19. nóvember 2026 GeoSilica hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 GeoSilica hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 fyrir GeoStep®-aðferðina, sem vinnur kísil úr jarðhitavökva og nýtir hann sem hráefni í söluvörur. Aðferðin dregur úr kísilútfellingum og viðhaldsþörf í jarðvarmavirkjunum og skapar um leið ný verðmæti úr jarðhitaauðlindinni. Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna og stjórnarformaður Samorku afhenti verðlaunin í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur fimmtudaginn 19. nóvember. Þetta er í sjötta sinn sem Samorka veitir verðlaunin. Kísill úr jarðhitavökva verður að hráefni Þegar jarðhitavökvi kólnar getur kísill fallið út og sest innan á lagnir og í annan búnað jarðvarmavirkjana. Útfellingarnar geta þrengt að rennsli og aukið viðhaldsþörf. Með GeoStep er kísillinn skilinn frá vökvanum áður en hann fellur út í búnaðinum. GeoSilica hefur meðal annars nýtt kísilinn til framleiðslu á fæðubótarefnum og rannsakar nú möguleika á að nýta hann í gróðurrækt. Lausnin er komin í rekstur „GeoStep aðferð GeoSilica er framúrskarandi dæmi um íslenska nýsköpun sem byggir á þekkingu og reynslu úr jarðvarmageiranum,“ segir í rökstuðningi dómnefndar. Dómnefnd horfði sérstaklega til þess að aðferðin hefur verið sannreynd við raunverulegar rekstraraðstæður, er komin í notkun og afurðirnar komnar á markað. Að mati dómnefndar sameinar GeoStep tæknilegt nýnæmi, bætta auðlindanýtingu og verðmætasköpun. Hún telur jafnframt að framleiðsla á Íslandi sé fyrsta skrefið og að aðferðin eigi erindi á fleiri jarðvarmamarkaði. Með Nýsköpunarverðlaununum vekur Samorka athygli á framúrskarandi lausnum í orku- og veitumálum. Við óskum teyminu hjá GeoSilica innilega til hamingju og þökkum öllum sem sendu inn tilnefningar í ár. https://vimeo.com/1247949743