AtNorth til liðs við Samorku: „Við lítum á varmann sem auðlind“

Gagnaversfyrirtækið atNorth bættist nýlega við í hóp aukaaðila að Samorku. Það er fyrsta gagnaversfyrirtækið innan samtakanna og Samorka býður það hjartanlega velkomið. Rekstur gagnavera tengist orku- og veitumálum á marga vegu. Hann byggir á öruggu aðgengi að endurnýjanlegri orku og getur skilað varma sem nýtist til dæmis við hitun húsa eða í gróðurhúsum. Með aðild atNorth bætast verðmæt ný reynsla og nýtt sjónarhorn í hóp aðildarfélaga Samorku.

Við fengum Bylgju Pálsdóttur, samskiptastjóra atNorth, til að segja okkur frá fyrirtækinu, hröðum vexti þess á Norðurlöndum og því hvers vegna atNorth ákvað að ganga til liðs við Samorku.

Sjö gagnaver á Norðurlöndum

AtNorth hannar, byggir og rekur gagnaver og býður hagkvæmar, skalanlegar og sérsniðnar lausnir fyrir fyrirtæki. Höfuðstöðvarnar eru í Hafnarfirði og hjá félaginu starfa tæplega 400 manns.

„Við rekum sjö gagnaver á Norðurlöndum og þrjú þeirra eru á Íslandi: í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri,“ segir Bylgja. „Sjálfbærni er kjarninn í starfsemi okkar. Gagnaverin eru knúin endurnýjanlegri orku og styðja við hringrásarhagkerfið. Við leggjum áherslu á góða hönnun, orkunýtingu og markvissa rekstrarstýringu. Þannig tryggjum við trausta innviði til langs tíma og sveigjanlegar lausnir fyrir viðskiptavini.“

Hraður vöxtur og nýir eigendur

Fyrirtækið hefur stækkað hratt á fáum árum. „Árið 2021 rákum við tvö gagnaver á Íslandi. Í dag eru þau sjö á Norðurlöndum og við vinnum að frekari uppbyggingu í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð,“ segir Bylgja. Hún segir þróunina endurspegla ört vaxandi þörf fyrir stafræna innviði. „Skýjaþjónusta, gervigreind og sívaxandi gagnavinnsla kalla á gagnaver sem eru bæði afkastamikil og orkunýtin.“

Í september luku CPP Investments og Equinix kaupum á atNorth. „Nýir eigendur tryggja félaginu langtímafjármögnun og veita okkur aðgang að alþjóðlegri reynslu og tengslaneti sem styður við frekari uppbyggingu,“ segir Bylgja. „Tækifærin felast í því að byggja gagnaver sem vaxa með þörfum viðskiptavina og nýta styrkleika Norðurlandanna: endurnýjanlega orku, svalt loftslag og stöðugt rekstrarumhverfi.“

„Við lítum á varmann sem auðlind“

Orka og orkunýtni eru stór hluti af rekstri gagnavera. Þar segir Bylgja að norrænar aðstæður skipti miklu máli. „Kalt loftslagið kælir gagnaverin á náttúrulegan hátt. Það dregur bæði úr orkunotkun og kostnaði.“

Nær öll orkan sem tölvubúnaðurinn notar verður að lokum að varma. „Víða er þeim varma einfaldlega hleypt út í umhverfið. Við lítum hins vegar á hann sem auðlind sem getur skapað verðmæti í nærsamfélaginu. Hann má til dæmis nýta til að hita íbúðar- og atvinnuhúsnæði, í gróðurhúsum til matvælaframleiðslu og í iðnaði.“

Gagnaver er í gangi allan sólarhringinn, allt árið. Það skilar því jöfnum og stöðugum varma sem hentar vel starfsemi sem þarf hita allan ársins hring. „Gott dæmi er gróðurhús við hlið gagnavers sem fær hita til ræktunar frá gagnaverinu, í stað þess að varminn fari til spillis.“

Varmanýting hugsuð frá upphafi

Til að varminn nýtist þarf að gera ráð fyrir því strax við hönnun. „Nýjustu gagnaver atNorth eru því hönnuð með varmanýtingu í huga frá upphafi. Við höfum þegar komið á varmasamstarfi á nokkrum stöðum á Norðurlöndum,“ segir Bylgja. Hún bætir við að á Íslandi verði áfram lögð áhersla á að þróa starfsemina og finna leiðir til að nýta varmann frá gagnaverunum í þágu nærsamfélagsins.

Uppbygging á öllum Norðurlöndum

Fram undan er áframhaldandi uppbygging til að mæta vaxandi eftirspurn eftir gagnaverum og afkastamikilli tölvuvinnslu. Meðal verkefna í þróun eru stór gagnaverasvæði í Kouvola í Finnlandi, Ølgod í Danmörku, Sollefteå í Svíþjóð og Haugaland í Noregi. „Svæðið í Haugaland verður fyrsta gagnaver atNorth í Noregi. Þar með verðum við með starfsemi eða uppbyggingu á öllum Norðurlöndum,“ segir Bylgja.

Nýtt sjónarhorn inn í umræðuna

Spurð hvers vegna atNorth sótti um aukaaðild að Samorku segir Bylgja að fyrirtækið vilji taka þátt í faglegu samtali um orku, veitur og innviði á Íslandi. „Rekstur gagnavera byggir á öruggu, hagkvæmu og sjálfbæru orkuumhverfi. Við höfum víðtæka reynslu af nýtingu og uppbyggingu slíkra innviða á Norðurlöndum og viljum miðla henni.“

Hún bendir á að atNorth geti komið með nýtt sjónarhorn inn í umræðu þar sem orkumál, stafræn þjónusta, atvinnuuppbygging og hringrásarlausnir mætast. „Reynsla okkar getur nýst í samtalinu um hvernig íslensk orka og innviðir geta skapað verðmæti til framtíðar. Á sama tíma vonumst við auðvitað til að læra af öðrum aðildarfyrirtækjum, efla samstarf og taka þátt í uppbyggilegu samtali um sameiginleg viðfangsefni,“ segir Bylgja að lokum.

Samorka fagnar því að fá atNorth til liðs við samtökin og býður fyrirtækið hjartanlega velkomið í hópinn.