6. október 2020 108 milljarðar til fjárfestinga og viðhalds næstu 6 árin Fjárhagsspá Orkuveitu Reykjavíkur gerir ráð fyrir að næstu sex árin verði 108 milljörðum króna varið í viðhald og nýjar fjárfestingar á vegum samstæðunnar. Fjárhagsspá samstæðu OR fyrir árabilið 2021-2026 var samþykkt af stjórn OR í dag. Í samstæðu OR eru, auk móðurfélagsins; Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og Carbfix. Mannaflafrekar viðspyrnufjárfestingar Fjárhagur Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækjanna er traustur og engra stórra breytinga að vænta í tekjum eða gjöldum á næstu árum samkvæmt spánni. Nú í vor var frá því greint að Veitur hygðust ráðast í sérstakar viðspyrnufjárfestingar vegna Covid-19 faraldursins. Áformin koma nú inn í opinbera fjárhagsspá OR-samstæðunnar og nema um fjórum milljörðum króna á árinu 2021. Talið er að 200 störf á sunnan- og vestanverðu landinu skapist hjá verktökum við þetta átak, án þess að starfsfólki Veitna fjölgi. Allsherjaruppfærsla á orkumælum Veitna er stærsta einstaka fjárfestingarverkefnið á tímabilinu. Undirbúningur þess hefur staðið um hríð en skiptin yfir í snjallmæla munu taka tvö til þrjú ár. Um 25 iðnaðarmenn munu að jafnaði starfa við útskiptin sjálf auk fleira fólks í ýmsum stuðningi við verkefnið. Nánari upplýsingar um fjárhagsspá OR má sjá á heimasíðu þeirra.
11. september 2020 Íslenskt – láttu það ganga! Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í í stöðugri hringrás. Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem hefur verið sett af stað. Tilgangur átaksins sé að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu. Um leið á að efla vitund landsmanna um neysluhegðun og útskýra þau keðjuverkandi áhrif sem verða þegar við veljum innlenda þjónustu og skiptum við innlend fyrirtæki. Hér má sjá sjónvarpsauglýsinguna:
10. september 2020 Ársfundur Samorku 2020 í máli og myndum Orkuskipti í samgöngum voru í brennidepli á ársfundi Samorku, sem fram fór þriðjudaginn 8. september í Norðurljósasal Hörpu. Dagskráin innihélt erindi um allar hliðar orkuskipta; á landi, í lofti og á legi og innlendir sem erlendir sérfræðingar fluttu erindi. Á fundinum voru kynntar niðurstöður úr nýrri greiningu Samorku um nauðsynlegar aðgerðir svo ná megi markmiðum stjórnvalda um orkuskipti í samgöngum árið 203o. Fundurinn var heldur óvenjulegur í ár því engir voru gestirnir í salnum í ljósi aðstæðna, en hins vegar var metfjöldi sem fylgdist með í gegnum netið. Ditlev Engel, framkvæmdastjóri DNV-GL, flytur erindi sitt um rafvæðingu hafna. Hér fyrir neðan má sjá ljósmyndir og upptökur af erindum fundarins. Fundurinn hófst á stuttu myndbandi um orkuskipti í samgöngum og um hvað þau snúast. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ávarpaði fundinn og ræddi um mikilvægi orkuskipta í samgöngum í því markmiði að Ísland verði kolefnishlutlaust land. Íslendingar hafa áður gengið í gegnum orkuskipti; fyrst með rafvæðingu atvinnu- og heimilislífs og svo þegar við nýttum jarðhitann til hitaveitu. Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku, fór yfir ávinninginn sem þessi fyrri orkuskipti hafa fært okkur í erindi sínu. Orkuskipti í samgöngum innanlands gegna lykilhlutverki í því að Ísland standist alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum. Auður Nanna Baldvinsdóttir, formaður orkuskiptahóps Samorku og viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun og Sigurjón Kjærnested, forstöðumaður fagsviða hjá Samorku, greindu frá niðurstöðum nýrrar greiningar á hvað þurfi til svo orkuskipti geti orðið að veruleika, til dæmis hvað varðar innviða- og orkuþörf. Hér eru helstu niðurstöður greiningarinnar settar fram á einni mynd: Colin McKerrecher, sérfræðingur hjá Bloomberg New Energy Finance (BNEF), kynnti nýja skýrslu um þróun orkuskipta í bílum. Rafbílavæðing hefur jákvæð áhrif í heild þegar til lengri tíma er litið, þegar litið er til helstu þjóðhagslegra stærða og fjárhagslegra hagsmuna neytenda. Auk þess skilar hún umtalsverðum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta eru helstu niðurstöður greiningar sem unnin var af HR og HÍ fyrir Samorku, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Grænu orkuna, Íslenska Nýorku og Orkusetur. Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur Samorku, fór yfir niðurstöður rannsóknarinnar í erindi sínu. Með aukinni rafbílavæðingu og orkuskiptum í samgöngum þarf að tryggja að innviðir raforkukerfis á Íslandi séu undirbúnir fyrir aukið álag sem fylgir í kjölfarið. Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, ásamt nokkrum af aðildarfyrirtækjum sínum, stóð fyrir nýrri rannsókn á fyrirkomulagi hleðslu raf- og tengiltvinnbíla á Íslandi sem ekki verið framkvæmd hérlendis áður. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa mikilvægar upplýsingar um áhrif rafbíla á raforkukerfið, hvernig fyrirkomulagi á hleðslu þeirra er háttað og þar með á ákvarðanir um uppbyggingu innviða, svo rafbílaeigendur fái sem besta þjónustu um leið og þeim fjölgar. Scott Lepold, frá GeoTab/FleetCarma og Kjartan Rolf Árnason, orkuskiptahópi Samorku og forstöðumaður kerfisstýringar hjá RARIK, fóru yfir niðurstöður rannsóknarinnar í erindi sínu. Hafnir geta gegnt lykilhlutverki í því að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda í framtíðinni og hjálpað til við að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir græna orku. Ditlev Engel, framkvæmdastjóri DNV-GL, kynnti niðurstöður nýrrar skýrslu fyrirtækisins sem unnin var í samstarfi við Eurelectric. Olav Mosvold Larsen, sérfræðingur hjá Avinor, sagði frá rafvæðingu flugs í Noregi og framtíðarsýn Avinor um orkuskipti í flugrekstri. Danir horfa til þess að grænt eldsneyti sem framleitt er úr grænni orku muni spila lykilhlutverk í umskiptum frá jarðefnaeldsneyti og muni skipta verulegu máli í þeirri vegferð að uppfylla markmið Danmerkur í loftslagsmálum. Í erindinu fór Morten Stryg, aðalráðgjafi hjá Dansk Energi, yfir niðurstöður greiningar Energinet og Dansk Energi um hvernig grænt eldsneyti getur orðið einn af hornsteinum danska orkugeirans til framtíðar og hvaða atriði skipta sköpum til að tryggt sé að þessi orkuskipti geti átt sér stað í Danmörku. Ljósmyndarinn Eyþór Árnason festi stemninguna á mynd.
9. september 2020 Á fullu að undirbúa orkuskipti í samgöngum Orku- og veitufyrirtækin hafa undirbúið sig um þó nokkurt skeið undir orkuskipti í samgöngum, þar sem þróunin er hröð og hreinorkubílum fjölgar stöðugt á götum landsins. Fyrirtækin hafa stóru hlutverki að gegna í orkuskiptunum og þau hafa unnið að undirbúningi þeirra um langt skeið og staðið að öflugum greiningum, rannsóknum og fjárfestingum til að leggja sitt af mörkum.. Orku- og veitufyrirtækin hafa nú þegar lagt grunninn að nauðsynlegum hleðsluinnviðum um allt land fyrir rafbíla og hafa auk þess tekið þátt í að þróa og koma á fót innlendri framleiðslu á öðrum hreinorkugjöfum í formi rafeldsneytis og lífeldsneytis s.s. vetni, metanóli, metan og lífdísel fyrir hreinorkufarartæki framtíðarinnar. Til að greina möguleg áhrif umfangsmikilla orkuskipta á flutnings- og dreifikerfi raforku stóð Samorka fyrir rannsókn með þátttöku 200 rafbílaeigenda um allt land. Bíleigendurnir komu fyrir mælikubb í bíl sínum sem skráði hvar, hvenær og hversu oft bíllinn var hlaðinn, hversu langt var keyrt og svo framvegis. Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku ræddi orkuskipti í samgöngum við þá Heimi Karlsson og Gunnlaug Helgason í þættinum Í bítið á Bylgunni. Hér má hlusta á viðtalið.
