20. janúar 2020 Nýir framkvæmdastjórar hjá HS Orku HS Orka hefur ráðið tvo nýja framkvæmdastjóra til starfa. Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku og hefur störf hjá fyrirtækinu í byrjun febrúar. Sunna er með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í efna- og vélaverkfræði. Víðtæk reynsla Sunnu mun nýtast fyrirtækinu í þeim fjölmörgu verkefnum sem eru framundan. Hún hóf sinn starfsferil hjá ISAL og starfaði þar samtals í 14 ár, síðast sem framkvæmdastjóri rafgreiningar frá 2013 – 2015. Þá tók hún við starfi framkvæmdastjóra tæknisviðs hjá Alvotech frá 2015- 2018 og nú síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Codex á Íslandi. Björk Þórarinsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og þjónustu og tekur við starfi í lok janúar. Björk er með Cand. Oecon. af stjórnunarsviði frá Háskóla íslands og próf í verðbréfamiðlun frá Háskólanum í Reykjavík. Í dag rekur Björk ráðgjafafyrirtæki á sviði viðskiptaþróunar, stefnumótunar og fjármálaráðgjafar. Áður starfaði hún m.a. hjá Arion banka (áður Kaupþing) á skrifstofu bankastjóra og sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. Hún starfaði sem fjármálastjóri erlendis í alþjóðlegum fyrirtækjum í tæp 10 ár og hefur talsverða reynslu af setu í ýmsum stjórnum og ráðum. HS Orka er leiðandi í nýtingu jarðvarma á Íslandi og rekur tvö orkuver í Svartsengi og á Reykanesi. Þá verður fyrsta vatnsaflsvirkjun fyrirtækisins í Tungufljóti gangsett á næstu dögum. Fyrirtækið hyggur á stækkun Reykjanesvirkjunar og Svartsengisvirkjunar með betri nýtingu á þeirri gufu sem nú þegar er nýtt til orkuframleiðslu og án þess að auka upptekt. Þá hefur Auðlindagarðurinn vakið athygli bæða heima og erlendis fyrir fullnýtingu á þeim affalsstraumum sem falla til við vinnslu fyrirtæksins. Fyrirtækið hefur verið í efsta sæti í mælingu á ánægju viðskiptavina á raforkumarkaði í 14 skipti á síðustu 16 árum. Á árinu 2019 hlaut fyrirtækið jafnlaunavottun og í framkvæmdarstjórn sitja nú 3 konur og 4 karlar.