Drög að þingsályktun um rammaáætlun

Kynnt hafa verið drög að tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Drögin fara nú í tólf vikna opið umsagnarferli áður en þingskjal verður lagt fram á Alþingi. Samorka hefur fagnað þeim áföngum sem orðið hafa í þessu ferli, þótt samtökin hafi bent á ákveðin atriði sem betur hefðu mátt fara í vinnu verkefnisstjórnar og í lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Samtökin hafa engu að síður talið að vinna verkefnisstjórnar ætti að geta orðið grundvöllur að sátt um málaflokkinn.

Athygli vekur nú að sumir virkjanakostir sem voru fremur ofarlega í röðun verkefnisstjórnar lenda í biðflokki, jafnvel í verndarflokki, í drögum að tillögu til þingsályktunar. Á þetta t.d. við um Austurengjar, Trölladyngju og Grændal. Ekki eru dæmi um hið gagnstæða, þ.e. að orkukostir sem voru neðarlega í röðun verkefnisstjórnar séu flokkaðir í nýtingarflokk í drögum að tillögu til þingsályktunar. Samtökin munu nú fjalla um drögin á sínum vettvangi.

 

Rammaáætlun: Skýrslu verkefnisstjórnar skilað

Svanfríður Jónasdóttir, formaður verkefnisstjórnar um gerð 2. áfanga rammaáætlunar um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma, hefur skilað skýrslu verkefnisstjórnar til iðnaðar- og umhverfisráðherra. Svanfríður mun ásamt með formönnum faghópa verkefnisstjórnar um gerð rammaáætlunar og starfsfólki iðnaðar- og umhverfisráðuneyta vinna drög að þingsályktun um röðun orkukosta í nýtingar-, bið- og verndarflokka, sem lögð verður fram á Alþingi í haust. Nánari upplýsingar og skýrsluna sjálfa má m.a. nálgast hér á vef iðnaðarráðuneytis.

Fulltrúi Samorku í verkefnisstjórninni, Agnar Olsen verkfræðingur, setur í skýrslunni fram nokkrar ábendingar (kafli 9.3.5) almennt um rammaáætlun og um lög nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Ábendingar Agnars fara hér á eftir:

Fulltrúi Samorku fagnar því að vinnu við 2. áfanga rammaáætlunar er lokið með röðun virkjunarhugmynda.

Nýlega samþykkti Alþingi lög nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun en með þeim fær rammaáætlun lögformlega stöðu. Í 1. mgr. 3.gr. laganna segir : „Iðnaðarráðherra leggur í samráði og samvinnu við umhverfisráðherra eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.“ Nú tekur því við vinna undir forustu iðnaðarráðuneytisins að gerð þingsályktunartillögu um flokkun virkjunarhugmynda í verndar-, orkunýtingar- og biðflokk, sem væntanlega verður lögð fyrir Alþingi haustið 2011.

Rétt er að hnykkja á nokkrum atriðum sem æskilegt er að skoða betur í framhaldinu og snerta orkugeirann sérstaklega:

• Af 84 virkjunarhugmyndum voru 66 teknar til umfjöllunar af öllum faghópum en þar af eru 14 sem farið hafa í gegnum mat á umhverfisáhrifum samkvæmt gildandi lögum, 5 vatnsaflsvirkjanir og 9 jarðvarmavirkjanir.

• Samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laganna taka þau ekki til landsvæða sem njóta friðlýsingar í samræmi við 50 gr. laga um náttúruvernd nema tiltekið sé í friðlýsingarskilmálum að virkjunarframkvæmdir séu heimilar á viðkomandi svæði. Ekki er alveg ljóst hvaða virkjunarhugmyndir, sem eru til umfjöllunar í 2. áfanga rammaáætlunar (landsvæði), falla undir þetta ákvæði en gera má ráð fyrir að það geti náð yfir um þriðjung þess háhita sem hugsanlegt væri að nýta til raforkuvinnslu.

• Röðun virkjunarhugmynda með AHP greiningu þarf að vera gagnsærri. AHP greining faghóps um náttúru og menningarminjar byggist á; 1) mati á áhrifum orkunýtingar, 2) verðmæti svæðis í náttúru og menningarminjum, 3) sérstöku mikilvægi og 4) óvissu og áhættu sem faghópurinn taldi framkvæmdinni samfara. Faghópur um útivist, ferðaþjónustu og hlunnindi beitir sömu aðferð. Það er einkum vægi tveggja síðastnefndu þáttanna sem þarf að skoða.