9. september 2020 Nýtum hreina, innlenda orkugjafa á samgöngutæki Orkuskipti í samgöngum eru mikilvægur hluti alþjóðlegra skuldbindinga í loftslagsmálum á Íslandi. Orkuskipti í samgöngum snúast um að draga úr notkun á innfluttu jarðefnaeldsneyti og nota í staðinn innlenda hreina orkugjafa á bíla, skip og flugvélar. Orkan sem nýtt er innanlands kemur að langmestu leyti frá endurnýjanlegum orkugjöfum, jarðhita og vatnsafli, eða 91%. Hlutfallið er 85% ef eldsneyti á millilandaflug og farskip eru tekin með. Þessu má þakka þeim orkuskiptum sem á sínum tíma var ráðist í á öðrum sviðum samfélagsins. Aðeins 9% prósent orkunnar sem notuð er innanlands er innflutt eldsneyti, sem nýtt er á samgöngutæki; á bíla, fiskiskip og sjósamgöngur innanlands auk innanlandsflugs. Samkvæmt aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum til að uppfylla Parísarsamninginn á að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum á landi um 21% miðað við árið 2005, en vegna þess hversu mikið útblástur hefur aukist frá árinu 2005 er talan nú 37%, sem þarf að draga úr, miðað við stöðuna árið 2018. Með því að draga úr þessum útblæstri getur Ísland lagt enn frekar af mörkum til loftslagsmála, til viðbótar við að hafa húshitun og rafmagnsframleiðslu úr endurnýjanlegum orkugjöfum, og um leið sparað gjaldeyri og aukið orkuöryggi þjóðarinnar, sem þá verður ekki lengur eins háð innflutningi á eldsneyti. Orku- og veitufyrirtæki landsins hafa hér stóru hlutverki að gegna og þau hafa unnið að undirbúningi orkuskipta um langt skeið og staðið að öflugum greiningum, rannsóknum og fjárfestingum til að leggja sitt af mörkum.. Þau hafa nú þegar lagt grunninn að nauðsynlegum hleðsluinnviðum um allt land fyrir rafbíla. Auk þess hafa fyrirtækin tekið þátt í að þróa og koma á fót innlendri framleiðslu á öðrum hreinorkugjöfum í formi rafeldsneytis og lífeldsneytis s.s. vetni, metanóli, metan og lífdísel fyrir hreinorkufarartæki framtíðarinnar. Uppbygging hleðsluinnviða fyrir rafbíla, fjárhagslegir hvatar sem stjórnvöld hafa komið á og stóraukið úrval rafbíla og tengiltvinnbíla hafa nú þegar skilað Íslandi í fremstu röð á heimsvísu í rafbílavæðingu, næst á eftir Noregi sem er í fyrsta sæti. Þá hefur orðið hröð þróun í farartækjum sem nýta rafeldsneyti eða lífeldsneyti s.s. vöru- og hópferðabílum, ferjum, skipum og flugvélum. Samorka kynnti á ársfundi sínum í gær niðurstöður greininga um orkuskipti í samgöngum á Íslandi. Greiningin byggir meðal annars á niðurstöðum úr nýrri, umfangsmikilli hleðslurannsókn sem staðið hefur yfir í eitt ár með þátttöku tvö hundruð rafbílaeigenda um allt land. Niðurstöðurnar gefa mikilvægar upplýsingar um við hverju megi búast þegar rafbílum fjölgar til muna með tilheyrandi álagi á raforkuframleiðslu-, flutnings- og dreifikerfi landsins. Markmið stjórnvalda um orkuskipti í vegasamgöngum samkvæmt Parísarsamningnum kalla á um 300 MW (1,4 TWh á ári) samkvæmt greiningunni. Fjárfesta þarf um 15 milljarða árlega til ársins 2030 í uppbyggingu flutnings- og dreifikerfis, meðal annars fyrir orkuskipti. Til þess þarf að gera regluverk um þá skilvirkari. Þjóðarbúið sparar um 20-30 milljarða króna á ári vegna minni eldsneytiskaupa og heimilin spara einnig um 400.000 krónur árlega með því að skipta yfir í rafbíl og sleppa við að kaupa eldsneyti. Tveir af hverjum þremur bílum á götunni þurfa að vera orðnir rafbílar fyrir árið 2030. Útblástur myndi minnka um 37% frá samgöngum, eða um 365.000 tonn. Ef skipta ætti alveg út jarðefnaeldsneyti fyrir innlenda hreina orkugjafa í öllum bílum, skipum og flugvélum innanlands fyrir árið 2030 þyrfti um 1200 MW (9TWh á ári). Þar með væri orkunotkun innanlands orðin nær 100% græn. Rannsókn HR og HÍ, sem unnin var fyrir Samorku árið 2018, sýnir að rafbílavæðing er þjóðhagslega hagkvæm. Orkuskipti í samgöngum fela einnig í sér mikil sóknarfæri fyrir Ísland til verðmætasköpunar, atvinnusköpunar og nýsköpunar. Horfa á ársfund Samorku 2020, Orkuskipti: Hvað þarf til?
