9. september 2026 Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026: Óskað eftir tilnefningum Nýsköpun og hugmyndaauðgi hefur alla tíð verið veigamikill hluti af íslenskum orku- og veitugeira. Stórbætt lífsgæði landsmanna á síðustu áratugum má þakka nýrri þekkingu, hugviti og framsýni sem lagði grunn að sjálfbærni og verðmætasköpun í samfélaginu. Samorka óskar nú eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2026. Verðlaunin verða afhent 19. nóvember og verður þetta í sjötta sinn sem þau eru veitt. Leitað er að framúrskarandi nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þróa lausnir eða verkefni á sviði orku- og veitumála. Sérstaklega er horft til verkefna sem falla undir eitt eða fleiri eftirfarandi atriða: Tæknilausnir fyrir orku- og veitugeirann. Nýsköpun sem byggir á nýtingu orku, heits vatns, neysluvatns, fráveitu eða annarra auðlindastrauma. Lausnir sem styðja við orkuskipti. Lausnir sem stuðla að því að loftslagsmarkmið náist. Hugmyndir og viðskiptaáætlanir sem eru hagkvæmar, raunhæfar og líklegar til árangurs. Óháð dómnefnd fagfólks úr orku- og veitugeiranum velur úr þeim tilnefningum sem berast. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Við tilnefningu skal fylla út rafrænt form og gera grein fyrir fyrirtækinu, lausninni sem það hefur þróað, virðissköpun hennar og þeim áhrifum sem hún getur haft. Frestur til að senda inn tilnefningar er til og með 15. október 2026. Farið verður með allar tilnefningar sem trúnaðarmál. Fyllið út tilnefningarformið hér Orku- og veitufyrirtæki landsins standa að Nýsköpunarverðlaununum og koma því ekki til greina sem verðlaunahafar. Handhafi Nýsköpunarverðlauna Samorku 2025 var SnerpaPower. Fyrri verðlaunahafar: 2024: Carbon Recycling International 2023: Atmonia 2022: Alor 2021: Laki Power