Desemberfundur 2025 Árlegur desemberfundur Samorku verður haldinn fimmtudaginn 4. desember kl. 15.00 – 17.00 á Hilton Reykjavík Nordica. Dagskrá verður að venju helguð innra starfi Samorku: Opnun desemberfundar – Sólrún Kristjánsdóttir, stjórnarformaður HOP: Ný handbók og ný nálgun í öryggismálum – Hörður Lindberg Pétursson, Öryggisráði Samorku Hagsmunagæsla Samorku í Brussel – tilgangur, væntingar, virðið hingað til– Lovísa Árnadóttir ræðir við Svein Helgason, verkefnastjóra erlends samstarfs hjá Samorku og Kristínu Lindu Árnadóttur, aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar Framtíðargjaldskrá dreifiveitna – Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Rarik og í gjaldskrárhópi Samorku Störum jólaljósin á: Öryggi orkuinnviða og breytt ógnalandslag – Vigdís Eva Líndal, leiðtogi upplýsingaöryggis hjá Orkuveitunni og í Netöryggisráði Samorku Rabbað við ráðherra– Jóhann Páll Jóhannsson, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra í óformlegu spjalli við Finn Beck framkvæmdastjóra Samorku og aðra fundargesti Að dagskrá lokinni færum við okkur niður á Vox HOME þar sem boðið verður upp á jólalegan pinnamat og Kvartettinn Barbari skemmtir okkur með vel völdum „rakarastofu“-jólalögum. Athugið að fundurinn er aðeins opinn félagsfólki Samorku (starfsfólki aðildarfyrirtækja). Hægt er að skrá sig eingöngu á fundinn eða á bæði fund og jólaskemmtun. Nafn Netfang Fyrirtæki Ég mæti á Desemberfund Samorku (verð 3.500) Ég mæti á jólaskemmtun með pinnamat og skemmtiatriði (verð 8.900) Ég tek með gest/maka á jólaskemmtun (verð 8.900) Δ
10. nóvember 2025 Vestfirðir eru heitur reitur Podcast: Play in new window | Download (Duration: 45:08 — 42.7MB)Subscribe: Apple Podcasts | Spotify | Android | RSS | More Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átaki stjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá Orkubúi Vestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og hvernig Vestfirðir eru heitur reitur, líka hvað varðar jarðhita.
7. nóvember 2025 SnerpaPower handhafi Nýsköpunarverðlauna Samorku 2025 Teymi SnerpuPower ásamt fulltrúum Samorku Fyrirtækið SnerpaPower hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku árið 2025. Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar og varaformaður stjórnar Samorku, afhenti verðlaunin á opnum fundi í Hörpu í gær. Óháð dómnefnd fagfólks úr orku- og veitugeiranum valdi SnerpuPower úr hópi tilnefninga til verðlaunanna. Hugbúnaður fyrirtækisins er skýjalausn byggð á gervigreind og rauntímagögnum sem hjálpar stórnotendum raforku að draga úr kostnaði, minnka sóun og auka sveigjanleika í raforkukerfinu. Lausnin notar háþróuð spá- og hermilíkön með allt að 99,9% nákvæmni og hefur þegar sýnt fram á mælanlegan árangur með sparnaði upp á 5–10 MWh á hverri klukkustund, sem samsvarar allt að 44 GWh á ári og samdrætti í losun um 40 þúsund tonn CO₂. Í greinargerð dómnefndar kemur fram að SnerpaPower sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Samorku 2025 fyrir framúrskarandi árangur í að nýta íslenskt hugvit til að auka sjálfbærni í orku og veitugeiranum, bæta orkunýtni og styrkja samkeppnishæfni græns iðnaðar.