26. ágúst 2020 4.000 tonnum af CO2 verður fargað árlega Svissneska nýsköpunarfyrirtækið Climeworks, sem sérhæfir sig í að fanga koldíoxíð úr andrúmslofti, hefur skrifað undir tímamótasamninga við Carbfix og Orku náttúrunnar (ON). Samningarnir leggja grunn að nýrri verksmiðju við Jarðhitagarð ON sem mun fanga 4.000 tonn af koldíoxíði úr lofti árlega og farga með því að breyta því í stein. Þetta eru mikilvægt skref í baráttunni gegn hlýnun jarðar en í fyrsta sinn verða þessar brautryðjandi tækninýjungar sameinaðar í verkefni af þessari stærðargráðu. Samningurinn við ON felur í sér að Climeworks muni byggja aðstöðu innan Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar til að fanga CO2 úr andrúmslofti. Þetta verður gert með sérþróaðri tækni Climeworks, Direct Air Capture (DAC), en ON mun tryggja stöðugt framboð af hita og endurnýjanlegri orku til að knýja tæknibúnaðinn áfram. Samningurinn við Carbfix tryggir örugga förgun á koldíoxíði með því að binda hann varanlega sem stein í iðrum jarðar. Basalthraunið á Íslandi hentar sérlega vel í slíku ferli og veitir varanlega og náttúrulega lausn þegar kemur að geymslu koltvísýrings. Verkefnið gæti haft úrslitaáhrif þegar kemur að því að ná markmiðum Parísaramkomulagsins og áframhaldandi þróun á þessum tæknilausnum gæti haft veruleg áhrif í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Við þetta tilefni segir Jan Wurzbacher, einn stofnenda og framkvæmdastjóra Climeworks: „Samstarfið við ON og Carbfix er stórt skref fram á við til að draga úr magni CO2 í andrúmsloftinu. Aðstæður á Íslandi fyrir slík verkefni eru til fyrirmyndar, með stöðugu framlagi af endurnýjanlegri orku og öruggi og náttúrulegu geymslu fyrir koltvísýringinn. Allir samningsaðilar eru brautryðjendur og sérfræðingar á sínu sviði. Við erum stolt af þessu samstarfi sem mun færa varanlega og örugga föngun og förgun koltvísýrings úr andrúmslofti á næsta stig.“ Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra ON, og Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra CarbFix Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix: „Tækninýjungar Carbfix og Climeworks munu í sameiningu marka tímamót í loftslagsbaráttunni. Í fyrsta sinn getum við fangað koldíoxíð sem þegar er kominn í andrúmsloftið og breytt honum í stein á innan við tveimur árum. Með áframhaldandi aukningu á umfangi þessari tækni væri mögulegt að koma í veg fyrir hamfarahlýnun og á sama tíma skapa nýja undirstöðu iðnaðar í hinu alþjóðlega hagkerfi.“ Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra ON: „Í Jarðhitagarði ON höfum við komið upp aðstöðu fyrir vísindafólk, frumkvöðla og fyrirtæki til að fullnýta afurðir Hellisheiðarvirkjunar á ábyrgan og umhverfisvænan hátt ásamt því að hvetja til nýsköpunar á sviði jarðvarma. Þessi samningur er stórt skref í átt að þeirri sýn. Samstarfið milli ON, Carbfix og Climeworks sýnir hvernig samstarf og nýsköpun getur skapað lausnir sem skipta máli við að leysa eina stærstu áskorun okkar tíma. Við hjá ON erum yfirmáta stolt af þessu samstarfi og hlökkum til að styðja við starfsemi Climeworks í framtíðinni.“ Carbfix og Climeworks hafa hlotið styrk úr rannsóknar- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, Horizon 2020, verkefni nr. 764760.
