Forysta Nordenergi ræddi tækifæri í hreinni orku við orkumálaráðherra Finnlands

Kröftug rafvæðing á öllum sviðum samélagsins með hreinum orkugjöfum var í brennidepli á ársfundi Nordenergi í Helsinki í Finnlandi sem lauk í dag. Nordenergi er samstarfsvettvangur norrænna landssambanda í græna orkugeiranum. Finnur Beck framkvæmdastjóri og Sveinn Helgason, verkefnisstjóri erlends samstarfs sóttu ársfundinn fyrir hönd Samorku. 

Forystusveit Nordenergi átti fund með Sari Multala loftslags- og orkumálaráðherra Finnlands þar sem m.a. var rætt var um mikilvægi norrænnar samvinnu í orkumálum, og hvernig hrein orka getur laðað að sér fjárfestingar í atvinnulífi.  Á fundinum með ráðherranum bar  einnig á góma tækifæri í uppbyggingu gagnavera, skilvirkni á raforkumarkaði, áfallaþol innviða og nauðsyn þess að flutningskerfi raforku standi undir aukinni rafvæðingu og eftirspurn. 

Green Power Denmark fer nú með formennsku í Nordenergi samstarfinu og setur í forgang áframhaldandi rafvæðingu til að tryggja samkepppnishæfni Evrópu. Að sama skapi sé mikilvægt að ná markmiðum í loftslagsmálum.  Þetta kalli á enn frekari fjárfestingar í hreinum orkugjöfum og innviðum til að bjóða notendum hagstætt orkuverð. Norræn samvinna gegni lykilhlutverki til að ná árangri í þessum og fleiri viðfangsefnum. 

Norðurlöndin eru í fremstu röð i þróun og  nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa en glíma líka við sameiginlegar  áskoranir, s.s. í uppbyggingu flutnings- og dreifkerfa raforku. Norrænu orkusamböndin leggja þunga áherslu á að efla áfallaþol og orkuöryggi. Þau eru sífellt að auka samstarf sitt á því sviði, ekki síst í ljósi nýrra ógna og hraðra breytinga í alþjóða- og öryggismálum. Sú þróun þýðir að orkusjálfstæði er enn brýnna en ella.