22. september 2025 Nýsköpunarverðlaun Samorku 2025: Óskað eftir tilnefningum Nýsköpun hefur ávallt verið stór hluti af orku- og veitugeiranum á Íslandi og hefur ný þekking og framsýni lagt grunninn að lífsgæðum í landinu og verðmætasköpun. Samorka óskar eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna Samorku, sem afhent verða á opnum fundi í Hörpu í nóvember. Þetta verður í fimmta sinn sem verðlaunin eru afhent. Samorka leitar að framúrskarandi nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem byggja á: Orku- og/eða veitutengdum tæknilausnum eða þjónustu við orku- og veitufyrirtæki Nýtingu orku, heits vatns, neysluvatns eða fráveitu og/eða annarra auðlindastrauma til nýsköpunar Dómnefnd fagfólks úr orku- og veitugeiranum mun velja úr þeim tilnefningum sem berast. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Óskað er eftir því að eftirfarandi form sé fyllt út við tilnefningu þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. Hægt verður að tilnefna til Nýsköpunarverðlaunanna til og með 12. október. Farið verður með tilnefningarnar sem trúnaðarmál. Vinsamlegast fyllið út þetta form: https://forms.office.com/e/WL9FWJA1rm Orku- og veitufyrirtækin í landinu standa að Nýsköpunarverðlaununum og verða því ekki á meðal verðlaunahafa. Handhafi Nýsköpunarverðlaunanna 2024 var Carbon Recycling International. 2023: Atmonia 2022: Alor 2021: Laki Power
10. september 2025 Umhverfis-, orku- og loftslagsmál fyrirferðarmikil í þingmálaskrá Mál tengd umhverfis-, orku- og loftslagsmálum verða fyrirferðarmikil á komandi þingvetri. Ráðherra málaflokksins hyggst leggja fram 16 frumvörp og 4 þingsályktanir, næst flest mál allra ráðherra. Mörg þessara mála hafa verið lögð fram áður eða kynnt í samráðsgátt. Búast má við einhverjum breytingum á þessum málum frá því þau voru lögð fram á fyrra þingi, en hér má sjá yfirlit yfir nokkur þessara mála: REMIT; frumvarp til breytinga á raforkulögum sem lýtur að hátternisreglum á raforkumarkaði, banni við markaðsmisnotkun og skilgreiningu innherjaupplýsinga svo fátt eitt sé nefnt. Sjá fyrra frumvarp hér. Einföldunarfrumvarp, frumvarp til breytinga á ýmsum lögum til að einfalda stjórnsýsluferla orkumála og stíga skref í átt að afgreiðslu leyfa á einum stað. Sjá fyrra frumvarp hér Ramminn einfaldaður og skilvirkni bætt, sjá fyrra frumvarp hér Stefna um öflun raforku, lagabreyting á raforkulögum og lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun um að leggja eigi fram þingsályktun um stefnu um öflun raforku til næstu 10 ára og taka eigi mið af henni í rammaáætlun, sjá frumvarp í samráðsgátt hér Lög um lofslagsmál, ný heildarlög um skipulag og stjórnsýslu loftslagsmála, sjá frumvarp í samráðsgátt hér Þá boðar ráðherra einnig ný mál og má þar helst nefna: Vindorka, frumvarp til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun þar sem markaður verður rammi um hagnýtingu vindorku. Verkefni og sjálfstæði Raforkueftirlitsins Lög um stjórn vatnamála, skýra á ákvæði laganna m.a. málsmeðferðarreglur um heimild til breytinga á vatnshloti. Ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála hyggst einnig leggja fram nokkrar þingsályktunartillögur og snúa flestar þeirra að einstökum áföngum rammaáætlunar, en ráðherra hefur boðað eftirfarandi breytingar frá fyrirliggjandi tillögum verkefnisstjórnar: 3. áfangi, Kjalalda og Héraðsvötn fari í bið en ekki í verndarflokk 5. áfangi, Hamarsvirkjun fari í bið en ekki í verndarflokk 5. áfangi, Garpsdalur – vindorka, fari í nýtingu en ekki bið. 9 önnur vindorkuverkefni eru í bið samkvæmt tillögunum. Þá eru ýmis mál sem tengjast orku- og veitumálum sem lúta stjórn annarra ráðuneyta, má þar t.d. nefna: Sveitastjórnarlög, innviðaráðherra mun leggja fram frumvarp um yfirgripsmiklar breytingar á sveitastjórnarlögum sem snerta m.a. aðildarfyrirtæki Samorku í tengslum við atvinnuþátttöku sveitarfélaga. Fasteignamat orkumannvirkja, innviðaráðherra stefnir á að leggja fram í febrúar frumvarp sem miðar að því að stærri hluti tekna af orkumannvirkjum renni til nærsamfélags. Raflínunefnd, frumvarp til breytinga á skipulagslögum frá félags- og húsnæðismálaráðherra. Samorka mun fylgjast grannt með framgangi allra þessara mála og eiga hér eftir sem hingað til virkt samtal við stjórnvöld um nauðsynlega uppbyggingu í orku- og veitumálum.