• Þegar meta á áhrif virkjunarhugmynda á ferðaþjónustu, útivist, landbúnað og hlunnindi er nauðsynlegt að horfa til reynslu af núverandi virkjunum. Fjölsóttasti ferðamannastaður landsins er t.d. tengdur virkjun og á annað hundrað þúsund manns heimsækir virkjanir árlega.

• Þar sem mótvægisaðgerðum er lýst fyrir einstaka virkjunarhugmyndir á að taka þær með í mati á áhrifum virkjunar. Slíkar aðgerðir eru veigamikill hluti undirbúnings og mats á umhverfisáhrifum. Þær eru einnig snar þáttur í rannsóknum, byggingu og rekstri virkjana og gerðar í samráði og samvinnu virkjunaraðila, sveitarfélaga og landeigenda, eins og dæmin sanna.

• Loks vekur það athygli að faghópar sem fjalla um náttúru og menningarminjar og útivist, ferðaþjónustu og hlunnindi flokka tvö stór en lítt röskuð svæði sem tvo orkukosti, en áður höfðu þau verið skilgreind sem annars vegar 4 og hins vegar 7 orkukostir. Á sama tíma eru orkukostir m.a. í nágrenni við virkjanir áfram flokkaðir sérstaklega. Fulltrúi Samorku hefur frá upphafi gert athugasemdir við þessa nálgun.

Starfslok Oddnýjar Ögmundsdóttur

Oddný Ögmundsdóttir hefur látið af störfum á skrifstofu Samorku, eftir á þriðja áratug í starfi hjá samtökunum og annars forvera þeirra (SÍR), en Oddný verður 67 ára nú í júní. Samorka þakkar Oddnýju kærlega fyrir samstarfið öll þessi ár og óska samtökin henni gæfu og farsældar í framtíðinni.

Orkunýting og hagsmunir almennings

Fréttablaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar:

Orkunýting og hagsmunir almennings

Umhverfisráðherra gagnrýndi á dögunum skrif undirritaðs um ýmis lagafrumvörp, í grein hér í Fréttablaðinu. Ekki er ætlunin að fjalla frekar um umrædd frumvörp hér. Hins vegar talar ráðherrann í nafni hagsmuna almennings og nefnir m.a.s. til sögunnar hugtakið sérhagsmuni, að því er virðist yfir málflutning Samorku fyrir hönd orkufyrirtækjanna. Vandséð er hvernig hagsmunir orkufyrirtækja landsmanna geta talist til sérhagsmuna, en það hugtak er jú gjarnan notað í samhengi þröngra hagsmuna afmarkaðs hóps og þá jafnvel á kostnað fjöldans eða til skerðingar á réttindum hans. En hugum aðeins að orkunýtingu og hagsmunum almennings, fer þetta ekki saman?

Leyfisveitingar stjórnvalda
Í fyrsta lagi má nálgast spurninguna út frá leyfisveitingaferlinu. Orkufyrirtæki virkja engar auðlindir án ýmissa leyfisveitinga frá hvoru tveggja ráðherra og viðkomandi sveitarstjórnum. Lýðræðislega kjörnir fulltrúar – fulltrúar almennings – veita þannig virkjunarleyfi, framkvæmdaleyfi, breyta skipulagi o.s.frv. Varla fara þeir gegn hagsmunum almennings.

Fyrirtæki í almannaeigu
Í öðru lagi eru orkufyrirtækin flest í eigu ríkis eða sveitarfélaga og stjórnir þeirra því skipaðar af lýðræðislega kjörnum fulltrúum almennings, í ríkisstjórn eða viðkomandi sveitarstjórnum. Varla fara þessar stjórnir gegn hagsmunum almennings.

Vilji heimamanna
Í þriðja lagi er iðulega mjög mikill stuðningur meðal almennings og sveitarstjórna á tilteknum svæðum við nýjar virkjanir, sem oft eru um leið forsenda mikillar atvinnuuppbyggingar á umræddum svæðum. Um þetta eru þekkt dæmi í dag á fleiri en einum stað á landinu. Andstaða við framkvæmdirnar á samt auðvitað fullan rétt á sér, en slík barátta verður ekki sjálfkrafa flokkuð sem hagsmunir almennings.

