hið sama á raunar við um röðun í verndarflokk rammaáætlunar. Sú röðun hefur í för með sér að hefja eigi undirbúning friðlýsingar á grundvelli laga um náttúruvernd eða á grundvelli þjóðminjalaga. Einnig þar er um að ræða vandað og lýðræðislegt stjórnsýsluferli. Vinna verkefnisstjórnar rammaáætlunar fer meðal annars fram á grundvelli laga um mat á umhverfisáhrifum áætlana. Ferli umhverfismats framkvæmda tekur við síðar, hafi umræddum kosti verið raðað í nýtingarflokk og kjósi orkufyrirtæki að þróa kostinn áfram. Sama á við um skipulagsferli. Ómakleg gagnrýni Í vikunni hefur heyrst hávær gagnrýni á Orkustofnun fyrir þann lista yfir orkukosti sem stofnunin hefur lagt fyrir verkefnisstjórn rammaáætlunar til umfjöllunar, sem sumum hafði áður verið raðað í verndarflokk og öðrum áður í nýtingarflokk. Orkustofnun er þarna að vinna sína vinnu samkvæmt 9. gr. laga nr. 48/2011 um rammaáætlun. Fjöldi kosta er til umfjöllunar en aðferðafræði rammaáætlunar byggir að verulegu leyti á innbyrðis samanburði orkukosta. Meðal annars þess vegna er eðlilegt að vænlegustu og hagkvæmustu orkukostirnir séu þar til umfjöllunar jafnframt kostum sem sjálfsagt fáir styðja að verði nýttir til orkuframleiðslu. Þannig næst eðlilegur samanburður og eðlilegt samhengi í starfið. Einnig hefur heyrst hávær gagnrýni á boðaða breytingartillögu meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis við tillögu til þingsályktunar um rammaáætlun. Þar virðist vera ríkjandi það sjónarmið að Alþingi hafi ekki heimild til að gera breytingar á framlögðu þingmáli ráðherra, sem er sjónarmið sem vissulega vekur athygli. Því miður hefur mikið borið á gífuryrðum í þessari umræðu, meðal annars af hendi aðila sem hljóta að vita vetur. Fullyrðingar um að með þessu sé verið að vega að öllum friði um rammaáætlun og hann sé jafnvel úti fyrir vikið vekja furðu, enda einfaldlega um eðlileg stjórnsýsluferli að ræða á grundvelli viðkomandi laga. Hér má sjá einfaldaða mynd Eflu verkfræðistofu af ferli orkuöflunar, eins og það lítur að loknu ferli rammaáætlunar.
19. janúar 2015 Aðalfundur Samorku 20. febrúar Aðalfundur Samorku verður haldinn föstudaginn 20. febrúar á Grand Hótel Reykjavík. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 10:30, en skráning kl. 10:00. Opin dagskrá hefst kl. 13:30. 13.30 Opin dagskrá aðalfundar aðalfundar Samorku Fundarsetning Nýkjörinn formaður Samorku Ávarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra Ragnheiður Elín Árnadóttir Raforkukerfi í vanda Ragnar Guðmannsson, yfirmaður stjórnstöðvar Landsnets Hömlur á þróun atvinnulífs Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð 15:00 Kaffiveitingar í fundarlok
8. janúar 2015 Menntaverðlaun atvinnulífsins 2015 – óskað eftir tilnefningum Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 19. febrúar. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 19. janúar. Menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2015 verða útnefnd en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Sjá nánar á vef Samtaka atvinnulífsins.
15. desember 2014 Norræna fráveituráðstefnan, NORDIWA 2015 – Kallað eftir erindum Opnað hefur verið fyrir útdrætti úr erindum fyrir norrænu fráveituráðstefnuna – NORDIWA 2015. Ráðstefnan verður haldin 4.-6. nóvember 2015 í Bergen og tekur Samorka þátt í skipulagningu ráðstefnunnar. Opnað verður fyrir skráningar á ráðstefnuna í lok janúar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu NORDIWA 2015.