29. ágúst 2025 Opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2025. Hvetja samtökin aðildarfyrirtæki til að senda inn tilnefningar eigi síðar en 20. október 2025. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins mánudaginn 24. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Tveir verðlaunaflokkar Veitt verða tvenn verðlaun: Umhverfisfyrirtæki ársins Framtak ársins Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hvorn flokk en einnig er heimilt að tilnefna sama fyrirtækið í báða flokka. Skilyrði og rökstuðningur Dómnefnd velur úr innsendum tilnefningum en til að þær teljist gildar þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og ítarlegur rökstuðningur að fylgja með. Aðeins skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtaka þeirra geta hlotið tilnefningu. Sameiginlegt framtak atvinnulífsins Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa: Samtök atvinnulífsins Samtök iðnaðarins Samorka Samtök ferðaþjónustunnar Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi Samtök verslunar og þjónustu Hér má tilnefna fyrirtæki: Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2025 – Tilnefningar
26. ágúst 2025 Umsögn: Öll atvinnuuppbygging þarf öruggt aðgengi að grænni orku og traustum veituinnviðum Í nýrri umsögn Samorku um áform um atvinnustefnu Íslands til 2035 og birt hefur verið í samráðsgátt er lögð áhersla á að atvinnustefna verði aðeins raunhæf og framkvæmanleg ef hún byggir á skýrri stefnu um öflun orku og uppbyggingu veituinnviða. Samorka fagnar því að ríkisstjórnin leggi áherslu á innviðauppbyggingu, einfaldara regluverk og skilvirkari stjórnsýslu, en varar við að núverandi ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði ógni framgangi stefnunnar. Samorka kallar eftir skýrri aðgerðaáætlun um stóraukna orkuvinnslu, sem og hraðari uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa raforku Atvinnuuppbygging – hvort heldur í hefðbundnum atvinnugreinum eða nýjum vaxtargreinum – stendur og fellur með öruggu aðgengi að grænni orku og traustum veituinnviðum. Það er grunnur verðmætasköpunar, byggðaþróunar, nýsköpunar og árangurs í loftslagsmálum. Samorka hvetur því til þess að í endanlegri atvinnustefnu verði: Skýrt kveðið á um að tryggt framboð á grænni orku sé ein af meginforsendum efnahagslegs vaxtar. Skýrt kveðið á um mikilvægi flutnings- og dreifikerfa til að jafna samkeppnisskilyrði um allt land. Öflug uppbygging allra veituinnviða fyrir vatn, hita og fráveitu sett fram sem grundvallarforsenda vaxtar og atvinnuuppbyggingar. Skilgreint að uppbygging grænnar orku og veituinnviða teljist til brýnna almannahagsmuna. Umsögn Samorku í heild sinni má finna hér: Umsögn Samorku Atvinnustefna S.144.2025Download
23. júní 2025 Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands Podcast: Play in new window | Download (Duration: 28:17 — 22.5MB)Subscribe: Apple Podcasts | Spotify | Android | RSS | More Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy) sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma. „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku. Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn ESB. Birna segir að Íslendingar standi svolítið með pálmann í höndunum á þessu sviði því landið sé ríkt af vatni. Hinsvegar sé mikilvægt að þekkja vel auðlindina og gera sér grein fyrir hvert skuli stefna í framtíðinni. Sveinn Helgason ræðir við Birnu í þættinum. Birna starfar á umhverfissviði framkvæmdastjórnarinnar í teymi sem vinnur að ferskvatnsstjórnun og hefur átt töluverðan þátt í að móta stefnuna um viðnámsþrótt vatns sem kynnt var 4. júní s.l. Stefnan hefur m.a. tengingar við svokallaða vatnatilskipun og fráveitutilskipun ESB.