Efnahagsáhrifin
Loks eru það svo efnahagsáhrifin. Á dögunum talaði forsætisráðherra um sex til sjö þúsund ársverk á næstu árum við uppbyggingu virkjana og tengdra fjárfestinga í iðnaði. Landsvirkjun kynnti nýlega framtíðarsýn þar sem arð- og skattgreiðslur fyrirtækisins til ríkissjóðs munu innan fimmtán ára nema 4-8% af landsframleiðslu. Allar slíkar tölur eru auðvitað háðar tilteknum forsendum en engum dylst að frekari uppbygging virkjana og tengds iðnaðar getur skilað gríðarlegum efnahagsávinningi fyrir íslenskt samfélag. Einhverjir munu þó eflaust harma einhverjar umræddra framkvæmda út frá sjónarhorni náttúruverndar, þótt útfærsla virkjana taki ávalt mið af slíkum sjónarmiðum. En því verður varla haldið fram að slík uppbygging, að fengnum öllum nauðsynlegum leyfum frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum almennings, gangi gegn hagsmunum almennings.

Nýting orkuauðlindanna og hagsmunir almennings fara þannig afar vel saman.

6. Vorfundi Samorku lokið – erindin á vefinn eftir helgina

Sjötta Vorfundi Samorku á Akureyri er lokið og Samorka þakkar þátttakendum öllum, sýnendum, starfsfólki Hofs, Ferðaskrifstofu Akureyrar og öðrum þeim sem að fundinum komu kærlega fyrir þeirra þátt í afar vel heppnaðri dagskrá. Þátttakendur voru á þriðja hundrað en alls tóku um 350 manns þátt í dagskránni að mökum og sýnendum meðtöldum. Erindi fundarins eru birt hér á vef Samorku.

Opnun ljósaperuútboðs Samorku

Þriðjudaginn 19. apríl s.l. voru opnuð tilboð í sameiginleg innkaup dreifiveitna á ljósaperum. Alls bárust átta verðtilboð frá sex bjóðendum. Fyrst og fremst er hér um  að ræða götuljósaperur, en einnig aðrar perugerðir sem veiturnar nota í sínum rekstri , alls um 21700 stk. á ári í þrjú ár. Verðtilboð voru á bilinu 18,9 til 33,2 Mkr. Lægsta tilboð átti Jóhann Ólafsson & Co, umboðsaðili fyrir OSRAM perur.

Sífellt flóknara starfsumhverfi

Fréttablaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar:

Sífellt flóknara starfsumhverfi

Regluverk orkunýtingar er óhemju flókið, sem og starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækja almennt. Nefna má dæmi um að ein og sama framkvæmdin hafi þurft að fara yfir tuttugu sinnum til umsagnar hjá sömu opinberu aðilunum. Hér gefur að líta einfaldaða mynd af regluverki orkuöflunar, sem verkfræðistofan Efla vann fyrir Samorku fyrir þremur árum síðan. Síðan þá hafa ýmsar breytingar orðið sem síst einfalda þetta ferli eða rekstur þessara fyrirtækja. Samorka, Samtök atvinnulífsins, Jarðhitafélag Íslands og stýrihópur ríkisstjórnarinnar um mótun heildstæðrar orkustefnu eru dæmi um aðila sem mælt hafa með einföldun þessa regluverks, með aukna skilvirkni að leiðarljósi. Ekkert lát er hins vegar á lagafrumvörpum – stjórnarfrumvörpum – sem enn flækja þetta ferli og/eða starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækjanna almennt. Ef einungis er horft til núverandi þings má nefna eftirtalin dæmi:

  • Frumvarp forsætisráðherra til breytinga á upplýsingalögum, þar sem fyrirtæki í opinberri eigu að 75% hluta eða meira eru sett undir upplýsingalög, nema að fenginni undanþágu ráðherra. Vandséð er hvernig fyrirtæki í raforkuframleiðslu og -sölu, samkeppnisstarfsemi að lögum, geta lotið ákvæðum upplýsingalaga, nema með gríðarlegum tilkostnaði og óhagræði.
     
