15. október 2005 Orkusenatið heimsótti Kárahnjúkavirkjun Nokkrar myndir frá heimsókninni: Smellið hér
10. október 2005 Vatnsveitufólk frá Ungverjalandi heimsótti Samorku Það var fríður hópur Ungverskra vatnsveitustjóra sem kom á skrifstofu Samorku 7. okt. s.l. Erindið var að kynnast samtökunum og fá fræðslu um rekstur vatnsveitna á Íslandi, með sérstakri áherslu á gæðamál og innra eftirlitskerfi veitnanna. Það var María Jóna Gunnarsdóttir sem flutti þeim fróðleikinn og var mál hennar túlkað yfir á Ungversku.
28. september 2005 Hreinn ávinningur af umhverfisstjórnun Umhverfistjórnunarkerfin sem rætt var um voru ISO 14001, Norræni svanurinn, EMAS (Eco-Management and Audit Scheme), Evrópublómið, Green Globe 21, Bláfáninn og Lífræn vottun. Þessir sömu aðilar og stóðu fyrir ráðstefnunni hafa gefið út kynningarrit um umhverfisvottanir, sem dreift var með ráðstefnugögnum. Nokkur íslensk fyrirtæki eru með ISO 14001 og Svaninn, eitt fyrirtæki er með Green Globe 21 sem er fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, nokkur eru með Bláfánann sem er fyrir baðstrendur og smábátahafnir og 30-40 eru með lífræna vottun. En ekkert fyrirtæki er með EMAS né Evrópublómið. Fyrsta fyrirtækið til að fá vottað ISO 14001 var ISAL árið 1997. Orkuveita Reykjavíkur er í þann mund að fá vottun fyrir ISO 14001 og verður fyrsta orkufyrirtækið til þess hér á landi. Ávinningur er margvíslegur fyrir utan að vera beint fjárhagslegur. Það er aukin gæðavitund og ánægðari starfsmenn. Nokkuð var rætt um að umbun frá stjórnvöldum væri engin við umhverfistjórnun. Fyrirtæki þyrftu að greiða jafn há eftirlitsgjöld og önnur fyrirtæki sem ekkert gera í umhverfismálum. Og jafn strangar kröfur eru til fyrirtækja um ytra eftirlit í grænu bókhaldi. Nauðsyn er á meira samstarfi opinberra aðila og fyrirtækja til að vinna að umhverfismálum og minnka áhrif atvinnulífs a umhverfið og það er hægt að gera með því að minnka hið opinbera eftirlit með þeim sem standa sig vel. Umhverfisvitund er að eflast eins og sést á þátttöku í þessari ráðstefnu og þegar Grænfánakynslóðin tekur við breytast viðhorfin fyrir alvöru.
28. september 2005 Skoðunarkönnun meðal rafvirkja Könnun á umfangi slysa og óhappa af völdum rafmagns hjá fagmönnum á rafmagnssviði. Neytendastofa (áður Löggildingarstofa) hefur í samráði við Samorku, SART og Rafiðnaðarsamband Íslands ákveðið að láta rannsóknarfyrirtækið IMG Gallup kanna tíðni rafmagnsslysa og óhappa hjá fagmönnum á rafmagnssviði. Sambærileg könnun er gerð reglulega meðal fagmanna á Norðurlöndunum. Markmiðið er fyrst og fremst að Neytendastofa hafi betri yfirsýn yfir slys eða óhöpp af völdum rafmagns hér á landi enda berast stofnuninni einungis upplýsingar um alvarlegustu rafmagnsslysin. Fullum trúnaði er heitið enda munu upplýsingar ekki á nokkurn hátt verða tengdar einstökum svarendum. Neytendastofa mun svo birta niðurstöður könnunarinnar og stuðla þannig að betri fræðslu um eðli og umfang rafmagnsslysa og hvernig megi koma í veg fyrir þau. Stofnunin vonast til að þeir fagmenn á rafmagnssviði sem lenda í úrtaki Gallups verði jákvæðir gagnvart fyrrgreindri könnun sem er liður í að tryggja enn betur öryggi þeirra sjálfra. Neytendastofa rafmagnsöryggissvið Heimasíða Neytendastofu
22. ágúst 2005 Námstefna um viðskipti með græna orku Námstefna um viðskipti með græna orku. 16. september n.k. á Grand Hótel Reykjavík Við viljum benda á að hér er einstakt tækifæri á ferðinni til að kynnast og læra um ný sjónarmið og möguleika íslenskra orkufyrirtækja til að meta verðmæti á orkuframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum. Vinsamlegast látið vita um þátttöku til Samorku sími 588 4430 eða með tölvubréfi: odda@samorka.is Dagskrá námsstefnunnar: Smellið hér Upplýsingar um fyrirlesara: Smellið hér Erindi Mörthu Eiríksdóttur; Erindi Stefan Zisler; Erindi Lauritzen
3. júní 2005 Veggspjald – RÉTT VIÐBRÖGÐ BJARGA MANNSLÍFUM Með því að smella hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af fyrstuhjálparveggspjaldi vegna viðbragða við rafmagnsslysum. Spjaldið verður til afhendingar á næstu dögum í stærðinni A-2, plasthúðað: Smellið hér Ef óskir berast um aðrar stærðir á spjaldinu, þá er hægt að verða við þeim óskum. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Samorku.
30. maí 2005 Vorfundur Samorku 2005 á Akureyri Vorfundur Samorku 2005 í Íþróttahöllinni á Akureyri Dagskrá fundarins, með hlekkjum á erindi: Smellið hér Þátttakendur í vöru-og þjónustusýningu: Smellið hér Setningarræða Friðriks Sophussonar formanns stjórnar Samorku: Smellið hér Ávarp iðnaðarráðherra: Smellið hér
10. maí 2005 Um rafsegulsvið Landlæknisembættið hefur góðfúslega heimilað Samorku aðgang að greininni og má lesa hana með því að smella hér: Grein Sigurðar Guðmundssonar landlæknis um rafsegulsvið
9. febrúar 2005 Aðalfundur Samorku 2005 Samorka var stofnuð á Hótel Selfossi 25. apríl 1995. 10. aðalfundur Samorku fór fram á Hótel Selfossi 11. mars 2005 Dagskrá aðalfundar: Smellið hér Nokkrar myndir frá fundinum Ársskýrsla 2004