1. febrúar 2005 Orkuþing skóla Orkuþing skóla stendur dagana 25.- og 26. febrúar í Perlunni. Það eru samtökin NORDLAB, ásamt Samorku og nokkrum orkufyrirtækjum, sem standa að verkefninu, sem er að frumkvæð Norrænu ráðherranefndarinnar. Opnaður hefur verið fróðlegur og skemmtilegur Orkuvefur af því tilefni, sjá nánar Orkuvef skóla.
14. desember 2004 Veitustjórafundur Samorku Efni frá fundinum: Dagskrá fundarins Skipulag veitumála á Íslandi: Eiríkur Bogason Lög og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga: Guðjón Bragason, félagsmálaráðuneyti Jarðlagnatækninámið, kynning: Ingibjörg Stefánsdóttir, Mímir-Símenntun. Verkefni framundan hjá fagráðum: Sigurður Ágústsson og María J. Gunnarsdóttir Starfsemi IGA: Valgarður Stefánsson
13. desember 2004 Rafmagn á Íslandi í 100 ár Rafveitur landsins hafa minnst þessara tímamóta á fjölbreyttan hátt, hver á sínu veitusvæði. 24. janúar kom út fylgiblað með Morgunblaðinu, með sögulegum fróðleik og fleiri upplýsingum. Sama dag var opnuð sérstök heimasíða (www.rafmagn100.is) helguð afmælisárinu og síðan rak hver atburðurinn annan og lauk afmælisárinu með hátíð í Hafnarfirði 12. desember. Þar var afhjúpaður minnisvarði um Jóhannes Reykdal smið og frumkvöðul. Minnisvarðinn stendur við lækinn, á mótum Lækjargötu og Austurgötu. Í Hafnarborg var hátíðarsamkoma þar sem forseti Íslands og iðnaðarráðherra fluttu ávörp. Samorka færði Hafnfirðingum að gjöf, 9 kW. rafstöð sem komið verður fyrir bak við glervegg í undirgöngum undir Lækjargötunni. Að lokinni hátíðardagskrá var kveikt á risaperu við Hafnarborg og lauk síðan afmælisdagskrá með flugeldasýningu. Nokkrar myndir frá hátíðinni 12. des.2004 Ræða Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra á hátíðinni. Fara á afmælisvef Grein Jóhanns Más Maríussonar í Morgunblaðinu
29. október 2004 Orkan okkar – heimili morgundagsins Sýningin er haldin á vegum Orkuveitu Reykjavíkur í tilefni af 100 ára afmæli rafvæðingar á Íslandi, í náinni samvinnu við: Arkitektafélag Íslands, Ljóstæknifélag Íslands, Félag húsgagna- og innanhússarkitekta, Tæknifræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands. Dagskrá, sjá hér. Í Vetrargarðinum býðst öllum tækifæri á að skoða "Framtíðarheimilið". Síðustu daga hafa tugir manns unnið að því að byggja 300 fermetra framtíðarheilmili í Vetrargaðinum. Þetta er eitthvað sem allir ættu að sjá.