  • Frumvarp iðnaðarráðherra um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða, þar sem í raun er gerð sú eftirábreyting á vinnu við gerð rammaáætlunar að öll svæði sem hlotið hafa einhvers konar friðlýsingu eru undanskilin, nema heimildar til orkuvinnslu sé sérstaklega getið í friðlýsingarskilmálum. Enginn veit hvað þetta ákvæði þýðir í raun, enda friðlýsingarskilmálar gríðarlega misjafnir, utan að þetta mun fyrirfram útiloka fjölda álitlegra virkjanakosta, þar með talið að minnsta kosti þriðjung alls virkjanlegs háhita sem enn er ónýttur í landinu.
     
  • Frumvarp iðnaðarráðherra um vatnalög og rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, þar sem lögð er til veruleg stytting leyfilegs leigutíma orkuauðlinda í eigu opinberra aðila. Slík stytting myndi leiða til hærri ávöxtunarkröfu samfara styttri afskriftatíma og með tímanum til hærra orkuverðs á Íslandi, til heimila, fyrirtækja og stofnana.
     
  • Frumvarp iðnaðarráðherra til breytinga á vatnalögum, þar sem lagt er til nýtt ákvæði um tilkynningaskyldu allra framkvæmda sem tengjast vatni og vatnafari, að því er virðist einnig minniháttar viðhaldsframkvæmda sem vel rúmast innan þegar útgefinna framkvæmdaleyfa.
     
  • Frumvarp umhverfisráðherra um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, þar sem kæruaðild er opnuð öllum hvað varðar ákvarðanir um matsskyldu framkvæmda, sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum og leyfisveitingar matsskyldra framkvæmda. Þarna skal lögð til hliðar krafan um málsaðild kærenda líkt og finna má í stjórnsýslulögum og víðar, þvert gegn áliti réttarfarsnefndar. Ekkert hinna Norðurlandanna hefur enda kosið að fara þessa leið sem leitt getur til algerrar holskeflu kærumála sem gætu nær lamað umrædda úrskurðarnefnd, ef marka má afgreiðslutíma forvera hennar, og sett þannig framkvæmdir í algert uppnám. Tekið skal fram að almenningi gefast ítrekuð færi á gerð athugasemda við umrædd mál fyrr í ferlinu.
     
  • Þá hefur umhverfisráðuneytið kynnt drög að frumvarpi til breytinga á náttúruverndarlögum þar sem lögð er til veruleg fjölgun þeirra tegunda náttúrufyrirbæra sem njóta skuli sérstakrar verndar. Ennfremur er þar lagt til að orðalagið um að forðast skuli röskun víki fyrir orðalagi um að óheimilt sé að raska slíkum fyrirbærum nema brýna nauðsyn beri til. Brýn nauðsyn er afar stíf krafa þegar heimila á framkvæmdir, eða hafna þeim.

Verulegt áhyggjuefni
Vissulega má ýmislegt gott segja um sum þessara mála og eðli málsins samkvæmt eru þau öll vanreifuð hér í svo stuttri samantekt. Eftir stendur þó að nær stöðugur straumur stjórnarfrumvarpa sem flækja starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækja er verulegt áhyggjuefni. Orkunýting og rekstur orku- og veitufyrirtækja verða sífellt flóknari, þyngri í vöfum og kostnaðarsamari. Afleiðingarnar eru meðal annars sífellt lengri framkvæmdatími, sífellt aukin óvissa um afhendingartíma og sífellt aukinn kostnaður – sem aftur leiðir óhjákvæmilega til hærri verða til neytenda.

—————-
Greinin birtist í eilítið styttri útgáfu í Fréttablaðinu, en í fullri lengd (þ.e. með skýringarmynd og tilvísun í hana) á Vísi.is.

Einföldun regluverks, falleinkunn stjórnvalda, skortur á lagaheimildum

Fróðleg erindi voru flutt á vorfundi Jarðhitafélags Íslands, þar sem iðnaðarráðherra boðaði m.a. að einfalda mætti regluverk orkunýtingar, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar HR benti á skort á lagaheimildum íþyngjandi stjórnvaldsákvarðana og forstjóri HS Orku gaf stefnu stjórnvalda falleinkunn – út frá sjónarmiði orkunýtingar. Sjá nánar á vefsíðu Jarðhitafélagsins.