20. ágúst 2020 112.765.594 ástæður til að elska hitaveitur „Pabbi, það kemur ekkert heitt vatn úr krananum!“ sagði sonur minn við mig í töluverðri geðshræringu þegar hann átti að þvo hendurnar fyrir svefninn, fyrsta kvöldið sitt í heimsókn til heimalands móður sinnar. Þar vorum við stödd í Perú, landi þar sem heimsklassa jarðvarmaauðlind er til staðar – en skrefið hefur ekki verið tekið að fara í stórfellda nýtingu á henni. Besta tæknilega lausnin Fyrir okkur sem lifum og hrærumst í orku- og veitumálum er það oft sérstakt að upplifa hversu litla athygli og umræðu það fær núorðið hversu mikil lífsgæði nýting jarðvarmaauðlindarinnar færir Íslendingum. Hérlendis eru rúmlega 90% híbýla á Íslandi kynt með hitaveitu sem byggir á beinni nýtingu jarðhita, en einnig eru starfræktar nokkrar sem nota raforku sem orkugjafa. Þannig er nær öll húshitun á Íslandi byggð á endurnýjanlegum orkugjöfum. Þessi staða sem við búum við á Íslandi er e-ð sem aðrar þjóðir dreymir um að ná. Í Hollandi er til dæmis framundan risastórt átak í að byggja upp nýtingu jarðhita til húshitunar. Þegar Hollendingar leita sér fyrirmyndar, sérþekkingar og almennt aðstoðar við verkefnið, þá leita þeir hingað – til okkar. Hagstæða lausnin fyrir heimili og fyrirtæki Húshitun með jarðhita er ekki bara almennt viðurkennt sem besta verkfræðilega lausnin í þeim geira, heldur er hún líka ákaflega hagstæð fyrir heimili og fyrirtæki. Ef við berum til dæmis saman húshitunarkostnað í höfuðborgum á Norðurlöndum kemur í ljós að hann er afgerandi lægstur á Íslandi. Þar er kostnaðurinn hérlendis að meðaltali þrefalt lægri en í öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum. Lífsgæði og atvinnusköpun Annað umkvörtunarefni barnanna minna þegar við vorum í Suður-Ameríku var að komast ekki í sund, því börnin eru vön því að geta valið úr 10 frábærum og heitum sundlaugum um helgar. Þegar heim var komið var það eitt fyrsta verkið að fara í Lágafellslaugina. Auk sundlauganna okkar frægu hefur undanfarin ár verið mikil uppbygging hringinn í kringum landið hjá ferðaþjónustufyrirtækjum sem byggja á nýtingu heita vatnsins. Má þar t.d. nefna Bláa lónið, Sjóböðin á Húsavík, Bjórböðin á Árskógssandi, Vök Baths í Fljótsdalshéraði og Fontana í Bláskógabyggð. Þá má ekki gleyma hátæknifyrirtækjunum okkar sem nýta heita vatnið til ræktunar í gróðurhúsum, fiskeldis, framleiðslu á hátækni lækninga og snyrtivörum og alls kyns atvinnusköpunar. Risastórt framlag í loftslagsmálum Mér telst til að ég sé kominn með sjö ástæður til að elska hitaveitur. Sem þýðir að mig vantar 112.765.587 ástæður, erf ég ætla að ná því sem boðað var í titli greinar minnar. Það næst með því að skoða hversu mikið hitaveiturnar spara okkur í losun gróðurhúsalofttegunda. Húshitun (og rafmagnsframleiðsla) með endurnýjanlegum orkuauðlindum er langstærsta framlag Íslands