15. mars 2022 Tvö ný í stjórn Samorku Þau Hrefna Hallgrímsdóttir, Veitum, og Steinn Leó Sveinsson hjá Skagafjarðarveitum tóku í dag sæti í stjórn Samorku á aðalfundi samtakanna í fyrsta sinn. Þá verður Kristín Linda Árnadóttir áfram fulltrúi Landsvirkjunar í stjórn Samorku næstu tvö árin. Í stjórn sitja jafnframt áfram þau Berglind Rán Ólafsdóttir, Orku náttúrunnar, formaður Samorku, Helgi Jóhannesson, Norðurorku, Tómas Már Sigurðsson, HS Orku og Sigurður Þór Haraldsson hjá Selfossveitum. Þá tóku tveir nýir varamenn sæti í stjórn Samorku í dag. Aðalsteinn Þórhallsson hjá HEF Veitum og Jón Trausti Kárason hjá Veitum. Hörður Arnarson verður áfram varamaður Landsvirkjunar í stjórn til næstu tveggja ára. Þau Elías Jónatansson hjá Orkubúi Vestfjarða og Helga Jóhanna Oddsdóttir hjá HS Veitum sitja áfram sem varamenn. Stjórn Samorku að loknum aðalfundi 15. mars 2022 er því þannig skipuð: Formaður:Berglind Rán Ólafsdóttir, Orku náttúrunnar Meðstjórnendur:Helgi Jóhannesson, NorðurorkuHrefna Hallgrímsdóttir, VeitumKristín Linda Árnadóttir, LandsvirkjunSigurður Þór Haraldsson, SelfossveitumSteinn Leó Sveinsson, SkagafjarðarveitumTómas Már Sigurðsson, HS Orku Varamenn:Aðalsteinn Þórhallsson, HEF VeitumElías Jónatansson, Orkubúi VestfjarðaHelga Jóhanna Oddsdóttir, HS VeitumHörður Arnarson, LandsvirkjunJón Trausti Kárason, Veitum Þá var ályktun aðalfundar 2022 samþykkt. Þar kallar aðalfundur Samorku eftir því að næg raforka og heitt vatn verði tryggt til framtíðar, svo hægt verði að mæta fólksfjölgun, nýjum atvinnutækifærum, aukinni rafvæðingu samfélagsins, vályndu veðri og ekki síst metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum. Í ályktunni kemur fram að orku- og veitufyrirtækjum landsins hafi verið ætlað stórt hlutverk í þeim markmiðum sem stjórnvöld hafa sett í loftslagsmálum. Til þess að þau geti sinnt því hlutverki þurfi stjórnsýslan öll að styðja við þá vegferð, til dæmis með því að einfalda laga- og regluverk, tryggja orkuöryggi landsins með nægu framboði af grænni orku og að innan stjórnkerfisins verði sérþekking á orku- og veitumálum styrkt. Ályktun aðalfundar 2022 í heild sinni (pdf)