Algaennovation opnar í Jarðhitagarðinum

Algaennovation Iceland hefur opnað smáþörungaverksmiðju í Jarðhitagarðinum við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar. Þetta er fyrsta fyrirtækið sem hefur starfsemi í Jarðhitagarði ON í Ölfusi.

Markmiðið með Jarðhitagarðinum er einmitt að breyta fjölbreyttum auðlindastraumum á jarðhitasvæðinu í verðmæti til framtíðar.

Frá opnun í Jarðhitagarðinum. Mynd:
Algaennovation

Algaennovation er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki sem þróað hefur aðferð til að breyta orku í fæðu og nýtir til þess rafmagn, kalt- og heitt vatn beint frá ON Hellisheiðarvirkjun. Verkefnið er í raun það fyrsta sinnar tegundar í heiminum þar sem þessi umbreyting á sér stað með skilvirkari hætti en áður hefur þekkst. Þá er stefnt að því að starfsemin verði kolefnisneikvæð. Það byggist á því að meira koldíoxíð er notað til að næra þörungana í ræktuninni en framleiðslan í heild losar. Þá er tæknin hér á landi klæðskerasniðin utan um jarðhitaauðlindirnar sem eru til staðar á Íslandi.

Jarðhitagarður ON var settur á laggirnar með það að leiðarljósi að byggja upp samfélag fyrirtækja sem leggja áherslu á umhverfið, nýsköpun og tækniþróun. Jarðhitaauðlindin og nýting hennar í Hellisheiðarvirkjun gefa af sér marga strauma, ekki bara rafmagn heldur líka kalt og heitt ferskvatn, steinefnaríkt vatn og gastegundir. Þessir straumar eru ekki fullnýttir í dag og gefa mikla möguleika á framtíðarverðmætum.