í loftslagsmálum. Samkvæmt tölum frá Orkustofnun er uppsafnaður sparnaður Íslendinga í losun gróðurhúsalofttegunda í gegnum árin, með því að notast við endurnýjanlega orku til húshitunar í stað jarðefnaeldsneyta, 112.765.587 tonn. Til samanburðar við þessi 112 milljón tonn, þá má nefna að árlega losun frá landbúnaði á Íslandi er 0,6 milljón tonn. Förum vel með auðlindina Þessi árangur er ekki sjálfsagður. Það var og er gríðarlega kostnaðarsamt og flókið verkefni að byggja upp og viðhalda íslenska hitaveitukerfinu. Sú staðreynd kallar á að við kunnum að meta heita vatnið og hitaveiturnar og förum sparlega með þessa verðmætu auðlind. Þar er margt sem við getum öll gert. Á heimasíðu Veitna má t.d finna mörg góð hollráð um heitt vatn: – Berum saman okkar notkun við meðalnotkun sambærilegs heimili og skoðum hvernig við getum nýtt heita vatnið sem best. – Látum fagmann stilla hitakerfið. – Notum lofthitastýrða ofnloka til að jafna innihitann. – Förum yfir þéttleika og einangrun glugga og hurða. – Lokum gluggum þegar kalt er úti. – Förum yfir hitakerfi hússins og jafnvægisstillum þegar kólna fer í veðri. Ég lofaði 112.765.594 ástæðum til að elska hitaveitur og vona að ég hafi sýnt fram á það. Þær eru samt miklu fleiri. Ef þið höfðuð nb. gaman af þessari grein minni þá bendi ég á næstu grein mína: 320.680.342 ástæður til að elska endurnýjanlega raforku! Eftir Sigurjón Norberg Kjærnested, forstöðumann fagsviða hjá Samorku. Greinin birtist fyrst í Bændablaðinu 29. júlí 2020.
17. ágúst 2020 Umfangsmikil heitavatnslokun eftir miðnætti Veitur vekja athygli á umfangsmikilli heitavatnslokun á hluta höfuðborgarsvæðisins sem hefst klukkan 02:00 eftir miðnætti í kvöld. Lokunin stendur yfir í ríflega þrjátíu klukkustundir eða til klukkan 09:00 að morgni miðvikudags 19. ágúst. Lokunin nær til alls Hafnarfjarðar, hluta Garðabæjar, efri byggða Kópavogs og Norðlingaholts í Reykjavík. Ítarlegar upplýsingar og kort af lokunarsvæðinu má finna inni á Veitur.is. Gera má ráð fyrir algjöru heitavatnsleysi á umræddum svæðum á meðan lokun stendur. Ástæða lokunarinnar er að verið er fjölga heimilum sem fá heitt vatn frá virkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum. Við það þarf að sækja minna af heitu vatni í borholur Veitna í Reykjavík og Mosfellsbæ. Með aukinni notkun á heitu vatni, m.a. vegna fjölgunar íbúa og þéttingu byggðar, hefur álag á jarðhitageyminn sem fæðir borholurnar á lághitasvæðunum aukist og við því verður að bregðast. Þessi framkvæmd er liður í því að tryggja að þessi mikilvægu lághitasvæði nýtast íbúum höfuðborgarsvæðisins til langrar framtíðar. Til þess að mögulegt sé að gera umrædda breytingu þarf nýja tengingu við Suðuræð, sem er ein af megin flutningsæðum hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu og þjónar m.a. þeim svæðum sem verða fyrir þessari lokun.
