Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands

Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy)  sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma.  „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku.

Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn ESB.

Birna segir að Íslendingar standi svolítið með pálmann í höndunum á þessu sviði því landið sé ríkt af vatni. Hinsvegar sé mikilvægt að þekkja vel auðlindina og gera sér grein fyrir hvert skuli stefna í framtíðinni.

Sveinn Helgason ræðir við Birnu í þættinum.

Birna starfar á umhverfissviði framkvæmdastjórnarinnar í teymi sem vinnur að ferskvatnsstjórnun og hefur átt töluverðan þátt í að móta stefnuna um viðnámsþrótt vatns sem kynnt var 4. júní s.l. Stefnan hefur m.a. tengingar við svokallaða vatnatilskipun og fráveitutilskipun ESB.