19. mars 2026 Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra gerði mikilvægi áfallaþols og varnir gegn fjölþáttaógnum að umtalsefni í fréttaviðtali við RUV í kjölfar þess að hún og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins (ESB), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál í Brussel í gær, 18. mars. „Það felst margt í samkomulaginu, m.a. að við Íslendingar erum að tryggja okkur aðgang að verkefnum, gríðarlega mikilvægt, aðgang að sérfræðiþekkingu á þessum tímum og líka ákveðinni greiningargetu. Þetta skiptir okkur máli í okkar vörnum, ekki síst gegn fjölþáttaógnum. Þar er Evrópusambandið algjörlega í leiðtogahlutverki,“ sagði Þorgerður Katrín. Hún var einnig spurð um þá staðreynd að samkvæmt samkomulaginu fær Ísland aðgang að sjóðum og verkefnum sem ganga út á fjárfestingum í varnar- og öryggistengdri starfsemi. Spurningin væri hvort það væri eitthvað sem Ísland ætti heima í? „Já ég myndi segja það,“ sagði utanríkisráðherra og benti á ýmis íslensk fyrirtæki sem hafi náð góðum árangri, t.d. í nýsköpun. „Þau hafa sýnt að þau geta þróað vörur, varning, tæki og tól til að styrkja og auka getu Evrópu til að ýta undir seiglu, varnargetu, þolgæði og áfallaþolið. Allt þetta skiptir máli og það er mikilvægt að tengjast við þetta, m.a. með íslenskan iðnað í huga,“ sagði utanríkisráðherra í kvöldfréttum RUV. Þorgerður Katrín var einmitt meðal frummælenda á ársfundi Samorku, 17. mars þar sem efling áfallaþols ómissandi innviða var í brennidepli. Utanríkisráðherra sagði á fundinum að öryggisumhverfi Evrópu væri að breytast hratt og við gætum ekki lokað augunum fyrir fjölþáttaógnum sem að okkur steðja. „Ef árás yrði gerð á Ísland yrði hún að mínu mati ekki í formi hefðbundins landhernaðar heldur atlaga að innviðum,“ sagði Þorgerður Katraín en tók líka fram að íslenskt samfélag stæði vel að vígi að mörgu leyti. Í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins kemu fram að með samstarfsyfirlýsingunni við ESB sé áréttaður pólitískur vilji Íslands og Evrópusambandsins um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Yfirlýsingin sé ekki skuldbindandi og feli ekki í sér kvaðir um framlög eða þátttöku Íslands í verkefnum ESB. Samorka skilaði nýlega inn í samráðsgátt umsögn um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB fyrir 2028-2034. Stærsta breytingin frá núverandi fyrirkomulagi felst í stofnun nýs Samkeppnishæfnissjóðs (e. European Competitiveness Fund, ECF) upp á 234,3 milljarða evra Í honum verða sameinaðar 14 núgildandi áætlanir og þar af eru sjö sem Ísland á nú þegar aðild að. Sjóðnum er skipt í fjóra stefnuglugga en sá langstærsti, snýst um viðnámsþol, öryggi, varnariðnað og geiminn (space). Samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnar ESB fær hann 125,2 milljarða evra í framlög. Undir þennan glugga fellur borgaralegt öryggi, t.d. lykilinnviðir og einnig tækni með tvíþætt notagildi (dual use), fyrir borgaraleg og hernaðarleg not. Almannavarnaáætlun ESB (Union Civil Protection Mechanism – UCPM) er önnur samstarfsáætlun ESB sem hefur þann tvíþætta tilgang að samhæfa viðbrögð við neyðarástandi í Evrópu og sömuleiðis að efla áfallaþol og fyrirbyggjandi aðgerðir aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórn ESB leggur til að styrkja þessa áætlun verulega til að auka m.a. samvinnu um forvarnir og efla undirbúning og viðbrögð við náttúru- og heilsuvá, sem og ógnum af manna völdum. Samorka benti í umsögn sinni á að sterkir orku- og veituinnviðir væru hluti af öflugum almannavörnum og viðnámsþrótti og því sé mikilvægt að íslensk stjórnvöld skoði vel og kynni fyrir haghöfum hvaða möguleikar væru á styrkjum eða samstarfi sem tengist almannavarnaáætlun ESB. Hér er hægt að lesa umsögn Samorku um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034 7238541f-211e-f111-9bd6-005056bcce7e: Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra Hér er hlekkur á frétt RUV með viðtalinu við utanríkisráðherra. Fréttir – Spilari RÚV: Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra Og upptaka af ársfundi Samorku þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræddi líka um almannavarnir og öryggi, ásamt fleiri gestum. Beint streymi frá ársfundi Samorku – Samorka: Áfallaþol og varnir gegn fjölþáttaógnum mikilvægir þættir í samkomulagi við ESB segir utanríkisráðherra