5. janúar 2024 Óskað eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar 2024. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Athugið að einungis má tilnefna skráð aðildarfélög SA. Tilnefningar berist í gegnum skráningarsíðu eigi síðar en þriðjudaginn 23. janúar. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Helstu viðmið fyrir menntafyrirtækis ársins eru: að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins að sem flest starfsfólk taki virkan þátt að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru: að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja. Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta tilnefningar. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku , Samtaka ferðaþjónustunnar , Samtaka fjármálafyrirtækja , Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi , Samtaka iðnaðarins , Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins .