24. mars 2026 ESB opnar samráðsgátt um ramma fyrir endurnýjanlega orku eftir 2030 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hleypt af stokkunum samráðsferli til að móta lagaramma ESB fyrir endurnýjanlega orku á næsta áratug þessarar aldar. „Renewable energy framework post-2030.“ Markmiðið er að Evrópa haldi sínu striki í að ná loftslagsmarkmiðum en tryggja einnig samkeppnishæfni álfunnar, orkuöryggi og sjálfbærni. Stefnan er að sú að þessi löggjafartillaga framkvæmdastjórnarinnar verði afgreidd fyrir árslok. Við gerð tillögunnar vill framkvæmdastjórnin nýta sér það sem haghafar og almenningur leggur af mörkum í samráðinu. ESB segir að tilgangurinn með lagarammanum um endurnýjanlega orku á næsta áratug, eftir 2030, sé að tryggja áreiðanlegt framboð af orku sem framleidd er í Evrópu á viðráðanlegu verði fyrir almenning og fyrirtæki. Í kynningu á samráðsgáttinni er lögð áhersla á að endurnýjanlegir orkugjafar verði liður í því að ná markmiðum ESB um að árið 2040 verði búið að minnka losun gróðurhúsalofttegunda innan sambandsins um 90% miðað við losun árið 1990. Þetta þurfi að gera með hagkvæmum og sjálfbærum hætti. Þegar litið er á samsetningu orkugjafa innan ESB (energy mix) hefur hlutur endurnýjanlegra orkulinda tvöfaldast á undanförnum 13 árum og var 25,4% árið 2024. Þetta þýðir þó líka að hraða þarf þróuninni í þessum geira og auka t.d. mjög notkun hreinnar orku í flutningum, hitun og kælingu. Framkvæmdastjórn ESB hvetur haghafa og almenning til að senda innlegg í þessa samráðsgátt. Annars vegar er kallað eftir gögnum og upplýsingum eða „call for evidence“ og er sú gátt opin til 16. apríl n.k. Almenn samráðsgátt eða „Public Consultation“ er opin til 12. júní n.k. Þessi framtíðarstefnumótun ESB um lagaumhverfi, reglur og fleira mun á efa snerta hagsmuni íslenska orku- og geirans með margvíslegum hætti enda eru allar okkar orkulindir endurnýjanlegar. Og frá gildistöku samningsins um Evrópska efnahagssvæðið hafa löggjöf og reglur ESB að verulegu leyti mótað starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækja hér á landi. Það er því þess virði að kynna sér málið nánar, sjá hvað framtíðin kann að bera í skauti sér og leitast við að hafa áhrif á hvernig hún lítur út, með því að koma að sjónarmiðum okkar í þessa samráðsgátt. Sjá hér hlekk á samráðsgátt framkvæmdastjórnar ESB með margvíslegum fleiri upplýsingum. https://energy.ec.europa.eu/news/renewable-energy-framework-post-2030-consultations-launched-2026-03-20_en: ESB opnar samráðsgátt um ramma fyrir endurnýjanlega orku eftir 2030