Agnes Ástvaldsdóttir ráðin verkefnastjóri faghópa

Agnes Ástvaldsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri faghópa hjá Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja.

Agnes hefur frá 2017 starfað sem verkefnastjóri þróunar og nýsköpunarverkefna í þróunardeild Össur. Þar áður vann hún í fimm ár sem verkefnastjóri fjárfestingaverkefna hjá Norðuráli og á framkvæmdasviði Ljósleiðarans.

Agnes hefur yfir 10 ára reynslu sem verkefnastjóri og er með IPMA vottun í verkefnastjórnun. Hún er MSc. gráðu í Nýsköpunarverkfræði frá Technical University of Denmark (DTU) og leggur stund á EMBA við Háskólann í Reykjavík.

Agnes hóf störf 1. júní.