14. júlí 2020 Kristinn Ingi til CarbFix Kristinn Ingi Lárusson Kristinn Ingi Lárusson hefur verið ráðinn til Carbfix, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem hann mun leiða viðskiptaþróun,stefnumótun og markaðssókn þess á erlendri grundu Á árunum 1998 – 2005 starfaði Kristinn hjá SPRON við útlán til stærri fyrirtækja, eignastýringu og fjárfestingabankastarfsemi. Frá 2005 til 2013 var Kristinn forstöðumaður viðskiptaþróunar Símans og síðar móðurfélagsins SKIPTA. Undanfarin sjö ár hefur hann verið framkvæmdastjóri ON Waves sem er alþjóðlegt fjarskiptafyrirtæki sem þjónar skipaflotum um allan heim. Kristinn hefur jafnframt setið víða í stjórnum fyrirtækja, bæði hérlendis sem erlendis, á sviði nýsköpunar, fjarskipta og fjármála. Kristinn lauk MBA gráðu frá University of Edinburgh í Skotlandi árið 2002. Áður hafði hann lokið BS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðs- og alþjóðaviðskipti frá University of South Carolina í Bandaríkjunum. Carbfix er þekkingarfyrirtæki sem veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði kolefnisföngunar með það að markmiði að sporna gegn loftslagsvánni. Carbfix tæknin er hagkvæm og umhverfisvæn og felst í að fanga CO2 úr útblæstri í stað þess að sleppa því út í andrúmsloftið. Í stuttu máli er CO2 breytt í stein með því að hraða ferli náttúrunnar. Vatni með uppleystu CO2 – nokkurs konar sódavatni – er dælt ofan í berglög neðanjarðar þar sem það steinrennur á innan við tveimur árum með sömu ferlum og náttúran hefur beitt í milljónir ára til að tempra styrk CO2 í andrúmslofti.
10. júlí 2020 Lykillinn að árangri í loftslagsmálum Á dögunum kynntu stjórnvöld uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þar má sjá metnaðarfullar og fjölbreyttar aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum. Orku- og veitufyrirtæki landsins láta sig þessi mál mikið varða enda er hrein orka og traustir orkuinnviðir um allt land lykillinn að árangri í loftslagsmálum. Á aðalfundi Samorku var eftirfarandi ályktun samþykkt. Í fremstu röð í orkuskiptum Samorka fagnar markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum og þeim aðgerðum sem boðaðar hafa verið í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir endurnýjanlega orkugjafa í samgöngum er lykilatriði í því að Ísland geti staðið við þau markmið og þar með alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum. Til þess þarf öfluga innviði og nægt framboð af innlendri, grænni orku sem ætlunin er að komi í stað jarðefnaeldsneytis. Orkuskipti í samgöngum eru þjóðhagslega hagkvæm og ávinningur fyrir loftslagið er mikill. Ísland á að vera í fremstu röð í þessari þróun og ráðast í orkuskipti af fullum þunga. Í því felast tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki. Styrking innviða nauðsynleg Atburðir síðustu mánaða hafa minnt á mikilvægi rafmagns og hitaveitu í okkar daglega lífi og starfi. Mikilvægið fer vaxandi með aukinni rafvæðingu samfélagsins auk þess sem þörf fyrir heitt vatn eykst eftir því sem þjóðin vex og dafnar. Það sama á við um þörfina fyrir heilnæmt drykkjarvatn og uppbyggingu fráveitu. Sterkir innviðir með nægilegri afkastagetu þjóna íbúum og atvinnulífi um allt land og eru hornsteinn þjóðaröryggis og lífsgæða. Núverandi regluverk framkvæmda styður ekki við nauðsynlegt viðhald og styrkingu orkuinnviða. Nauðsynlegt er að bæta úr því. Græn orka til framtíðar Í dag er hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi með því hæsta sem gerist í heiminum og hagnýting grænna orkuauðlinda hefur lagt grunninn að lífsgæðum og verðmætasköpun í landinu síðustu hundrað árin. Til að svo megi áfram vera þarf að skapa samstöðu um aðgengi þjóðarinnar að orkulindum sínum enda nauðsynlegt að horfa áratugi fram í tímann og geta mætt orkuþörf og orkuöryggi heimila og atvinnulífs til framtíðar. Tækniþróun og nýsköpun mun leiða af sér betri orkunýtingu og nýjar lausnir til sparnaðar, en því til viðbótar mun þurfa aukna endurnýjanlega orku til að uppfylla þarfir heimila og atvinnulífs auk markmiða um græna framtíð fyrir núverandi og komandi kynslóðir. Samorka lýsir yfir áhyggjum af því að markvisst er unnið að því að takmarka orkunýtingu á sífellt stærra landsvæði sem ríkt er af endurnýjanlegum orkulindum. Áður en frekari ákvarðanir um slíkar takmarkanir eru teknar er nauðsynlegt að því sé svarað hvaðan hreina orkan, sem uppfylla á þarfir samfélagsins nú og til framtíðar, eigi að koma. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. júlí 2020.