3. desember 2014 Aftur í átt til sáttar Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar: Aftur í átt til sáttar Fregnir af því að meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis hyggist leggja til að átta orkukostir verði færðir úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar hafa sums staðar vakið hörð viðbrögð. Því er jafnvel haldið fram að með þessu verði rofin „sátt“ um þennan málaflokk. Sú sátt var hins vegar rofin í ágúst 2011. Í janúar 2013 var síðan gengið enn lengra gegn meintri sátt um málaflokkinn. Tillagan sem nú er til umræðu miðar að því að færa rammaáætlun aftur í átt að þeirri sátt sem hún átti að geta orðið, eftir að verkefnisstjórn 2. áfanga skilaði sínum faglegu niðurstöðum. Eftir um átta ára faglega vinnu skilaði verkefnisstjórnin 2. áfanga af sér röðun 69 orkukosta til tveggja ráðherra í ágúst 2011. Efst var raðað þeim kostum sem taldir voru vænlegastir til orkunýtingar, neðst þeim sem helst var talin ástæða til að vernda. Í verkefnisstjórninni sátu fulltrúar mismunandi aðila og á vegum hennar störfuðu fjórir faghópar. Fagleg niðurstaða verkefnisstjórnar var forsenda sáttar. Nú átti einungis eftir að raða kostunum í nýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Sáttin rofin Í lokuðu ferli innan tveggja ráðuneyta var kostunum raðað í flokka. Ekki varð þó niðurstaðan þannig að efstu kostirnir færu í nýtingarflokk, neðstu í verndarflokk og afgangurinn, úr miðjunni, í biðflokk. Nei, tólf af þessum 69 kostum rötuðu á einhvern hátt niður listann. Kostir sem raðað hafði verið ofarlega (frá sjónarhorni orkunýtingar) af verkefnisstjórn höfnuðu í biðflokki, jafnvel í verndarflokki. Einn kostur sem raðað hafði verið fremur neðarlega hafnaði í biðflokki, annars færðust orkukostirnir (tólf) eingöngu niður listann. Þarna var sáttin rofin. Í janúar 2013 samþykkti Alþingi síðan sex breytingar á þeim drögum að röðun í flokka sem getið er hér að framan. Sex orkukostir voru færðir úr nýtingarflokki í biðflokk. Enginn var færður í aðra átt. Ljóst er að Alþingi fer með það vald að raða orkukostum í flokka. En forsenda sáttar um málið hlýtur að vera fólgin í því að Alþingi fylgi faglegum tillögum verkefnisstjórnar. Það var ekki gert í janúar 2013, heldur höfðu þá fyrst tólf og síðar sex kostir verið færðir niður listann, í átt frá orkunýtingu. Sú tillaga sem nú er til umræðu snýst um að hverfa aftur í átt að niðurstöðu verkefnisstjórnar 2. áfanga rammaáætlunar, sem byggði á faglegri vinnu til átta ára. Það væri stórt skref í átt til sáttar um málið.
25. nóvember 2014 Fjöldi fróðlegra erinda á haustfundi Landsvirkjunar Á haustfundi Landsvirkjunar komu m.a. fram áhugaverðar upplýsingar um fjárhagsstöðu fyrirtækisins, eftirspurn eftir raforku frá áliðnaði, kísiliðnaði og gagnaverum, um áhrif hærra raforkuverðs, krefjandi markaðsumhverfi, sæstreng, rammaáætlun og um virkjunarkosti til athugunar á sviði vatnsafls, jarðhita og vindorku. Glærur fundarins má nálgast hér á vef Landsvirkjunar.
19. nóvember 2014 Alþjóðlegur dagur salerna – 19. nóvember Árið 2013 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna að 19. nóvember yrði skilgreindur sem alþjóðlegur dagur salerna. Samkvæmt nýjustu tölum frá UN water þá skortir yfir 2,5 milljarð einstaklinga fullnægjandi aðgengi að salernisaðstöðu. Heilbrigðisvandamálin vegna þessa eru eins og gefur að skilja gríðarleg. Samorka vill í tilefni dagsins vekja athygli á herferð UN Water til að taka á þessu máli og hvetja alla áhugasama til að taka þátt og hjálpa til. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu UN Water:
13. nóvember 2014 Skráning á World Geothermal Congress 2015 Skráning á World Geothermal Congress (WGC) 2015, heimsþing Alþjóða jarðhitasambandins (IGA), er í fullum gangi. Heimsþingið fer fram í Ástralíu dagana 19.-24. apríl 2015. Frekari upplýsingar um skráningu má finna á heimasíðu WGC 2015.
6. nóvember 2014 Rammaáætlun: Sex orkukostir fari aftur í nýtingarflokk Samorka styður í umsögn sinni tillögu til þingsályktunar þess efnis að orkukosturinn Hvammsvirkjun verði færður úr biðflokki rammaáætlunar aftur í nýtingarflokk, þar sem hann var áður flokkaður fyrir afgreiðslu Alþingis í janúar 2013. Samorka beinir því jafnframt til Alþingis að ályktað verði um að snúa aftur til faglegrar niðurstöðu fyrri verkefnisstjórnar og færa alla þá sex orkukosti sem Alþingi færði úr nýtingarflokki í biðflokk, þvert á faglegar niðurstöður verkefnisstjórnar, til baka í nýtingarflokk. Jafnframt verði ályktað þess efnis að núverandi verkefnisstjórn ljúki því verkefni sem henni var falið í skipunarbréfi, að forgangsraða vinnu við þá tvo aðra kosti sem jafnframt var fjallað um sérstaklega í nefndaráliti þáverandi meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis við afgreiðslu málsins í janúar 2013. Til vara gerir Samorka tillögu um að Alþingi beini því til verkefnisstjórnar að ljúka hið fyrsta umfjöllun um alla framangreinda átta kosti, sbr. fyrrnefnt nefndarálit og skipunarbréf ráðherra. Loks gerir Samorka tillögu um að í framhaldinu verði vinnu verkefnisstjórnar forgangsraðað þannig að fjallað verði um þá kosti sem best hafa verið rannsakaðir og lengst eru komnir í undirbúningi, í ljósi þess tímahraks sem vinnan er komin í. Sjá nánar í umsögn Samorku um þingsályktunartillöguna.
30. október 2014 Landsnet hefur mat á umhverfisáhrifum Sprengisandslínu Landsnet hefur ákveðið að hefja undirbúning mats á umhverfisáhrifum Sprengisandslínu, 220 kV háspennulínu milli Suður- og Norðurlands. Því er ætlað að kanna nánar umhverfisáhrif línunnar og leggja mat á kosti um leiðarval og útfærslur. Þegar er gert ráð fyrir háspennulínu og vegi um þetta svæði í aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélaga og einnig er gert ráð fyrir háspennulínu og vegi yfir Sprengisand í gildandi svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands til 2015. Sjá nánar á vef Landsnets.