13. júní 2025 Sérfræðingur í upplýsingaöflun og greiningum Viltu taka þátt í að móta rekstrarumhverfi orku- og veitustarfsemi á Íslandi á grunni góðra gagna og upplýsandi greininga? Samorka óskar eftir að ráða drífandi einstakling sem býr yfir miklu frumkvæði, skipulögðum vinnubrögðum og getu til að sinna mikilvægum og spennandi verkefnum á sviði greininga tengdum orku- og veitustarfsemi. Um er að ræða skemmtilegt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga og getu til að safna saman og greina hagtölur og ýmsar áhugaverðar upplýsingar sem varða orku- og veitustarfsemi á Íslandi og í nágrannalöndum okkar og miðla þeim á skilvirkan hátt. Í starfinu felast tækifæri til að vinna náið með ýmsum sérfræðingum aðildarfyrirtækja Samorku auk sérfræðinga annarra samtaka í Húsi atvinnulífsins. Helstu verkefni: Söfnun, greining og miðlun upplýsinga sem varða rekstur orku og veitustarfsemi, þ.m.t. umhverfis- og loftslagsmál. Greining á áhrifum breytinga á rekstrarumhverfi orku- og veitufyrirtækja. Greining á efnahagslegri þýðingu orku- og veitustarfsemi. Skýr og greinargóð framsetning gagna og upplýsinga. Þátttaka í skipulagningu og umsjón með framkvæmd funda og ráðstefna um málefni orku- og veitugeirans. Þátttaka og faglegur stuðningur við ýmis verkefni sem unnið er að hverju sinni. Eftirfylgni með nýrri stefnu samtakanna. Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun s.s á sviði hagfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýst getur í starfi. Hæfni og áhugi á að greina upplýsingar og hagstærðir sem varða orku- og veitustarfsemi hér á landi og í nágrannalöndum. Færni í markvissri framsetningu upplýsinga jafnt skriflega, myndrænt og munnlega. Jákvæðni og mikil samskipta- og starfshæfni. Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Reynsla af starfi í orku- og/eða veitustarfsemi er kostur sem og reynsla af störfum við hagsmunagæslu. Þekking á Excel, Powerpoint eða öðrum forritum til kynninga. Um Samorku: Hjá Samorku starfar lítill en metnaðarfullur og samhentur hópur starfsmanna með brennandi áhuga á orku- og veitumálum. Aðildarfélög Samorku eru um 50 orku- og veitufyrirtæki um allt land og eru samtökin aðilar að Samtökum atvinnulífsins. Stefna Samorku er að Ísland verði áfram leiðandi og fyrirmynd annarra þjóða í nýtingu grænnar orku. Við vinnum í átt að markmiðum stjórnvalda um kolefnishlutleysi og að Ísland verði knúið og kynt með grænni orku sem unnin er með sjálfbærum og ábyrgum hætti innanlands. Samorka er atvinnugreinasamtök aðildarfyrirtækja og faglegur vettvangur þeirra í félags-, kynningar- og fræðslumálum. Það eru spennandi tímar í orku- og veitumálum við að tryggja áfram heilnæmt drykkjarvatn, umhverfisvænar fráveitur, heitt vatn og rafmagn fyrir heimilin, atvinnulífið og orkuskiptin. Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2025. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is). Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Myndir frá Samorkuþingi 2025 Metaðsókn var að Samorkuþingi á Akureyri dagana 22. – 23. maí. Ljósmyndarinn Auðunn Níelsson festi stemninguna á filmu. Christian Ruby framkvæmdastjóri Eurelectric