17. september 2004 Fundur um heilnæmt neysluvatn Haraldur sagði frá þeim vatnsbornu sýkingum sem glímt hefði verið við hér á landi m.a. taugaveiki fyrr á tímum sem hefði flýtt fyrir lagningu vatnsveitna víða um land. Hann sagði einnig frá sýkingum sem glímt hefði verið við á seinni árum s.s. eins og norovírus sem kom upp í sumar á Húsafelli og í Mývatnsveit. Þó erfitt væri að sanna að þær berist með neysluvatni þá hefði í fyrsta sinn verið sýnt fram á tengsl sýkinganna við neysluvatn hér á landi. Einfrumungurinn Giardia lambia, sem veldur iðrasýkingu væri t.d. mjög algengur á Akranesi. Neysluvatn er þar tekið úr yfirborðslindum en ekki hefur verið sýnt fram á tengsl vatnsins við þessar iðrasýkingar. Vert væri þó að athuga hvort hann lifir af útfjólubláa geislun sem þar er. Haraldur lagði áherslu á að við þyrftum að vera vakandi fyrir því að vernda vatnsból og vatnstökusvæði. Þann 8. september árið 1854 fjarlægði læknirinn John Snow handfangið af brunninum í Broad Street í Soho hverfinu í London (nú Broadwick Street). Hann hafði með faraldsfræðilegum rannsóknum komist að því að flestir þeirra 700 manna sem létust þar á skömmum tíma höfðu neytt vatns úr þessum ákveðna brunni. Litið er á þetta atvik sem táknrænt fyrir baráttu fyrir heilnæmu drykkjarvatni. Seinna kom í ljós að skolpleiðsla lá rétt við brunninn. Var hún brotin og mengaði vatnið í brunninum. Hann komst að þessari niðurstöðu löngu áður en bakterían sem veldur kóleru fannst. Á þessum tíma var því haldið fram að kólera smitaðist með andardrætti á milli fólks en hann trúði því ekki þar sem hann hafði annast marga sjúklinga en ekki veikst og leitaði því að öðrum orsökum. Fleiri myndir frá fundinum
10. september 2004 Verkstjórnarnámskeið 4.- og 5. okt. Námskeiðið var sameiginlegt fyrir verkstjórnarmenn hjá raf- hita- og vatnsveitum. Aðal áhersla var lögð á heimlagnir, öryggismál og mannleg samskipti. Einnig bilanaleit í lögnum, plastefni og samsetningar. Nýr bilanaleitarbíll Orkuveitu Reykjavíkur var á staðnum og farið var í heimsókn í Norðurál. Þátttakendur voru 30 víðsvegar frá af landinu. Dagskrá, smellið hér Nokkrar myndir
19. ágúst 2004 Samkomulag um mat á verðmæti flutningsvirkja Í nefndinni áttu sæti Karl Axelsson, formaður , Benedikt Árnason, Dan Brynjólfsson, Friðrik Friðriksson, Hjörleifur B. Kvaran, Reynir Vignir og Sigurður Snævarr. Starfsmaður Orkustofnunar, Haukur Eggertsson verkfræðingur, starfaði með nefndinni. Samkvæmt samkomulaginu er heildarverðmæti flutningskerfisins u.þ.b. 27 milljaðar króna. Samkomulagið í heild
27. apríl 2004 Fyrrum forsvarsmenn orkuveitna stofna félag. Þann 20. apríl sl. komu saman í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur menn sem á undanförnum áratugum hafa verið í forustusveitum hinna ýmsu orkuveitna landsins. Tillgangur fundarins var að stofna félag, eða klúbb, þar sem þessir forsprakkar sem allir hafa lokið störfum hjá sínum fyrirtækjum og eru komnir á eftirlaun, hefðu tækifæri til að hittast, bera saman bækur sínar og fræðast um helstu þætti orkumálanna og önnur áhugaverð mál líðandi stundar. Samorka óskar þessum félögum sínum til hamingju með framtakið og mun kappkosta að veita félaginu þann stuðning sem það frekast má. Félagatal
30. janúar 2004 Íslendingar taka að sér rekstur skrifstofu Alþjóðajarðhitasambandsins Íslendingar taka að sér rekstur skrifstofu Alþjóðajarðhitasambandsins (International Geothermal Association, IGA) í fimm ár, frá 1. sept 2004. Samorka, samtök orkufyrirtækja á Íslandi, ásamt stjórnvöldum standa að flutningi og rekstri skrifstofunnar.
29. október 2003 Hitaveituhandbókin öll á netið Hitaveituhandbókin er nú öll komin á netið. Sjá hér á síðunni með því að smella á mynd af handbókinn til vinstri. Nýtt efni þar er kafli 3 Mælieiningar og kafli 10 Innra eftlirlit fyri hitaveitur – starfsleyfi. Kaflinn um helstu lög og reglugerðir hitaveitna er tengdur inn á lagasafn Alþingis.