18. febrúar 2011 Tryggvi Þór Haraldsson kjörinn formaður Samorku Á aðalfundi Samorku var Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, kjörinn formaður samtakanna. Tryggvi tekur við af Franz Árnasyni, forstjóra Norðurorku, sem gegnt hefur formennsku í Samorku undanfarin fjögur ár. Þá var Bjarni Bjarnason, sem senn tekur við starfi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, kjörinn nýr í stjórnina. Bjarni tekur sæti Hjörleifs B. Kvaran sem sagði sig úr stjórn Samorku í kjölfar starfsloka hjá Orkuveitu Reykjavíkur í ágúst sl. Stjórn Samorku verður að öðru leyti óbreytt, en hana skipa því næsta árið: Tryggvi Þór Haraldsson, RARIK, formaður Bjarni Bjarnason, Orkuveitu Reykjavíkur Franz Árnason, Norðurorku Hörður Arnarson, Landsvirkjun Júlíus Jónsson, HS Orku Páll Pálsson, Skagafjarðarveitum Þórður Guðmundsson, Landsneti Varamenn: Dagur Jónsson, Vatnsveitu Hafnarfjarðar Guðmundur Davíðsson, Hitaveitu Egilsstaða og Fella Kristján Haraldsson, Orkubúi Vestfjarða